Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 21
Búið er að setja upp markaðs-
tjald þar sem afslátturinn er
allt að 70 prósent.
Dagana 30. júlí til 12. ágúst er
sumarútsala í Intersport. Afslátt-
urinn er 20 til 40 prósent af ýmsum
íþróttavörum í verslunum í
Húsgagnahöllinni og Smáralind.
Búið er að setja upp markaðstjald
fyrir utan verslunina í Húsgagna-
höllinni. Þar er afslátturinn allt að
70 prósent.
Opið er 10-19 mánudaga til
laugardaga í Húsgagnahöllinni en í
Smáralindinni er opnað klukkutíma
síðar. Opið er á sunnudögum kl. 12-
18 í Húsgagnahöllinni en 13-18 í
Smáralind.
Risa útsölumarkað-
ur Intersport
Eyfirskt góðmeti
Matvara af eyfirskum upp-
runa verður meðal söluvara á
markaðinum í gamla bænum
að Laufási í Eyjafirði 6. ágúst
milli kl. 13.30 og 16.
„Við verðum með alls konar
brauð, bæði fjölþjóðleg og
séríslensk, svo sem franskbrauð,
fjallagrasabrauð, sveitabrauð og
rúgbrauð. Öll eru þau
heimabökuð,“ er það fyrsta sem
Ingibjörg Sigurlaugsdóttir,
staðarhaldari í Laufási, nefnir
þegar hún er beðin að lýsa
matvörunum á Laufásmarkað-
inum á mánudaginn. Fleira telur
hún upp. „Við erum með
rabarbarasultu, rabarbarasaft,
berjasultu og rabarbarahlaup.
Svo höfum við bakað rabarbarapæ.
Þetta flokkast allt undir mat úr
héraði. Við erum líka að selja
harðfisk utan af Grenivík og
nýuppteknar kartöflur úr
eyfirskri mold.“ Einnig verða
þjóðlegar veitingar seldar á gamla
prestssetrinu.
Q-bar opnar eldhúsið fyrir hommum, lesbíum og
öllum hinum.
Við Ingólfsstræti í Reykjavík var fyrir nokkrum
mánuðum opnaður skemmtistaðurinn Q-bar. Þar
koma samkynhneigðir saman ásamt gagnkyn-
hneigðum vinum sínum, en staðurinn er það sem kall-
ast „Straight-Friendly“ – öllum opinn án tillits til kyn-
hneigðar þó að samkynhneigðir séu þó í meirihluta.
Fram til þessa hefur staðurinn verið rekinn sem
bar og skemmtistaður á kvöldin og um helgar, en nú
hafa Óli Hjörtur Ólafsson og Anna Brá Bjarnadóttir
rekstrarstjórar einnig opnað eldhús með fjölbreytt-
um og öðruvísi matseðli.
„Við opnuðum eldhús einfaldlega af því okkur lang-
aði bara til þess,“ útskýrir Óli Hjörtur. „Ákváðum að
fara ekki þessa hefðbundnu leið sem flest kaffihúsin
og barirnir eru með, sem sagt að bjóða upp á
hamborgara og pasta, heldur bjóðum við upp á margs
konar létta rétti,“ segir hann en á matseðlinum er
meðal annars að finna tapas-rétti, graflax og falafel.
„Þetta er hugsað þannig að maturinn eigi að vera
góður og fallega framreiddur en samt sem áður fljót-
ur að koma á borðið og fólk kann vel að meta það.
Fyrsta daginn var mjög gott að gera hjá okkur miðað
við það að við auglýstum ekki neitt og allir voru mjög
ánægðir,“ segir Óli.
Fyrir framan Q-bar er rúmgóður pallur þar sem
gestir geta setið úti ef vel viðrar og hægt er að yfir-
skyggja pallinn ef tilefni er til. Opnunartími staðar-
ins hefur verið lengdur eftir að eldhúsið opnaði, en
eldhúsið er opið frá klukkan 11.30 fyrir hádegi til
klukkan níu á kvöldin, alla daga vikunnar.
„Annar kokkurinn okkar kemur frá Kanada og er
öllu vanur þegar það kemur að eldamennsku. Hann
hefur unnið í eldhúsum víða um heim og hafði því
skemmtilegar hugmyndir. Hinn er Íslendingur sem
er líka vel vanur og útkoman af þessu samstarfi er
mjög góð,“ segir Óli og spurður að því hvort
kokkarnir séu samkynhneigðir segir hann svo ekki
vera.
„Nei, nei... þeir eru báðir gagnkynhneigðir og Anna
Brá sem er rekstrarstjóri á móti mér er líka gagn-
kynhneigð. Þetta er því ekki neinn sérstakur homma-
matur... hvernig sem hann nú er,“ segir hann og skell-
ir upp úr.
„Straight friendly“ matseðill
Við eigum eftir að eig
a
góðan vetur saman.
4. ÁGÚST
SÝN 2 BYRJAR
512 5100 SYN.IS VERSLANIR VODAFONE
ÓDÝRARA Á NETINU
Gakktu frá áskrift á Netinu og fáðu
30% afslátt af fyrsta mánuðinum.
STÓRLEIKIR Í ÁGÚST
5. ágúst Chelsea – Manchester United
19. ágúst Liverpool – Chelsea
19. ágúst Manchester City – Manchester United