Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 30
BLS. 2 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007
Lífið brosir við Þórunni Lárusdóttur leikkonu og eiginmanni hennar, Snorra Petersen viðskiptafræð-ingi. Í fyrra eignuðust þau sitt fyrsta barn, soninn
Kolbein Lárus, og í sumar gengu þau í hjónaband. Á dögun-
um fjárfestu þau í einbýlishúsi við Faxaskjól. Húsið er
sérlega glæsilegt, um 230 fermetrar og á þremur hæðum.
Húsið stendur við sjóinn og eru Þórunn og Snorri með
fallegt útsýni út á hafið og geta jafnvel fylgst með lífinu á
Bessastöðum þegar skyggni er gott. Það mun því ekki væsa
um litlu fjölskylduna. Húsið stendur á besta stað en stutt er
út á Gróttu, í Vesturbæjarlaugina og Melabúðina. Þórunn
segist vera mjög hrifin af Vesturbænum.
„Við vorum búin að leita lengi að húsi og vorum glöð
þegar við fundum þetta. Það er mjög gott að búa í
Vesturbænum,“ segir Þórunn en þau hjónin bjuggu áður
við Sörlaskjól.
Það er nóg að gera hjá Þórunni. Um þessar
mundir er hún að æfa barnaleikritið Skilaboða-
skjóðuna sem er í leikstjórn Gunnars Helgasonar.
Leikritið verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um
mánaðamótin október/nóvember. Í Skilaboða-
skjóðunni fer Þórunn með hlutverk vondu
stjúpunnar.
„Ég hef leikið nornir áður, það er
svo skemmtilegt að leika vondu
kerlinguna. Þá hefur maður úr
svo miklu að moða enda er
þetta svo langt frá manni,“
segir hún og hlær. „Inn-
blásturinn fyrir hlutverkið
kemur til mín á hverjum
degi.“martamaria@frettabladid.is
ÞÓRUNN LÁRUSDÓTTIR LEIKKONA KEYPTI EINBÝLISHÚS Á 75 MILLJÓNIR
FANN
DRAUMAHÚSIÐ
ALSÆL Þórunn Lárusdóttir er himinlifandi
með nýja húsið.
Heyrst hefur
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjórn Marta María Jónasdóttir
martamaria@frettabladid.is
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@frettabladid.is
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
Sölustjóri Bergur Hjaltested
512 5466 bergurh@365.is
Maggi á sendibílnum
Tónlistarmaðurinn Magnús Guðmundsson
sem áður var meðlimur í fjöllistahópnum
Gus Gus hefur söðlað um og hafið störf
sem sendibílstjóri. Maggi Legó, eða
Herb Legowitz eins og hann er stundum
kallaður, sagði skilið við Gus Gus fyrir þó
nokkru síðan og hefur lítið látið fyrir sér
fara síðan þá. Magnús þykir nokkuð
liðtækur í flutningunum og tekur sig vel
út undir stýri á sendiferðabílnum.
Alltaf í ræktinni
Habitatparið Jón Arnar og Ingibjörg hafa
sjaldan litið betur út. Margir spyrja sig
hver galdurinn sé en þeir sem hafa verið
á ferð í World Class í Laugum að morgni
til vita svarið. Þau eru nefnilega komin í
einkaþjálfun hjá sjálfum Arnari Grant.
Hann lætur þau þræla fyrir hverja
krónu og hvetur þau
áfram meðan
þau lyfta
lóðum og
hlaupa á
brett-
inu.
Róbert
Wessman,
forstjóri
Actavis,
hefur staðið í
ströngu við
að byggja
við
einbýlishús
sitt í
Láglandi 10 í
Fossvogin-
um. Nú er
viðbyggingin
tilbúin og búið er að einangra húsið með
steinull. Eins og húsið lítur út í dag er
eins og listamaðurinn Christo hafi komist
í það en húsið líkist meira risastórum
pappakassa en húsi.
Hús eða pappakassi?
L óa Pind Aldísardóttir frétta-kona hefur geyst fram á ritvöll-inn og kemur hennar fyrsta
skáldsaga út fyrir jólin. Bókin heitir
Sautjándinn og fjallar um fjórar
konur.
„Þetta er hvorki glæpasaga ná ást-
arsaga, þetta er saga um vináttu,
pólitík og margbreytileika manneskj-
unnar,“ segir Lóa.
Er aðalpersónan fréttamaður?
„Nei, það er enginn fréttamaður í
persónugalleríinu. Ég er búin að
starfa við fjölmiðla í tólf ár og sú
reynsla nýtist auðvitað. Aðalpersónan
í bókinni er fertugur lögfræðingur og
fjögurra barna móðir en í bókinni
koma vinkonur hennar þrjár líka við
sögu, almannatengillinn, auð-
kýfingurinn og skrifstofudaman.“
Er einhver „Sex and the city“-
fílingur í bókinni?
„Nei, vottar ekki fyrir honum. Mig
langaði að skrifa bók um það hvernig
Ísland gæti orðið ef …“
Lóa er búin að sitja við skriftir í
fjögur ár. Hún segist hafa byrjað á
einni hugmynd sem hafi svo rang-
hvolfast.
„Ég byrjaði ekki á neinu plotti held-
ur spratt bókin fram af tilfinningum
og óljósum hugmyndum,“ segir hún.
Eiginmaður Lóu, ljóðskáldið Sigfús
Bjartmarsson, hefur gefið út hjá bóka-
útgáfunni Bjarti en bók Lóu kemur út
hjá Sölku.
„Ég vildi ekki fara til sama forlags
og maðurinn minn er hjá, vildi gera
þetta á mínum eigin forsendum. Ég
lagði ekki í þennan risa sem Eddan
var. Ég er mjög ánægð að það skuli
vera til forlag sem er í eigu kvenna og
því valdi ég Sölkuna.“
martamaria@frettabladid.is
FRÉTTAKONAN LÓA PIND ALDÍSARDÓTTIR ÞEYTIST FRAM Á RITVÖLLINN
LÓA PIND ALDÍSARDÓTTIR
THE CITY“ FÍLINGUR
ENGINN ,,SEX AND
Þ að er fullt af húðflúruðum rokkurum í póstinum,“ segir
Bjarni Sigurðarson, gítarleikari í
rokkhljómsveitinni Mínus, sem
hefur það aukastarf að bera út
póstinn í Norðurmýrinni. „Ég er
búinn að vera í þessu aukalega
síðustu tvö ár en fæ frí ef ég þarf
að fara í tónleikaferðalög og
svona. Það er gott að hafa
eitthvað öruggt í bakhöndinni og
svo spillir það ekki fyrir að ég get
hlustað á tónlist í friði frá öllu
sem er ákveðinn kostur fyrir
tónlistarmann.“
Bjarni bréfberi segist á þessum
tveimur árum vera að vissu leyti
orðinn háður starfinu. „Ég er
orðinn háður göngutúrnum sem
fylgir starfinu. Hann er eins og
hvert annað fíkniefni,“ segir Bjarni
bréfberi sem seinn er ekki á fætur.
Stekkur fram úr rúminu klukkan
sjö og drífur verkið af. „Ég er nú
oftast búinn að þessu um hádegi,“
segir Bjarni sem býst við að hætta
í bréfberastarfinu þegar æfingar á
söngleiknum Jesus Christ
Superstar hefjast en þar sér
Bjarni um tónlistina ásamt félaga
sínum, Bjössa úr Mínus.
Rokkari í
póstburði
BJARNI BRÉFBERI Vinnur við að bera
út póst á milli þess sem hann leikur
á gítarinn með rokksveitinni Mínus.
MYND/GVA