Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 64
4 5 6 7 8 9 10
Á laugardag kl. 16 verður dag-
skrá flutt á Sal Menntaskólans í
Reykjavík sem helguð er skáld-
sögunni Tímaþjófnum eftir Stein-
unni Sigurðardóttur. Tilefnið er
útkoma sögunnar á ensku hjá
Eddu í þýðingu Rory McTurk. Á
þessu hausti er liðið 21 ár frá því
að Tímaþjófurinn, fyrsta skáld-
saga Steinunnar Sigurðardóttur,
kom út. Bókinni var frábærlega
vel tekið af gagnrýnendum og
öðrum lesendum. Í kjölfar útgáf-
unnar fylgdi mikil umfjöllun og
snörp skoðanaskipti, þar sem
hæst bar ritgerð og fyrirlestur
Helgu Kress prófessors, með
heitinu „Dæmd til að hrekjast“.
Tímaþjófurinn varð metsölu-
bók á Íslandi og hefur síðan komið
út á Norðurlöndum, í Þýskalandi
og Frakklandi og hvarvetna hlotið
frábæra dóma.
Hún var nýlega endurútgefin í
Danmörku og í Svíþjóð. Í Frakk-
landi var gerð kvikmynd eftir
Tímaþjófnum. Á Sal Menntaskól-
ans mun Alda Björk Valdimars-
dóttir ræða verkið en aðalpers-
óna bókarinnar starfaði einmitt í
Menntaskólanum, þar sem
Steinunn stundaði reyndar nám á
sínum tíma. Afar fátítt er að
salurinn sé lánaður undir uppá-
komur sem þessa enda sögu-
frægur staður. -
Sest á SalinnGERÐUBERG
www.gerduberg.is
Ég bið að heilsa
Sýning á bútasaumsverkum
í tilefni af 200 ára
fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar
Erró - Kvenfólk
Grafíkverk í eigu
Listasafns Reykjavíkur
Af hjartans list!
Alþýðulistamaðurinn
Ágúst Jónsson
sýnir málverk í Boganum
Vissir þú...
að í Gerðubergi er góð
aðstaða fyrir ráðstefnur,
námskeið, fundi og móttökur.
Sjá www.gerduberg.is
Sýningarnar standa til 9. september
og eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700
Síðasta sýningarhelgi!! Salurinn
enn meiri afsláttur