Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 6
– og farsælan vinnudag! Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Eigum einnig til notaðar vel meðfarnar TASKI gólfþvottavélar, nýkomnar úr 3ja ára rekstrarleigu frá viðskiptavinum RV. Tækifæri til að gera ótrúlega góð kaup. Einstaklega lipur vél sem hentar á svæðum þar sem aðkoma er þröng. Vél sem kemur á óvart! Reiknuð afköst 1250m2/klst Lítil og nett, en afkastamikil vél með innbyggðu hleðslutæki sem hindrar afhleðslu rafgeyma. Reiknuð afköst 1935m2/klst Á tilb oði í ágú st 20 07 U ni qu eR V 07 07 02 HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA ÞÚ FÆRÐ DECUBAL Í NÆSTA APÓTEKI Ekki er vitað hve margir fórust þegar fjölfarin brú í Minneapolis hrundi skyndilega síðdegis á miðvikudag. Í gærmorg- un höfðu yfirvöld staðfest að fjór- ir voru látnir, en tuttugu til þrjátíu manns var saknað. Kafarar voru sendir til að leita að látnu fólki í Mississippi-fljóti í gær, en bæði erfitt og hættulegt var að athafna sig við leitina. „Brúin er enn að hreyfast,“ sagði Tim Dolan, lögreglustjóri í Minneapolis. „Við þurfum að gera þetta hægt og gæta öryggis.“ Allt að fimmtíu bílar voru í ánni og reynt var að skrá niður bílnúm- er þeirra allra. Ökumenn og far- þegar flestra bifreiðanna höfðu náð því að komast í land, en erfitt var að kanna hve mörg lík væru enn í bílunum. Sumir bílanna voru grafnir undir stórum steinsteypu- brotum úr brúnni. Heimavarnaráðuneyti Band- aríkjanna segir fátt benda til þess að þetta hafi verið hryðjuverk. Orsökin er þó enn ókunn. „Allt bendir til þess að þetta hafi verið hrun, en ekki af mannavöldum,“ segir Richard Stanek, sem er yfir- maður í lögreglunni. Slysið varð klukkan 18.05, sem sagt á háannatímanum síðdegis, þegar umferðin um brúna er hvað mest. Meðal bifreiðanna sem voru á brúnni þegar hún hrundi var skólabíll með 60 börnum. Bíllinn fór ekki í ána þannig að öll komust börnin lífs af, en um það bil tíu þeirra hlutu meiðsli. Tíu ára stúlka, Kaleigh Swift, hringdi í mömmu sína um það bil tíu mínútur yfir sex. „Hún æpti: Brúin hrundi,“ sagði móðirin, Christine Swift. Tim Pawlenty, ríkisstjóri í Minnesota, segir að brúin hafi verið skoðuð vandlega á árunum 2005 og 2006 og þá hafi engir alvarlegir gallar komið í ljós. „Það þurfti að huga að nokkrum smávægilegum atriðum.“ Dagblaðið Star Tribune, sem gefið er út í Minneapolis, skýrði þó frá því að árið 2005 hafi samgönguráðuneytið í Minnesota komist að þeirri niðurstöðu að brúin væri í lélegu ástandi og þyrfti ef til vill endurnýjunar við. Þegar brúin hrundi var verið að vinna að viðgerðum á henni. Fjórar af átta akreinum voru lokaðar, sem gerði það að verkum að umferð var minni en ella hefði verið. Átján verkamenn voru á brúnni þegar hún hrundi. Einn þeirra hafði ekki fundist síðdegis í gær. Á þriðja tug saknað Engar skýringar hafa fengist á því hvers vegna brúin yfir Mississippi-fljót í Minneapolis hrundi fyrirvaralaust í fyrrakvöld. Stjórnvöld telja þó ekki að hryðjuverkamenn hafi verið á ferðinni. Ekki er heldur vitað hve margir fórust. Þau Dennis og Jamie Winegar frá Texas voru akandi á bifreið sinni yfir brúna í Minn- eapolis þegar þau fundu skyndilega að hún byrjaði að skjálfa. Ungur frændi þeirra sem var með þeim hrópaði: „Þetta er jarðskjálfti,“ og þá áttuðu þau sig á því að brúin var að hrynja undan þeim. „Ég klossbremsaði og sá eitthvað fyrir framan mig hverfa og síðan sneri bíllinn minn beint niður og við hröpuðum,“ sagði Dennis, sem sat við stýrið. Bifreiðin hefur fallið um það bil fimmtán metra og lenti ofan á öðrum minni bíl. Jamie segir að fólk hafi strax farið út úr bílunum og reynt að hjálpa hvert öðru. Catherine Yankelevich var í öðrum bíl sem steyptist út í Mississippi-fljót: „Bílarnir fóru að fljúga og ég sá vatnið,“ segir hún. Henni tókst að klifra út um hliðarrúðuna bílstjóramegin og synti í land. „Þetta var alveg eins og í bíómynd, þetta var býsna ógnvekjandi,“ sagði hún. „Ég bjóst aldrei við að neitt þessu líkt myndi gerast hér.“ Var alveg eins og í bíómynd „Brúin sem hrundi er ábyggilega fjölfarnasta brúin í Minneapolis. Hún liggur í gegnum miðbæinn og tengir öll úthverfin í norðri við miðbæinn, þannig að allir sem eru að koma í vinnu þaðan fara þarna um,“ segir Magnús Sveinn Helgason, sem búið hefur í Minneapolis í sjö ár. Hann átti leið framhjá brúnni klukkutíma eftir að hún hrundi, var að skutla vinkonu dóttur sinnar heim. „Hún býr þarna nálægt svo ég fór þangað og gekk um svæðið.“ Hann komst þó ekki alveg að brúnni, því stóru svæði hafði strax verið lokað. „Þegar ég kom á vettvang var augljóst að öll viðbrögð lögreglu og björgunarfólks voru ótrúlega skipulögð. Þetta hefur allt gengið nákvæmlega eftir bókinni.“ Fjöldi fólks var á staðnum, fólk sem býr í nágrenninu eða komst ekki leiðar sinnar vegna þess að brúin var farin. „Fólk ætlaði hreinlega ekki að trúa þessu. Bílarnir lágu eins og hráviði þarna og ótrúlegt að fólk hafi bjargast úr þeim því brúin er minnst tuttugu metra há,“ segir Magnús. „Nú er fólk farið að búa sig undir umferðartafir, því þetta er önnur aðalumferðaræðin í gegn- um borgina. Það gæti tekið allt upp í tvö ár að koma umferðinni í gang aftur.“ Bílarnir lágu eins og hráviði Á að hætta að birta opinber- lega álagningarskrár skatt- stjóra? Er réttlætanlegt að vera með aldurstakmörk á tjaldstæðum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.