Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 70
KEFLAVÍK AKUREYRIÁLFABAKKA S. 482 3007SELFOSSI VIP KNOCKED UP kl. 5 - 8 - 10:50 12 KNOCKED UP kl. 5 - 8 - 10:50 DISTURBIA kl. 8 - 10:30 14 LICENSE TO WED kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 7 ASTRÓPÍÁ kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L RATATOUILLE M/- ENSKU TAL kl. 8 L RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L TRANSFORMERS kl. 5 - 10:10 10 SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 3:45 L KNOCKED UP kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 ASTRÓPÍA kl. 8 - 10 L RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10:20 14 ASTRÓPÍÁ kl. 8 - 10 L RUSH HOUR 3 kl. 6 12 RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:50 L RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 6 L VEÐRAMÓT kl. 8 -10 14 ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 L LICENSE TO WED kl. 10 7 KRINGLUNNI ASTRÓPÍÁ kl. 3:40 - 6:30 - 8:30 -10:30 L LICENSE TO WED kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 7 BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 14. RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 4 LDIGITAL FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA Magnaðasta spennumynd sumarsins MATT DAMON ER JASON BOURNE Ertu að fara að gifta þig? Þá viltu alls ekki lenda í honum!!! Drepfyndin gamanmynd með hinum eina sanna Robin Williams og ungstirninu Mandy Moore. Langmest sótta myndin á Íslandi í dag www.SAMbio.is 575 8900 SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 VEÐRAMÓT kl. 8 - 10.20 KNOCKED UP kl. 5 - 8 - 11 KNOCKED UP LÚXUS kl. 5 - 8 - 11 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 - 6 BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.30 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 6 THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6 RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10.10 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 MIÐASALA Á SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS14 14 14 12 14 14 KNOCKED UP kl. 5.45 - 8 - 10.20 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6 DISTURBIA kl. 8 BOURNE ULTIMATUM kl. 10.10 14 14 14 14 VEÐRAMÓT kl. 8 - 10.20 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6 - 8 - 10 SURFS UP ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10 ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10 BOURNE ULTIMATUM kl. 5.30 - 8 - 10.30 SICKO með íslensku m texta AWAY FROM HER MIÐASALA OG DAGSKRÁ Á MIDI.IS !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu Áhrifarík og mögnuð ný íslensk stórmynd sem fjallar á óvæginn hátt um sifjaspell, ofbeldi og mannshvörf! Missið ekki af þessari! Sagan sem mátti ekki segja. KL. 5.30 Away From Her KL. 8 Sicko KL. 10.30 Sicko / Shortbus VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 EVENING kl.5.30 - 8 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl.6 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 8 - 10 - bara lúxus Sími: 553 2075 KNOCKED UP kl. 3, 6 og 9 14 DISTURBIA kl. 5.45, 8 og 10.20 14 BRETTIN UPP íslenskt tal kl. 4 L THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5.45, 8 og 10.20 14 RATATOUILLE íslenskt tal kl. 3.35 L LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Valgeir Sigurðsson er þekktastur fyrir vinnu sína sem upptökumað- ur og upptökustjóri. Hann hefur mikið unnið með Björk, en líka Bonnie Prince Billy, CocoRosie, múm, Sigur Rós, Slowblow, Sea- bear, Maps og mörgum fleiri. Áður en Valgeir sneri sér að mestu að upptökuvinnu í hljóðverinu sínu, Gróðurhúsinu, var hann meðlimur í nokkrum hljómsveitum, þar á meðal Unun og þeirri ágætu sveit Birthmark. Það eru tíu lög á Ekvilíbríum. Meirihluti þeirra er án söngs, en Bonnie Prince Billy syngur tvö, Dawn McCarthy eitt og J. Walker eitt. Margir hljóðfæraleikarar koma við sögu, þ.á m. Nico Muhly, Una Sveinbjarnardóttir, Hildur Guðnadóttir, Samuli Kosminen og Óskar Guðjónsson. Orðið Ekvi- líbríum merkir jafnvægi og það hæfir plötunni vel – tónlistin er í rólegum, seiðandi og umleikandi stíl. Grunnkrafan sem maður gerir til sólóplötu með upptökustjóra umfram aðrar plötur er að hljóm- urinn sé flottur og hljóðheimurinn spennandi. Og Valgeir veldur ekki vonbrigðum. Hljómurinn er brak- andi ferskur og hljóðheimurinn bæði fallegur og óvenjulegur. Tón- listin er samtal hins nýja og þess gamla. Hún er forrituð að hluta, en hefðbundin hljóðfæri; strengir, gítarar, hljómborð, mandólín, saxó- fónn og trommur, eru líka áberandi. Lögin eru nokkuð fjölbreytt. Skröltandi taktur einkennir upp- hafslagið, A Symmetry, en í lokalaginu, Lungs for Merrilee, er enginn taktur, bara hægt stígandi hljóðveggur sem nuddar þægilega á manni hlustirnar. Bæði þessi lög eru á meðal bestu laga plötunnar, en Winter Sleep sem Faun Fables- söngkonan Dawn McCarthy syngur og Bonnie Prince Billy- lögin, Evolution of Waters og Kin, eru líka mjög flott. Ekvilíbríum á margt sameigin- legt með tónlist sumra þeirra listamanna sem Valgeir hefur unnið með, t.d. Björk og múm. Platan hefur samt alveg sinn karakter og hefur mjög sterkan heildarsvip. Á heildina litið er þessi fyrsta sólóplata Valgeirs Sigurðssonar vel heppnuð og sannfærandi. Veisla fyrir hlustirnar sem allir áhugamenn um framsækna og metnaðarfulla popptónlist ættu að kynna sér. Veisla fyrir hlustirnar Hljómsveitin Soundspell hefur gefið út sína fyrstu plötu, An Ode to the Umbrella, hjá útgáfufyrir- tækinu Tudda. Sveitin er skipuð fimm piltum sem eru aðeins sex- tán til átján ára. Upptökustjórar plötunnar eru hinn bandaríski Ronan Chris Murphy og Albert Ásvaldsson, meðlimur Canora. Chris Murphy, sem hefur tekið upp plötur með King Crimson, var einnig á tökk- unum á síðustu plötu Canora. „Það var frábært að vinna með honum. Þetta er dýrlegur maður,“ segir Alexander Briem, söngvari Soundspell, um samstarfið með Chris Murphy. Sveitin skrifaði undir plötusamning hjá Tudda á síðasta ári aðeins degi eftir að Albert hafði heyrt demó-upptöku þeirra. Tónlist Soundspell er bæði ljúfsár og melódísk og svipar nokkuð til þess sem breskar sveit- ir á borð við Coldplay og Muse hafa sent frá sér í gegnum árin. „Við vorum staðráðnir í því að leika okkur með þetta Britpop- form. Við höfum reynt að halda því en þetta getur líka farið aðrar leiðir hjá okkur,“ segir Alexand- er. Útgáfutónleikar verða haldnir í Austurbæ í kvöld. Hefjast þeir klukkan 21.00 og verður húsið opnað klukkutíma fyrr. Miðaverð er 1.500 krónur en 1.000 í forsölu í Músík og myndum. Ljúfsárar melódíur Soundspell Chris Cornell kom til lands- ins í gær en rokkarinn úr Soundgarden og Audioslave heldur tónleika í Laugar- dalshöll á morgun. Cornell hyggst verja góðum tíma með aðdáendum sínum og ætlar að árita í Skífunni á Laugaveginum í dag. „Það er náttúrlega magnað að hann skuli ætla að gefa sér tíma í þetta og ef mig misminnir ekki er þetta í fyrsta skipti sem tónlistar- maður af þessari stærðargráðu gerir svona,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Concert sem heldur tónleikana. Reikna má með miklum mannfjölda til að berja rokkgoðið augum og segir Ísleifur að bæði verði bætt við starfsfólki og öryggisgæsla aukin til muna. Cornell ætlar að sjá til þess að aðdáendur hans fái sitthvað fyrir sinn snúð því reiknað er með að hann spili í rúma tvo klukkutíma en engin upphitunarhljómsveit verður á undan kappanum. Áhorf- endur verða því að vera ansi stundvísir ef þeir ætla sér að drekka rokkvökva Cornell frá fyrstu mínútu. Í dag klukkan 16 áritar Cornell svo plötur sínar og annan varning í Skífunni á Lauga- veginum. En þrátt fyrir hörkulegt útlit og rokkaða framkomu verður ekki annað séð en að Cornell hugsi vel um mataræðið og heils- una. Á netinu er að finna upplýs- ingar um hvaða kröfur Cornell setur fyrir búningsherbergi sín, svokallaðan „rider“. Þar má meðal annars sjá að brennivín og bjór eru illa séðir hlutir. Ávextir og grænmeti eru hins vegar vel þegnir og þar eru tómatar og avó- kadó ofarlega á lista. Hvað matar- æðið varðar er kjúklingur og fiskur efst á óskalistanum en þó er tekið fram að fiskurinn megi ekki vera eldisfiskur heldur eigi að koma úr sínu eðlilega umhverfi. Og þá er því sérstak- lega beint til tónleikahaldara að þeir hafi fjölbreytta fæðu á borð- stólum og að hljómsveitin sé ekki par hrifin af flatbökum og öðrum skyndibita en eins og margir muna var annað uppi á teningnum þegar rapparinn Snoop Dogg kom til landsins, hann vildi nánast eingöngu djúpsteikta kjúklinga frá KFC.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.