Fréttablaðið - 03.08.2007, Side 16

Fréttablaðið - 03.08.2007, Side 16
fréttir og fróðleikur 15. ágúst næstkomandi mun íslenska ríkið taka við rekstri Ratsjárstofn- unar. Utanríkisráðherra segir tilfærsluna ekki fara fram eins og best hefði verið á kosið. Reksturinn kostar í kringum milljarð króna á ári og hægara er sagt en gert að aðlaga áður bandarískt rekna starfsemi að íslenskri stjórnsýslu. Ratsjárstofnun telst stofnun undir yfirstjórn utanríkisráðu- neytisins þrátt fyrir að allur rekstur hennar hafi verið fjár- magnaður af bandarískum yfir- völdum. Samkvæmt varnaráætlun við Bandaríkin, sem samþykkt var í september í fyrra, verður starf- semi stofnunarinnar flutt undir íslenska ríkið 15. ágúst. Kostnaður við stofnunina var 1.200 milljónir árið 2005, en ráðuneytið telur sig geta lækk- að hann verulega við yfirtök- una. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir utanríkisráðherra nefndi töluna 800 milljónir í júní þegar hún fundaði með aðstoðar- utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Nicholas Burns. Rekstrarumgjörð Ratsjárstofn- unar hefur hingað til mótast af því að Bandaríkin hafa staðið straum af öllum rekstarkostnaði. Laun þeirra starfsmanna sem ráðnir eru utan íslenskra kjara- samninga hafa því verið talsvert hærri en þekkist á Íslandi. Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að gildandi ráðningar- og kjarasamningar verði virtir við yfirtökuna. Þar með verður fjöldi starfsmanna Ratsjárstofnunar á háum launum sem samræmast engan veginn launum ríkisstarfs- manna. Yfirmenn stofnunarinn- ar hafa verið ófáanlegir að gefa upp hvað stofnunin hefur greitt þeim í laun. Allir starfsmenn stofnunarinnar eru íslenskir. Engar heimildir eru í lögum fyrir fjárveitingum til stofnun- arinnar. Í apríl samþykkti þáver- andi ríkisstjórn að veita 241 milljón króna í reksturinn í fjár- aukalögum sem samþykkt verða á haustþingi. Jafnframt var lofað að 824 milljónir yrðu heimilaðar á fjárlögum fyrir árið 2008. Hvorugt hefur verið staðfest með lögum, en ný ríkisstjórn hefur það á stefnuskránni. Starfshópur á vegum utanríkis- ráðuneytisins vinnur nú að greiðri tilfærslu reksturs Rat- sjárstofnunar til ríkisins. Ýmsar leiðir verða skoðaðar til að auka hagræðingu í rekstrinum og sjá til þess að kostnaður ríkisins verði sem minnstur. Jafnvel gæti svo farið að rekstrarformi stofn- unarinnar verði breytt. Hópinn skipa sérfræðingar á vegum ráðuneytisins. Hópurinn mun leggja niðurstöður sínar fyrir ráðherra á haustmánuðum, en ríkið tekur yfir rekstur stofn- unarinnar 15. ágúst. Því verða engar breytingar á fyrirkomu- lagi rekstursins á fyrstu mánuð- unum. Ráðherra hefur sagt að standa hefði mátt öðruvísi að tilfærsl- unni. Nú sé hins vegar aðeins ein leið út og mikilvægt að hún gangi snurðulaust fyrir sig. Stofnunin var sett á laggirnar í maí árið 1987. Hlutverk hennar hefur verið að afla upplýsinga um flugumferð yfir Íslandi og umhverfis landið með rekstri ratsjárstöðva. Upplýsingarnar voru svo nýttar af varnarliðinu og Flugmálastjórn Íslands. Eftir að tilkynnt var um brottför varn- arliðsins 15. mars á síðasta ári var óvíst um hvers hlutverk það væri að halda úti ratsjárstöðvun- um. Tilkynnt var í september að ratsjárkerfið yrði fært undir íslenska ríkið, en ríkisstjórnin var vongóð um að fjármunir fengjust frá Atlantshafsbanda- laginu til að reka það, að minnsta kosti að hluta. Sú von er ekki lengur til staðar og ljóst er að Íslendingar verða að fjármagna það að öllu leyti. Ratsjárkerfinu hefur verið lofað til árlegra heræfinga á vegum Bandaríkjahers og orrustuþota frá NATO, sem munu halda her- æfingar fjórum sinnum á ári. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segir einu réttlætinguna fyrir rekstri kerf- isins vera almenna borgaralega umferð í þágu flugumferðar- stjórnar. Ekki fékkst uppgefið hverjar tekjur stofnunarinnar eru af þjónustu við almenna flug- umferð. Í næstu viku mun utanríkis- málanefnd Alþingis funda og ræða meðal annars framtíð rat- sjárkerfisins og hvaða fjárheim- ildir verði nýttar til að standa straum af heræfingum. Þriðja stærsta flugfélag í Evrópu Þrautalending Ratsjárstofnunar Launin helsta ástæðan V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b . 9 9 kr /s ke yt ið . VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS JA SMF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA HEIMSFRUMSÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ 11. HVER VINNUR !

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.