Fréttablaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 33
mæti sem skipta mestu máli. Hann yrði líka svo
skemmtilegur og öðruvísi forseti. Engin dúkku-
lísa og ósnobbaður.“
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prestur
„Kona með mikla sögu. Vel lesin og víðsýn og
ruddi hverju karlavíginu á fætur öðru úr vegi.
Hún hefur fallega og einlæga trú, hvað sem má
segja um trúarkreddur fortíðarinnar. Gæti sið-
menntað íslensku þjóðina dálítið.“
Herdís Þorgeirsdóttir prófessor
„Glæsileg kona með bein í nefinu. Kvenréttinda-
kona og lærdómskona. Skapmikill aristókrat en
með hjartað á réttum stað.“
Vala Matt sjónvarpskona
„Ekki spurning – flottur forseti – og ég meina
það í fúlustu alvöru.“
Sævar Karl athafnamaður
„Flottur karl sem kann sig – með listræna taug
og mikill heimsmaður.“
Þorgerður Einarsdóttir lektor
„Afar fagleg og djúpt hugsandi fræðikona á sviði
jafnréttis- og kvenfrelsismála, mjög góður fyrir-
lesari og hefur framkomu sem hæfir forsetaemb-
ættinu sérdeilis vel.“
Anna Katrín Guðmundsdóttir femínisti
„Frábær femínisti og gegnheil baráttukona,
fylgin sér og fagleg á alla kanta.“
Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri
„Hefur mikla og góða reynslu af alþjóðlegu sam-
starfi. Óvígður sendiherra vetnisins á alþjóða-
vísu. Tók nýlega við Alheimsorkuverðlaunum úr
hendi Pútíns Rússlandsforseta fyrir störf sín.
Hann er þeim hæfileikum gæddur að geta talað
við hvern sem er hvenær sem er um hvað sem er.“
Pétur Gunnarsson rithöfundur
„Er veraldarvanur, gáfaður og fágaður, myndi
vafalaust halda góð boð, gefa embættinu menn-
ingarlegan blæ og jafnvel taka upp á því að hafa
sjálfstæðar skoðanir.“
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður
og rithöfundur
„Frumlegur hugsuður sem myndi gera eitthvað
nýtt við embættið og vafalaust hleypa aðeins
upp hefðbundinni mynd manna af forsetanum.“
Björgólfur Guðmundsson, bankaeigandi
og athafnamaður
„Það væri mjög íslenskt að velja þennan greifa af
Monte Christo í æðsta embætti þjóðarinnar. Þar
með væri hann búinn að gera kommbakk á
heimsvísu.“
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi
ráðherra
„Afar hlý, skemmtileg og kraftmikil manneskja
sem laðar fólk að sér. Hefur góða reynslu og
myndi verða glæsilegur fulltrúi fólksins. Ingi-
björg hefur undanfarið starfað að velferðarmál-
um barna og hefur einlægan áhuga á hugsjónar-
og mannúðarmálum.“
Bryndís Schram
„Glæsileg, heillandi, hrífur fólk með sér og er
með áralanga reynslu í hinum diplómatíska,
opinbera geira. Þau hjónin hafa löngum sannað
dug sinn og myndu vera landinu til mikils sóma.
Það er líka kominn tími á konu í forsetaembætt-
ið, sérstaklega í ljósi þess hversu fáar konur sitja
nú í ríkisstjórn.“
Páll Magnússon útvarpsstjóri
„Maður sem kann að tala tæpitungulaust við
fólk og hrífa það með sér. Myndi án efa breyta
embættinu frá núverandi háheilagleika og inn
á alþýðlegri brautir sem samrýmdust meira
samfélagstaktinum. Svipað og hann hefur gert
með góðum árangri við embætti útvarps-
stjóra.“
Svafa Grönfeldt skólameistari
„Dugnaðarforkur með mikla hugmyndaauðgi og
framsýni. Að auki er hún ópólitísk og óum-
deild.“
Dorrit Moussaieff forsetafrú
„Ég er ekki alveg til í að sleppa henni frá Bessa-
stöðum. Hún er með svo góð sambönd á erlend-
um grundvelli og hefur staðið sig svo vel. Mér
finnst hún jafnvel mikilvægari fyrir embættið en
Ólafur sjálfur.“
Garðar Cortes eldri
„Hann er gífurlega forsetalegur að sjá, valds-
mannslegur og kröftugur. Kann hámenninguna
upp á sína tíu fingur, sem er mikilvægt í kónga-
partíunum – og veraldarvanur. Aristókratinn
geislar af honum.“
Bjarni Ármannsson
fyrrverandi forstjóri Glitnis
„Verðugur fulltrúi. Ungur maður sem hefur sýnt það og sannað að hann er
eldklár og getur tekist á við hina ýmsu hluti. Þar að auki virðist hann
vera laus við hégóma og snobb. Slíkt er mikils virði fyrir forseta-
frambjóðanda.“
„Hefur náð ótrúlega langt í viðskiptaheiminum þrátt fyrir ungan
aldur. Það verður erfitt fyrir hann að toppa það, nema kannski
helst ef hann haslar sér völl í stjórnmálum eða býður sig fram til
forseta Íslands. Gáfaður, góður og virtur. Sömuleiðis er hann alþýð-
legur og ótrúlega sjarmerandi og skemmtilegur. Hver myndi auk
þess ekki vilja forseta sem tæki lagið með hljómsveitinni á ballinu?“
„Bjarna Ármannsson í þetta djobb! Hann er klár, hress og virðulegur
og atvinnulaus.“
„Mikill tungumálamaður, geðþekkur maður sem hefur
vítt áhugasvið og er vel tekið hvar sem kann kemur.
Hann er með yfirburðareynslu á sviði viðskipta
en hefur jafnframt mikinn áhuga á menningu,
listum og vísindum.“
„Kominn af alþýðlegu fólki af Skaganum. Hefur
gott tengslanet um allan heim og býr augljós-
lega að góðu uppeldi. Hefur mikla og góða
reynslu af ímyndarherferðum og hvernig á að fá
fólk til að líta í sömu átt.“
Arna Schram blaðamaður
Atli Gíslason alþingismaður
Steinunn Valdís Óskarsdóttir alþingismaður
Anna Kristjánsdóttir bloggari
Andrés Guðmundsson kraftakarl
Árni Þór Sigurðsson alþingismaður
Brynja Þorgeirsdóttir fréttamaður
Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður
Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi
Bergsteinn Árilíusson tónlistarmaður
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður
Samfylkingarinnar
Kolbrún Halldórsdóttir alþingiskona
Elín Albertsdóttir blaðamaður
Sigfús R. Sigfússon, Heklu
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri
Svava Johansen verslunarkona
Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir fréttamaður
Fjalar Sigurðsson fjölmiðlamaður
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður
Katrín Jakobsdóttir alþingismaður
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi
Elín Arnar blaðamaður
Álitsgjafar Sirkus