Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 45
stórum sýningarpöllum sem eru í höfuðstöðvum Ilse Jacobsen fyrir framan hundrað boðsgesti. Við höfðum unnið baki brotnu við að undirbúa sýninguna, útlitið í heild sinni með tónlist og öllu tilheyrandi. Góð vinkona mín, Guðbjörg Huldís, kom frá Íslandi til að farða módel- in. Ég treysti engum nema henni til þess. Á svona degi er allt á fullu bakvið tjöldin og við biðum spenntar eftir viðbrögðunum. Inn gengu níu módel og sýndu yfir 50 sett af fötum. Á 25 mínútum var afrakstur hálfsárs vinnu sýndur. Viðbrögðin voru rosalega góð og skálað var í kampavíni.“ Fyrir sýninguna í Øxnehallen sendir hvert fatamerki inn fjögur sett af fötum og svo sjá stílistar sýn- ingarinnar um að velja það úr sem þeim þykir flottast. Helga segir að það sé mikill fengur í því að vera valinn en stílistarnir völdu tvö sett frá Ilse. Eftir sýninguna fengu þær ákaflega jákvæð viðbrögð og mikla umfjöllun í dönsku pressunni. Helga er frumkvöðull þegar kemur að eigin klæðaburði. Hún á fjöldann allan af fallegum kjólum og er óhrædd við að skarta litríkum og mynstruðum fötum. „Ég get ekkert gert að þessu, hef alltaf verið svona. Ég elska hönnuði sem kunna að blanda litum fallega saman. Það má kannski segja að smekkurinn minn sé svolítið „sætur“ með „baby-doll“ ívafi. Uppáhaldshönnuðurinn minn hefur verið Marc Jacobs. Það sem ég fíla svo vel við hann er hvað fötin hans eru klæðileg, ekki skúlptúrar sem erfitt er að klæðast.“ Verslanir eru að fyllast af hlýleg- um og notalegum fatnaði. Þegar Helga er spurð út í hausttískuna segir hún að þetta verði glamúr- veturinn mikli. Það verði mikið um latexáferð á fötum, lakkáferð á skóm og beltum og pallíetturnar verði ekki hafðar ofan í skúffu. „Blár litur verður líka áberandi í vetur. Það er mjög gaman að því enda er langt síðan hann hefur verið inni. Og svo verður allt svart, svart í svart. „Black is the new black“ stóð á auglýsingaskiltum í Kaupmannahöfn um það leyti sem tískuvikan var í hámarki. Hvað snið varðar þá er helsta nýjungin hvað mittislínan hefur hækkað mikið, er nánast komin upp að brjósti.“ Hvað um öll þessi víðu snið, hvernig á að nota þau? „Það þarf að nota vítt með þröngu. Það gengur ekki að vera í víðu frá toppi til táar. Það er til dæmis mjög sniðugt að nota belti við víðu fötin til að forma þau betur.“ Klæða Danir sig öðruvísi en Íslendingar? „Já, ég myndi segja það. Danir eru aðeins afslappaðri, þeir eru ekki eins uppstrílaðir og Íslending- ar. Held það sé líka af því þeir hjóla svo mikið og svo er hippa- og bóhem-bragur á þjóðinni. Þetta endurspeglast mikið í daskri hönn- un.“ Þegar Helga er spurð út í verstu mistök sem fólk gerir í klæðaburði hugsar hún sig um í smá stund áður en hún svarar. „Mér finnst hræðilega ljótt þegar fólk er ofhlaðið glingri, mér finnst fallegra að bera fáa en veglega aukahluti.“ Þegar Helga er spurð út í Kaup- mannhafnarlífið játar hún því að lifa öðruvísi lífi þar en á Íslandi. „Kaupmannahöfn er æðisleg. Það er miklu meira í boði í fata- bransanum og menningarlífið er mun blómlegra. Það er sagt að Kaupmannahöfn verði fimmta tískuborgin á eftir New York, París, London og Mílanó. Því trúi ég alveg. Tískuvikurnar hérna eru orðnar svo stórar og fara stækk- andi. Það er mjög gaman að taka þátt í þessu. Hér eru tækifæri fyrir fólk með metnað. Íslendingar eru líka mjög áberandi hérna, kaupandi upp fyrirtæki og það er gaman. Einu sinni var ekki borin virðing fyrir Íslendingum. Dönum fannst bara að þeir kæmu hingað til að lifa á kerfinu en það hefur heldur betur breyst á síðustu árum og í dag líta þeir upp til Íslendinganna. Þeir tala um Íslendinga sem duglegt fólk sem þorir.“ R.O.O.M. Nørregade 12 1165 Kaupmannahöfn www.room.dk Höll fagurkerans, hátt til lofts og vítt til veggja. Í versluninni eru vörur frá Habitat, Bestlite og Designers Guild og því auðvelt að ofhita platínukortið. FN.92 Larsbjørnstræde 6 1454 Kaupmannahöfn www.fn92vintage.com Ævintýraheimur „vintage“-fatnaðar. Verslunin er í sérlegu uppáhaldi hjá danska tískublaðinu Eurowom- an sem matar danskar skvísur á gömlu góssi. Það sem er sérstakt við búðina er hvað vörurnar eru í miklum háklassa. NØ/ Lea Nørtved Pedersen Larsbjørnstræde 22 1454 Kaupmannahöfn Ef þig langar í skrautlega púða úr smiðju Leu, plastdúka, skraut á ísskápinn eða bara hangandi alheimshnött þá er þetta rétta verslunin. Urban Living Frederiksborggade 50 1360 Kaupmannahöfn www.urban–living.dk Hér er skandinavísk hönnun í hávegum höfð, hægt að kaupa falleg húsgögn í bland við bolla, barnavagna og hillur. The Moood Galleri K Pilestræde 12 B 1112 Kaupmannahöfn www.themoood.com Mögnuð verslun sem selur allt frá heitu kakói upp í Kenzo-ullarteppi. Í versluninni er líka snyrtistofa og frábært kaffihús. Þetta er verslun fyrir þá sem nenna að rogast með allt of þunga tösku í handfarangrinum. Í sama verslunarklasa er líka Malene Birger, Day og H&M. Fisk Sankt Peders Stræde 1 1453 Kaupmannahöfn www.noedhjaelp.dk/fisk Í þessari verslun er hægt að kaupa endurunnin föt, lesa bækur, fá sér kaffi og dást að öllum gömlu fallegu handmáluðu húsgögnunum sem eru ekki til sölu heldur hluti af innréttingun- um. Notabene Kronprinsensgade 10 1114 Kaupmannahöfn Það er hættulegt að fara inn í þessa verslun nema vera með nokkra fimm hundruð króna (danska) seðla í vasanum. Um það bil fallegustu skór í alheiminum eða allavega í þessum hluta borgarinnar. Í versluninni fást líka Marc Jacobs- skór en þeir eru allt annað en ljótir! KEYPT Í KÖBEN! 7. SEPTEMBER 2007 | SIRKUS | BLS. 9 Verðdæmi VW Polo, nýskráður: 18.6.2004 Ekinn 57 þús. km - Verð 990.000 kr. aðeins16.162 kr. á mán. í 72 mánuði. Verðdæmi Skoda Fabia, nýskráður: 28.1.2004 Ekinn 32 þús. km - Verð 950.000 kr. aðeins15.531 kr. á mán. í 72 mánuði. Nú býður Bílaþing HEKLU nokkra vel valda bíla með sumar- og vetrardekkjum á einstökum kjörum. Viðskiptavinir munu að auki fá glæsilega Hewlett Packard fartölvu. HP Pavilion dv6331 Örgjörvi: AMD Turion 64 X2 1,8 GHz (dual core) Vinnsluminni: 2 GB Skjár: 15,4" WXGA Harður diskur: 160GB SATA Geisladrif: Lightscribe dual layer DVD skrifari Minniskortalesari: 5 í 1 Vefmyndavél og fjarstýring Skjástýring: Nvidia GeForce Go 7200, allt að 256 MB Stýrikerfi: Microsoft Windows Vista Home Premium Glæsilegur hugbúnaðarpakki 2ja ára ábyrgð frá Opnum kerfum Listaverð: 119.900 kr. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA - 0 7 -1 2 0 5 Númer eitt í notuðum bílum 100% lán Laugavegur 174 | Klettháls 11 | Sími 590 5040 | Opið mánudaga–föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16 FRÁ 15.500 kr. Á MÁNUÐI BÍLL + TÖLVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.