Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 48
Unforgiven frumsýnd Nýtt blað, Djöflaeyjan, hefur göngu sína í dag en það er stílað inn á ungmenningu, með áherslu á menningartengt efni í bland við pólitíska pistla svo fátt eitt sé nefnt. Ef marka má ritstjóra blaðsins, Sigurð Kjartan Kristinsson, geta lesendur átt von á hárbeittri gagnrýni. „Þetta er ungmenningarblað stílað inn á ungt fólk á mennta- og háskólaaldrinum,“ útskýrir Sigurður. „Þarna verður mikið fjallað um viðburði sumarsins, listasýningar, tónleika og þess háttar. Blaðið byggist á viðtölum við listamenn í yngri kantinum og innsendum pistlum frá hinum og þessum.“ Sigurður segir að í raun geti hver sem er sent inn greinar undir nafni og hugsanlega fengið þær birtar. Eða svo fremi sem innihaldið er innan ákveðinna velsæmismarka svo leiðindi hljótist ekki af. „Við reynum að birta flest, en auðvitað verður ekki hægt að birta allt. En það má búast við harðri gagnrýni. Enda finnst okkur miðlum hætta til að vera of hlédrægir í þessum málum.“ Viðbúið er að fyrsta tölublaðið eigi eftir að vekja umtal, þó ekki sé nema vegna forsíðunnar sem er af Lúðvíki fjórða Frakklandskonungi með brennandi musterisriddara í baksýn. „Lúðvík fjórði gerði föstudaginn þrett- ánda að föstudeginum þrettánda, þar sem hann dæmdi og lét brenna flesta musterisriddarana,“ útskýrir Sigurður. „Myndin er táknræn fyrir væntanlegt hlutverk blaðsins sem hálfgerðs sam- félagsvandar. Blaðs sem stendur vörð um vissa hluti.“ Sigurður vill þó sem minnst segja til um ritstjórnarmeðlimi blaðsins og væntanlega samfélagsverði, þar sem mismunandi aðilar komi til með að halda utan um hvert tölublað. Hann segir það gert með það fyrir augum að efnið sé alltaf nýstárlegt og að sem flestir geti komið sinni sýn á framfæri. Þannig er Djöflaeyjan að þessu sinni óður til þriðja og fjórða áratugar síðustu aldar, sem Sigurður segir einfaldlega markast af ríkjandi tísku. „Við erum einfaldlega að hoppa um borð í hringekju tískunnar, sem er alltaf í gangi. Það er náttúrlega alltaf leitað til baka með nýja hugsjón að leiðarljósi.“ Djöflaeyjan kemur til að byrja með út í 5.000 eintökum og verður dreift á helstu almenningsstaði borgarinnar, en Sigurður segir að til standi að stækka upplagið þegar fram líða stundir. Áhugasömum er einnig bent á að hægt er að senda ritstjórn blaðsins efni á netfangið jelena@jelena.is „Fái svartur maður ekki annað tækifæri í þessu landi, á meðan menn eins og til dæmis Robert Downey Jr. og ríkis- stjóri Kaliforníu fá annað og jafn vel þriðja tækifærið ... þá finnst mér það segja mikið um kynþætti og stöðu mála í land- inu.“ Eiginmaður minn og faðir, Örn Guðmundsson Frá Flatey á Skjálfanda, Flókagötu 64, Reykjavík, lést þriðjudaginn 31. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þiðjudaginn 7. ágúst kl. 15.00. Erla Björnsdóttir og Björn Arnarson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Ingileif Fjóla Pálsdóttir Suðurgötu 39, Hafnarfirði, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði miðvikudaginn 1. ágúst. Soffía Sigurðardóttir Markús Kristinsson Eiður Sigurðsson Hrafnhildur Sigurðardóttir Eðvarð Jónsson Páll Sigurðsson Benný Þórðardóttir Ragnar Sigurðsson Unnur Guðnadóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Við færum innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu vegna andláts okkar hjartkæra Steingríms Þorsteinssonar Erluási 68, Hafnarfirði, og fyrir að heiðra minningu hans á margvíslegan hátt. Inga Lillý Bjarnadóttir Jón Bjarni Þorsteinsson Guðrún Björt Yngvadóttir Sigurður Þorsteinsson Ingibjörg Eiríksdóttir Anton Pjetur Þorsteinsson Sigríður Hauksdóttir börn og barnabörn aðstandenda. 70 ára afmæli Á morgun, laugardaginn 4. ágúst, verður Hanne Hintze Æsufelli 2, sjötug. Af því tilefni tekur hún á móti ætting jum og vinum í sumarbústað sínum í Lyngmóum 47 í landi Þórisstaða í Grímsnesi frá kl. 15.00. Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, Ragnhildur Jónsdóttir Austurbrún 33, Reykjavík, er látin. Útförin auglýst síðar. Stefanía Vilborg Sigurjónsdóttir Axel Eiríksson Jón Sigurjónsson Inga Sólnes Sigrún Sigurjónsdóttir Robert A. Spanó Stefán Sigurjónsson Guðrún Dröfn Marínósdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Halldóra Svava Benediktsdóttir Clausen Arahólum 2, Reykjavík, lést á líknardeild LSH, Kópavogi, þriðjudaginn 31. júlí. Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju, þriðjudaginn 7. ágúst kl. 13.00. Axel Axelsson Clausen Kristbjörg Magnúsdóttir Kristrún Þóra Clausen Svava Viktoría Clausen Hermann Gunnarsson Jenni Guðjón Axelsson Clausen Ólöf Eir Halldórsdóttir Svanfríður Clausen Vilhjálmur Vilhjálmsson ömmubörn og langömmubörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir og tengdafaðir, Kári Steinsson frá Neðra Ási, Hjaltadal, Hólavegi 23 Sauðárkróki, lést 24. júlí. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 4. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill, Landssamtök hjarta- sjúklinga. Dagmar Kristjánsdóttir Valgeir Steinn Kárason Guðbjörg S. Pálmadóttir Kristján Már Kárason Steinn Kárason Kristín Arnardóttir Soffía Káradóttir Hafsteinn Guðmundsson Jóna Guðný Káradóttir Gunnar Á. Bjarnason barnabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Bergþóra Sigmarsdóttir Skipasundi 57, Reykjavík, lést miðvikudaginn 1. ágúst. Sveinn Karlsson Ásdís Karlsdóttir Maríus J. Lund Sigmar Karlsson Elke Amend Sigríður Karlsdóttir Pétur H. Ísleifsson Barnabörn og barnabarnabörn. AFMÆLISBÖRN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.