Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 66
Nú eru tæpar sex vikur þangað til Iceland Airwaves-hátíðin 2007 skellur á og þess vegna alveg kominn tími til að kíkja aðeins á dag- skrána. Þegar þetta er skrifað eru komin 130 nöfn á listann yfir þá sem koma fram á hátíðinni á þeim fimm dögum sem hún stendur yfir (17.– 21. október) þannig að það er ljóst að eins og undanfarin ár verður erfitt að velja og hafna. Af erlendu atriðun- um verða þessi að teljast algjört möst: !!! – Ein af braut- ryðjendasveitum NY pönk-fönk bylgjunnar. Bonde do Role – ásamt CCS heitasta nafnið í brasilísku poppi. Platan hennar With Lasers er skemmtileg og bandið ku vera villt á sviði. Buck 65 – Hip-hop-blús snillingur frá Kanada. Deerhoof – San Francisco-indísveit sem er búin að vera að lengi. Nýja platan hennar, Friend Opportunity, er afbragð. Chromeo – 80’s litaður danstónlistardúett frá Kanada. Lali Puna – Þýskt gæðarafpopp frá Morr. Late Of The Pier – Ný bresk sveit sem lofar mjög góðu. Rafrænt glysrokk. Loney, Dear – Sænskur eðall. Of Montreal – Heitasta bandið í ár. „Arcade Fire ársins 2007“ eða þannig … The Teenagers – Stórskemmtileg ensk/frönsk sveit í miklu uppáhaldi hjá músíkpressunni. Laganöfnin Scarlett Johansson og Fuck Nicole segja kannski eitthvað um stemninguna. Og svo má ekki gleyma Bloc Party, Kasper Björke, Khonnor og Trentemöller … Íslenska deildin er svo algjört allsnægtaborð og allir að gera sitt besta. Hvað með Bloodgroup, Esju, Gavin Portland, Hjaltalín, Jakobín- arínu, Motion Boys, Mr. Sillu & Mongoose, Retro Stefson, Skáta og Sprengjuhöllina? Eða kannski Cocktail Vomit, Mig, FM Belfast, Hairdoctor, I Adapt, Kimono, múm, Reykjavík!, Seabear, Severed Crotch og Úlpu? Nú eða … Tóndæmi og tengla má finna á icelandairwaves.com Talið niður að Airwaves Bretinn viðkunnanlegi James Blunt mun um miðjan mánuðinn senda frá sér sína aðra breiðskífu. Á platan að fylgja eftir ofurhittaraplötunni Back to Bedlam sem kom út árið 2005. Steinþór Helgi Arnsteinsson forvitnaðist um nýju plötuna. James Hillier Blount, betur þekktur sem James Blunt, fæddist árið 1974 í Englandi en faðir hans var háttsettur innan breska hersins. Seinna gekk Blunt sjálfur til liðs við herinn og gegndi stöðu kapteins í Kosovo. Aðeins ári eftir að Blunt hætti í hernum hafði hann landað samningi hjá EMI- plötufyrirtækinu. Hann vakti líka athygli hjá Lindu Perry, fyrrverandi meðlimi í 4 Non Blondes og heilans á bak við Pink, sem fékk hann til liðs við sig hjá plötufyrirtækinu Custard í Bandaríkjunum. Eftir misvel heppnaðar tilraunir í Bretlandi á smáskífumarkaðnum gerði lagið You’re Beautiful allt vitlaust. Lagið fór á toppinn og platan, Back to Bedlam, skaut X & Y plötu Coldplay ref fyrir rass á breiðskífulistanum. Lagið fór síðan eins og eldur um sinu um allan heim og ekki leið á löngu áður en það toppaði bandaríska Billboard- listann. Hafði breskt lag ekki náð þeim áfanga síðan Candle in the Wind með Elton John hafði gert slíkt. Síðan þá hefur frægðarsól Blunt risið hátt. Aðrar smáskífur af Back to Bedlam hafa gert garðinn frægan og sjálfur hefur Blunt verið mikið í sviðsljósinu og komið fram meðal annars í Saturday Night Live og hjá Opruh Winfrey. Blunt hefur samt ítrekað reynt að forðast sviðsljósið og vill yfirleitt lítið segja um sitt einkalíf. Slíkt hefur hins vegar reynst sem bensín á bál pressunnar. Nýja platan, All the Lost Souls, var tekin upp í Los Angeles hjá Tom Rothrock sem einnig annað- ist upptökustjórn á Back to Bedlam. Blunt hefur hins vegar sagt að mikið af plötunni hafi hann samið á Ibiza. Fyrsta smáskífulagið, 1973, varð þannig til eftir eitt hressi- legt kvöld á skemmtistaðnum Pacha á partíeyjunni frægu. Lagið var samið í samvinnu við Mark Batson, sem er helst þekktastur fyrir að vinna með bandarískum hip-hop lista- mönnum, til dæmis Dr. Dre, The Game, Beyoncé og Jay-Z. Lagið 1973 er nú þegar tekið að hljóma á útvarpsstöðvum um allan heim en hefur ekki slegið eins rækilega í gegn og til dæmis You’re Beautiful enda 1973 frá- brugðið flestu öðru sem Blunt hefur sent frá sér. Lagið náði þó inn á topp tíu í Bretlandi. „Fyrir mér er engin pressa í gangi,“ útskýrir Blunt. „Eftir að hafa selt yfir 11 milljón plötur veit ég að líkurnar á að það endurtaki sig eru hverfandi. Í stað þess að setja það sem markmið reyni ég frekar að gera plötu sem ég hef virkilega gaman af og er virkilega sáttur með. Platan er eitthvað sem ég get sagt að sýni þroska minn og þróun sem lagahöfundur og sem tónlistarmaður, sýnir breyting- arnar í mínu lífi og skráir og ritar á þann hátt.“ Blunt hefur einnig sagt að lögin á plötunni hafi meira verið samin með hljómsveit í huga en lögin á Back to Bedlam. Í fréttatilkynn- ingu segir jafnframt að platan eigi sérstaklega að heilla aðdáendur Carly Simon og James Taylor. Hvað sem því líður geta allir James Blunt-aðdáendur fagnað útgáfu All the Lost Souls um miðj- an septembermánuð. Þriðja plata íslensku harðkjarna- sveitarinnar I Adapt, Chainlike Burden, er komin út. Upptökur á plötunni hófust í febrúar á síð- asta ári og hefur mikið vatn runn- ið til sjávar síðan þá. „Þetta er langur tími fyrir stutta plötu,“ segir söngvarinn Birkir Fjalar Viðarsson um upptökuferlið. „Ég fékk söngvírus í hálsinn og síðan vorum við ekki með nógan pen- ing til að bóka stúdíó lengi í einu. Þetta gekk allt rosalega hægt. Svo kom tímabil þar sem við vorum ekki sáttir við hljóminn og byrjuðum að „mixa“ allt upp á nýtt. Það er búið að leggja mikið í þetta þannig að þetta geti komið sæmilega út. Við vildum að þetta væri langbesta platan okkar,“ segir hann. I Adapt fer í tveggja vikna tón- leikaferðalag um austurströnd Bandaríkjanna í byrjun október, en platan kemur einnig út þar í landi og í Kanada. „Við fórum síð- ast til Bandaríkjanna í mars á þessu ári. Það gekk miklu betur en við þorðum að vona þannig að um leið og sá túr var búinn ákváð- um við að fara strax út aftur.“ I Adapt spilar næst á Sköllfest í Tónlistarþróunarmiðstöðinni 11. september ásamt Blacklisted frá Bandaríkjunum, Celestine, Dys, Kimono, Drep, Retron, The South Coast Killing Companu, Diabolus og Skít. Langt upptökuferli I Adapt Dagskrá Iceland Airwaves, sem hefst í októ- ber, er óðum að taka á sig endanlega mynd og stefnir í afar fjölbreytta og skemmtilega tónlistarhátíð. Auk bandarísku hljómsveitar- innar Grizzly Bear, sem staðfesti nýverið komu sína, hefur Amiina ásamt bresku sveitunum Slow Club og Late of the Pier skráð sig til leiks. Koma þær tvær síðastnefndu fram á tónleikum bresku útgáfunnar Moshi ásamt hinni efnilegu íslensku sveit Retro Stefson. Á síðasta ári spiluðu The Klaxons, sem vann Mercury-verðlaunin fyrir skömmu, og Tilly and the Wall á tónleikum Moshi- útgáfunnar í Hafnarhúsinu og því ljóst að um spennandi viðburð verður að ræða. Nýsjálenska hljómsveitin Cut Off Your Hands, sem þykir sjóðheit á tónleikum, hefur einnig boðað komu sína á Airwaves. Verður þetta í fyrsta sinn sem nýsjálensk sveit kemur fram á hátíðinni. Á meðal fleiri sveita sem hafa bæst í hópinn eru Jagúar, Búdrýgindi, Hraun, Changer, Morðingjar, Computer Club frá Bretlandi, XXX Rottweiler og Worm is Green. Miðasala á hátíðina hefst miðvikudaginn 12. september. Fjölbreytni í fyrirrúmi specials föstudaginn 20. og laugardaginn 21. apríl Nýtt band Specials sérhæfa sig í sjöunda áratugnum - Bítlunum, Stones og Pretty Things Sérfræðingarnir lofa stanslausu stuði á Kringlukránni. Smeygjum okkur í dansskóna og mætum tímanlega. p
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.