Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 2
„Stór hluti af lækn-
unum, og sérstaklega þeir sem eru
eldri og reyndari, eru búnir að fá
sig fullsadda á þessu og munu
draga sig í hlé,“ segir Friðrik
Sigurbergsson, reyndasti
þyrlulæknir landsins.
Friðrik vísar til þess að einungis
einn læknir er á bakvakt hverju
sinni vegna bráðaútkalla björgun-
arþyrlna Landhelgisgæslunnar.
Þyrlur sem sinna bráðaþjónust-
unni eru tvær og áhafnirnar sem
fljúga þeim sömuleiðis. Ekki var
gert ráð fyrir öðrum lækni þegar
úthlutað var til Landspítalans í ár.
„Við teljum að það sé ekki ásætt-
anlegt að starfa undir þessu aukna
álagi. Við erum með reglur um
vinnuvernd og lágmarkshvíld og
allir skilja að flugmaðurinn þurfi
að hvílast. En þetta er ansi slítandi
fyrir lækninn, sem þarf kannski
líka að mæta í vinnuna daginn
eftir,“ segir hann.
Friðrik tekur sem dæmi að
nýverið hafi þurft að sækja sjúk-
ling til Vestfjarða. Á meðan hafi
borist annað útkall. Enginn læknir
hafi fengist til ferðarinnar sem
seinna var afturkölluð.
„Það er fullur skilningur á því
hjá Landhelgisgæslunni að þörf sé
á öðrum lækni. Dómsmálaráðu-
neyti metur þetta öðruvísi.“ Frið-
rik efast ekki um að þörf sé á lækn-
um í þyrlurnar. „Við flytjum um 20
mikið slasaða sjúklinga á ári þar
sem þarf mikið inngrip, sem ekki
er á færi annarra en lækna.“
Sá Lalli ekki rautt þegar hann
fékk annan búning en hinir?
Drengur fæddur 1992
slasaðist alvarlega þegar hann
varð fyrir bíl í Garðabæ laust
fyrir hádegi í gær.
Að sögn lögreglunnar lenti
drengurinn framan á bílnum
þegar hann var að hjóla yfir götu.
Við áreksturinn kastaðist hann
yfir bílinn og lenti á gangstétt
fyrir aftan bílinn. Drengurinn var
ekki með hjálm.
Drengurinn var fluttur með
sjúkrabíl á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi.
Að sögn vakthafandi læknis
liggur drengurinn alvarlega
slasaður á bráðamóttöku en líðan
hans stöðug.
Drengur á hjóli
varð fyrir bíl
Hugsanlega var
skotið á bíl stúlku sem var að taka
barn úr bíl sínum í Keflavík í gær.
Málsatvik voru þau að þegar
stúlkan var að taka barn úr
barnabílstól í bílnum sprakk ein
rúða. Lögreglan kom á svæðið og
rannsakaði málið.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni á Suðurnesjum er hugsanlegt
að skotið hafi verið á rúðuna. Það
sé hins vegar ekki hægt að útiloka
að einhverju hafi verið kastað í
rúðuna eða jafnvel að eitthvað
hafi fokið á hana. Allir sem geta
veitt upplýsingar um málið eru
beðnir að hafa samband við
lögregluna á Suðurnesjum.
Hugsanlega
skotið á bíl
Ungur piltur endaði
ökuferð sína úti í Laxá í Aðaldal
eftir að hann missti stjórn á
jeppabifreið sinni við Helluvað í
Mývatnssveit í gær.
Pilturinn missti stjórn á
bílnum, sem var í gangstýringu
(e. cruise control), og neyddist til
að stýra honum út af til að koma í
veg fyrir að velta honum. Hann
sveif um sex metra fram af
vegstallinum og keyrði hátt í
hundrað metra eftir árbakkanum
þar til hann endaði úti í miðri
ánni. Engum varð meint af.
Vegfarandi varð vitni að
slysinu en keyrði fram hjá eins
og ekkert hefði í skorist, segir
Gunnar Hnefill Örlygsson, sem
ók bílnum.
Bíllinn endaði í
Laxá í Aðaldal
Vandi sveitarfélaga
landsins er útgjalda- og skulda-
vandi, ekki skortur á tekjum, segir
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra. Hann segir bæði tekjur og
útgjöld hafa aukist meira hjá sveit-
arfélögunum en ríkinu.
Talsvert hefur verið rætt um að
sveitarfélögin fái hlutdeild í tekj-
um ríkisins af fjármagnstekju-
skatti, en fjármálaráðherra hefur
þvertekið fyrir það.
„Vandi sveitarfélaganna almennt
held ég að sé útgjalda- og skulda-
vandi, ekki tekjuvandi. Á yfirstand-
andi hagvaxtarskeiði hefur upp-
safnaður tekjuauki
sveitarfélaganna verið meiri en
tekjuauki ríkissjóðs. Á síðustu fjór-
um árum hafa útgjöld sveitarfélag-
anna aukist umtalsvert meira en
útgjöld ríkisins,“ segir Árni. Hann
tekur fram að á því árabili hafi afar
fá verkefni færst frá ríki til sveit-
arfélaga.
Árni segir vanda sveitarfélag-
anna afar misjafnan, stóru sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu hafi
fengið miklu meiri tekjuaukningu
en til að mynda lítil sveitarfélög á
landsbyggðinni, þar sem tekjur
hafi jafnvel dregist saman. Það að
færa tekjur af fjármagnstekj-
uskattinum til sveitarfélaganna
muni bara skekkja tekjudreifing-
una milli sveitarfélaga enn meira.
Árni segir að ríkið hafi samið við
Samband íslenskra sveitarfélaga
síðastliðið vor um að ríkið aðstoði
sveitarfélögin við að grynnka á
skuldum, og að sveitarfélögin
tækju upp fjármálareglur áþekkar
þeim sem ríkissjóður hefur verið
með. Árni segir að þessi samningur
verði lagaður að viðbrögðum ríkis-
valdsins við niðurskurði á þorsk-
veiðiheimildum, en gert er ráð
fyrir 700 milljóna viðbótarframlagi
ríkisins í í jöfnunarsjóð í tvö ár.
„Ríkisvaldið er með þessu búið
að viðurkenna að það sé vandi hjá
sveitarfélögunum, og er tilbúið til
að aðstoða við að grynnka á skuld-
unum, svo fremi sem staða ríkis-
sjóðs leyfi,“ segir Árni.
Grímur Atlason, bæjarstjóri í
Bolungarvík, segir sveitarfélög á
þenslusvæðum – Suðvesturhorninu
og Austurlandi – hafa skilað ágætri
afkomu, en önnur sveitarfélög skili
lakari afkomu. Hann segir margt
koma þar til, en einn af stóru þátt-
um málsins sé að tekjustofnar hafi
ekki aukist í samræmi við verkefni
sem sveitarfélögin hafi tekið við af
ríkinu.
Hann nefnir þar sérstaklega
grunnskólana, en kröfur samfé-
lagsins séu aðrar í dag en þær hafi
verið þegar grunnskólarnir voru á
hendi ríkisins. Nú sé krafan ein-
setnir skólar, mötuneyti og fleira,
auk þess sem viðhald bygginga hafi
víða setið á hakanum hjá ríkinu. Ef
eitt sveitarfélag stökkvi til og bæti
þjónustuna verði þau öll að
stökkva.
Hann segir það góðra gjalda vert
að grynnka á skuldum sveitarfé-
laga, en 1,4 milljarðar á tveimur
árum komi ekki í staðinn fyrir fasta
tekjustofna sveitarfélaga.
Vandi sveitarfélaga
ekki tekjuskortur
Fjárhagsvandi sveitarfélaga landsins tengist fremur útgjöldum og skuldum en
tekjuskorti segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Tekjustofnarnir hafa
ekki aukist í samræmi við flutning verkefna til sveitarfélaga segir bæjarstjóri.
Skemmtistaðurinn Goldfinger í
Kópavogi hefur ekki leyfi til nektarsýninga. Í nýjum
lögum segir að nektardans sé bannaður nema hann
sé sérstaklega heimilaður af sveitarstjórn og
lögreglu. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins
leggst gegn leyfi Goldfinger til nektarsýninga, og
því hefur sýslumaður ekki veitt staðnum leyfið.
Ásgeir Davíðsson, eigandi staðarins, segir engan
nektardans hafa farið fram á Goldfinger síðan nýju
lögin tóku gildi. Stúlkurnar fari ekki úr öllum
fötunum og því sé ekki um nektarsýningu að ræða.
Hann segist ætla að leggja fram kvörtun til dóms-
málaráðuneytisins vegna málsins, og áfram verði
dansað á Goldfinger. „Mér finnst þetta vera eins og
lögregluríki þar sem einn maður tekur ákvörðun-
ina,“ segir hann og á við lögreglustjórann.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð í Kópavogi
sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem ákvörðun
lögreglustjóra að heimila ekki nektarsýningar á
Goldfinger var fagnað. „Mér sýnist þetta vera stór
áfangi, við viljum fá þetta fyrirtæki út úr bænum
því það er sannað mál að svona starfsemi tengist
ofbeldi og mansali,“ segir Guðbjörg Sveinsdóttir
varabæjarfulltrúi.
Hún segir að í raun og veru eigi að loka staðnum.
„Þessir staðir tengjast starfsemi sem er glæpsamleg
að mínu mati og er niðurlægjandi fyrir hvert
sveitarfélag að hýsa.“
Finninn Jan-Erik
Enestam tók á miðvikudag við
starfi framkvæmdastjóra
Norðurlandaráðs, sem er
samstarfsvettvangur norrænna
þingmanna.
Enestam er einn af reyndustu
ráðherrum Finnlands. Hann hefur
setið á þingi frá árinu 1991 og var
ráðherra á árunum 1995 til 2006,
síðast umhverfis- og
samstarfsráðherra.
Haft er eftir Enestam í
fréttatilkynningu að nýja starfið
sé áhugavert og mikil áskorun sé
í því fólgin að taka þátt í áfram-
haldandi þróun norræna sam-
starfsins.
Finni tekur við
stjórnartaumum
Rannsóknarnefnd flugslysa
rannsakar tildrög óhapps sem varð
þegar nefhjól tveggja hreyfla
flugvélar gaf sig í lendingu á
flugvellinum í Múlakoti í Fljótshlíð
í fyrrakvöld.
Þorkell Ágústsson, rannsóknar-
stjóri RNF, segir að flugmaður og
tveir farþegar hafi verið um borð í
vélinni, sem hafi verið að æfa
snertilendingar þegar óhappið
varð. Fólkið var heilt á húfi.
Þorkell segir ekki ljóst hvers
vegna nefhjólið gaf sig, en meðal
þess sem rannsakað verði sé
verklag flugmannsins, sem er
einkaflugmaður með töluverða
reynslu.
Nefhjól flugvél-
arinnar gaf sig
Læknarnir eru að gefast upp