Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 4
Borgarráð samþykkti á
fundi sínum í gær að koma á
laggirnar starfshópi um hluta-
félagavæðingu Orkuveitu Reykja-
víkur. Stjórn OR samþykkti á
fundi sínum á mánudag að beina
því til eigenda sinna, Reykjavíkur-
borgar, Akranesbæjar og Borgar-
byggðar, að breyta fyrirtækinu úr
sameignarfyrirtæki í hlutafélag.
Formaður hópsins verður Björn
Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs. „Það liggja miklar
upplýsingar fyrir um þetta mál
en það þarf að huga að þeim
álitaefnum sem hafa komið upp í
umræðunni um þessa rekstrar-
formsbreytingu. Við munum
einnig fara yfir á hvaða þáttum
þarf að vera hægt að taka
væntanlegu lagafrumvarpi um
málið,“ segir Björn Ingi.
Starfshópur
fari yfir málið
Ísraelsk hersveit
útbúin skriðdrekum og jarðýtum
fór inn á suðurhluta Gazasvæðis-
ins í gær til að ráðast á bækistöð
herskárra Palestínumanna. Sex
Palestínumenn féllu í bardaganum,
daginn eftir að ísraelskir stjórn-
málaleiðtogar lýstu því yfir að
ekki yrði gripið til stórtækra
hernaðaraðgerða til að stöðva
sprengiflaugasendingar frá Gaza á
ísraelska bæi.
Átökin áttu sér stað á sama tíma
og Tony Blair, sérlegur erindreki
stórveldakvartettsins svonefnda
sem reynir að miðla friði við botn
Miðjarðarhafs, átti viðræður við
Mahmoud Abbas, forseta Palest-
ínumanna, í Ramallah á Vestur-
bakkanum.
Sex menn falla
í bardögum
Prentsmiðjan Oddi og
Birtíngur gerðu í gær einn stærsta
samning um prentun tímarita sem
gerður hefur verið hér á landi.
Hann felur í sér prentun á öllum
tímaritum Birtíngs.
Engar upphæðir eru nefndar en
Jón Jósafat Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Odda, segir þetta
slaga hátt í tímamótasamninginn
sem fyrirtækið gerði um prentun
Símaskrárinnar fyrir um 15 árum.
„Þetta er langtímasamningur sem
gerir okkur kleift að fjárfesta í
tólum og tækjum og þróa ýmsa
þjónustu,“ segir hann.
Oddi prentar
tímarit Birtíngs
Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, segir óviðunandi að
ríkisfyrirtækið Íslandspóstur ohf.
fari í samkeppni við einkaaðila í
sölu á skrifstofuvörum.
Heimdallur telur tímabært að
fyrirtækið verði einkavætt líkt og
önnur ríkisfyrirtæki sem ekki sé
lengur þörf fyrir þar sem virk
samkeppni sé fyrir á markaði.
Gagnrýna
Íslandspóst
Hlutfall fjármagns-
tekjuskatts í skatttekjum ríkisins
jókst um tæp 66 prósent frá árinu
2003 til ársins 2006.
Fjármagnstekjuskattur nam 24
milljörðum króna í fyrra sem var
6,3 prósent af heildarskatttekjum
og tryggingagjöldum það árið
samkvæmt Vefriti fjármálaráðu-
neytisins sem kom út í gær.
Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs
námu fjármagnstekjur Íslendinga
tæplega 209 milljörðum króna
sem eru meiri fjármagnstekjur en
fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpinu á öllu árinu
að því er kemur fram á heimasíðu
Samtaka iðnaðarins. Er því spáð
að fjármagnstekjur Íslendinga
eftir árið geti numið á bilinu 300
til 400 milljörðum króna. Myndi
það skila ríkissjóði 30 til 40 millj-
örðum króna í fjármagnstekju-
skatt sem er umtalsverð aukning
frá árinu í fyrra.
Af tólf liðum hlutfallslegrar
skiptingar skatttekna og trygg-
ingagjalda voru fjármagnstekjur
sjötti stærsti liðurinn í fyrra.
Aðeins einn liður hefur vaxið
meira en fjármagnstekjurnar und-
anfarin fjögur ár: skattar á tekjur
og hagnað lögaðila. Þær skatttekj-
ur námu 8,6 prósentum af heildar-
skatttekjum í fyrra eða 32 millj-
örðum króna og hafa hækkað um
tæplega 69 prósent frá árinu 2003.
Starfsleyfi Lauga-
fisks á Akranesi hefur verið ógilt
af umhverfisráðuneytinu.
Ráðuneytið segist ekki hafa
valdheimildir til að stöðva
starfsemina eins og krafist var í
kæru sautján Akurnesinga.
Ráðuneytið telur að Heilbrigðis-
nefnd Vesturlands hafi ekki gætt
þess að leyfa nágrönnunum að
koma athugasemdum á framfæri
áður en leyfið var veitt. Íbúarnir
hafa þegar sent heilbrigðisnefnd
bréf þar sem segir að ekki séu til
lausnir til að koma í veg fyrir
lyktarmengun frá Laugafiski og
að þeir muni leita réttar síns verði
starfsleyfið endurnýjað.
Starfsleyfi ógilt
af ráðuneytinu
„Samkeppnin er að
mestu farin. Ég myndi giska á að
Fiskisaga væri með 85 til 90 pró-
sent af innanlandsmarkaðnum,“
segir Eiríkur Auðunn Auðunsson,
fisksali í Hófgerði í Kópavogi.
Eiríkur er fyrrverandi starfs-
maður Fiskisögu – sælkeraverslana
með fisk, sem nú skyggja á aðrar
fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir að sú hagkvæmni stærð-
ar sem sóst er eftir með stórum
rekstrareiningum hafi enn ekki
komið fram hjá Fiskisögu. Þar sé
verðið þvert á móti hærra en í
öðrum búðum.
„Fólk er farið að átta sig á þessu
og það skýrir líka söluaukninguna
hérna hjá okkur, um 120 prósent
milli ára,“ segir Eiríkur.
Eiríkur telur að söluaukning í
sinni búð megi ekki síst rekja til
þess að Fiskisaga fari gegn sögu-
legri fiskmenningu Íslendinga.
„Fólk vill ekki borga fyrir huggu-
lega framsetningu þegar það ætlar
að kaupa fisk.“ segir hann. „Fólk
vill ferskt og gott hráefni sem er
unnið á staðnum og persónulega
þjónustu. Það er hins vegar búið að
slíta hjartað úr búðunum með þeim
mönnum sem hurfu á braut þegar
Fiskisaga keypti þá út. Kúnnarnir
segja okkur að þetta sé eins og að
versla í stórmarkaði,“ segir hann.
Gamalreyndur fisksali á Freyju-
götu sagðist einungis vita um fjór-
ar til fimm búðir eftir í bænum,
sem ekki tilheyra Fiskisögu.
Haukur Víðisson, framkvæmda-
stjóri Fiskisögu, segir á móti að
búðirnar séu minnst fimm til sex,
sem séu í samkeppni við tíu versl-
anir þeirra á höfuðborgarsvæðinu.
Hann telur að Fiskisaga sé með um
sjötíu prósent af innanlandsmark-
aði, þegar talinn er með Sjófiskur,
systurfyrirtæki Fiskisögu sem
selur til skóla, mötuneyta og veit-
ingastaða.
„En það er klárlega samkeppni á
þessum markaði í dag. Það er ekki
eins og aðrir séu að deyja út, við
útilokum ekki aðra. Við erum bara
að reyna að lyfta þessum verslun-
um á hærra plan og gera þær að
sælkeraverslunum. Ég held þetta
sé góð þróun. Við erum með mat-
reiðslumenn að vinna vöruna og
það er meiri þjónusta við viðskipta-
vinina. Ungt fólk til dæmis kann að
meta að geta gengið að því,“ segir
hann.
Ein búð allsráðandi
á fiskmarkaðnum
Fiskisaga rekur nú tíu fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu og systurfyrirtækið Sjó-
fiskur selur að auki til margra mötuneyta og veitingastaða. „Samkeppnin er að
mestu farin,“ segir fisksali. „Mjög mikil samþjöppun,“ segja Neytendasamtökin.