Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 44
Sumir halda að það að forðast almennt fitusýrur sé rétta leiðin en raunveruleikinn er sá að aðeins í fitusýrum er að finna tvo undirstöðuþætti sem eru okkur lífsnauðsynlegir á sama hátt og prótín, kolvetni, vítamín og steinefni. Af mörgum tegundum fitusýra hafa aðeins Omega 3 og 6 verið skilgreindar af vísindamönnum sem lífs- nauðsynlegar fitusýrur (EFAs). Það er vegna þess að hver einasta fruma í líkamanum þarf á þessum fitusýrum að halda og líkaminn getur ekki framleitt þær sjálfur. Alltaf er mælt með að uppspretta þessara fitusýra sé úr fæðu. Lykillinn að heilsusamlegri virkni fitusýra er neysla á þeim í réttum hlutföllum. Udo’s 3•6•9 olíublandan hönnuð með heilsuna í huga Udo’s 3•6•9 olíublandan er sérvalin blanda náttúrulegra, óunninna, lífsnauðsynlegra fitusýra sem bragðast vel og bera keim af rjóma og hnetum. Innihaldið eru ferskar, óunnar og lífrænar hörfræ-, sesam- og sólblómaolíur ásamt kvöld- vorrósarolíu og hrísgrjóna- og hafrafræsolíum, sem tryggja hámarksnæringu í minnsta mögulega magni. Olíublandan inniheldur einnig óerfðabreytt soja lesitín sem aðstoðar við meltingu olíanna og hjálpar til við byggingu frumuhimna. Udo’s 3•6•9 olíublandan inniheldur einnig miðlungs- langar þríglýseríð-keðjur sem auðvelt er að melta og frumur líkamans geta nýtt sér beint til orku- framleiðslu án hættu á fitusöfnun. Udo- ’s 3•6•9 olíublandan er pressuð og síuð samkvæmt bestu mögulegu leiðum, við lágan hita og án ljóss og súrefnis til þess að ná fram hámarksnæringu og ferskleika. Betri heilsa Lífsnauðsynlegar fitusýrur gegna lykilhlutverki í flókinni líkamsbyggingu mannsins. Sérhver fruma, vefur, kirtill og líffæri reiða sig á lífsnauðsynlegar fitusýrur. Þær gegna enda mikilvægasta hlutverkinu í byggingu sérhverrar frumuhimnu, eru nauðsynlegar vexti frumna og skiptingu þeirra. Jöfn neysla er því algerlega lífnauðsynleg heilbrigðri frumumyndun. Neysla fullnægjandi skammts af lífsnauðsynlegum fitusýrum og í réttum hlutföllum, eins og finna má í Udo’s 3•6•9 olíublöndunni, eykur orku, þol og frammistöðu, bætir svefn, einbeiting eykst, skapið batnar og húðin verður fegurri. Þær hafa einnig áhrif á hreyfigetu og liðleika og það að við náum okkur fyrr upp úr veikindum. Um það bil þriðjung allra veikinda má rekja til slæms mataræðis. Þar af leiðandi getum við dregið verulega úr líkurnum á að fá sjúkdóma með því að vanda til fæðunnar sem við borðum. Þetta þýðir í raun að við borðum of mikið af því sem er slæmt fyrir okkur og ekki nóg af því sem er okkur hollt. Fyrir það greiðum við með ýmiss konar kvillum og veikindum. Omega fitusýrur byggja upp ónæmiskerfið á marga vegu og hafa jákvæð áhrif á: • Hjarta og æðakerfi • Kólesteról í blóði • Blóðþrýsting • Liði • Orkuflæði líkamans • Minni og andlega líðan • Námsárangur • Þroska heila og miðtaugakerfi fósturs á meðgöngu • Rakastig húðar Tvær frábærar uppskriftir sem eru bæði hollar og góðar á bragðið: Exotic prótein hristingur Frábær heilsuhristingur með frískandi ávaxtabragði. Góður sem morgun-, hádegis- eða kvöldverður. 250ml Exotic safi frá Biotta 1 mæliskeið Spirutein vanilla prótein duft 1 matskeið UDO’S 3,6,9 Olía Allt hráefnið sett í blandara og hrært saman á mesta hraða í u.þ.b eina mínútu og þá hellt í glas. Gott er að setja klaka út í. Granat eplahristingur 200ml Pomegranate safi frá Biona 1 mæliskeið Spirutein vanilla prótein duft 1 matskeið UDO’S 3 • 6 • 9 Olía 1 matskeið Beyond greens frá UDO’S 10 stk frosin hindber Allt hráefnið sett í blandara (ef notuð eru frosin hindber þá látið þau seinast út í) öllu blandað saman á mesta hraða í u.þ.b eina mínútu. Þessi blanda er fyrir einn. Gott er að nota fersk íslensk bláber ef þau eru til. Verði ykkur að góðu... Udo‘s 3•6•9 fæst í apótekum og heilsubúðum. Sannleikurinn um fitusýrur í fitusýrum er að finna tvo undirstöðuþætti sem eru okkur lífsnauðsynlegir á sama hátt og prótín, kolvetni, vítamín og steinefni Udo's choice er fullkomin blanda af lífsnauðsynlegum fitusýrum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsu okkar.Udo’s 3•6•9 olíublandan er sérvalin blanda náttúrulegra, óunninna, lífsnauðsynlegra fitusýra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.