Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 68
Trommuleikarinn Gunnlaugur
Briem farinn til Noregs þar sem
hann heldur námskeið fyrir
norska trommuleikara í sam-
vinnu við Listaskólann í
Stafangri.
Gulli hefur áður haldið
fyrirlestra um trommuleik í
Noregi en einnig í Asíu árið 2005
í samvinnu við breska hljóðfæra-
framleiðandann Premier.
Hann ætlar á námskeiðinu að
leika nokkur þekkt lög sem hann
hefur útbúið sérstaklega fyrir
Norðmennina og tala um trommu-
settið og hlutverk þess. Til
stendur að þessi dagskrá verði
flutt á Íslandi á haustmánuðum.
Gulli Briem
til Noregs
Hljómsveitin Franz Ferdinand,
sem spilar á Nasa 14. september,
heldur óvænta aukatónleika á
skemmtistaðnum Organ kvöldið
eftir. Sveitin óskaði sjálf eftir því
að halda aukatónleika á enn minni
stað í Reykjavík fyrir föruneyti
sitt og aðdáendur. Verður tak-
markað magn miða sett í sölu.
Franz Ferdinand ætlar að kynna
efni af væntanlegri plötu sinni á
tónleikum sínum hér á landi. Mun
Jakobínarína sjá um upphitun á
Nasa, en uppselt varð á þá tón-
leika fyrir löngu.
Sveitin sló í gegn með frum-
burði sínum sem hafði að geyma
lög á borð við Take Me Out,
Michael og This Fire. Ári síðar gaf
hún út plötuna You Could Have It
So Much Better sem fékk einnig
mjög góðar viðtökur. Miðasala á
tónleikana á Organ hefst laugar-
daginn 8. september.
Óvæntir tónleikar
Íslenski tenórinn Garðar
Thor Cortes er einn fimm
söngvara sem gætu erft
vinsældir Pavarottis.
Greinahöfundurinn Adam
Sweeting hjá Telegraph í Bret-
landi veltir því fyrir sér hverjir
muni nýta sér skarðið sem hafi
myndast við fráfall Pavarottis,
þessa mesta tenórs fyrr og síðar,
og nefnir Garðar til sögunnar auk
fjögurra annarra.
Garðar Thor var steinsofandi
þegar Fréttablaðið vakti hann en
hann var nýkominn til eyjunnar
Jersey á Ermarsundi þar sem
hann á að syngja á styrktar-
tónleikum Kiri Te Kanawa í kvöld.
Honum þótti óneitanlega mikill
heiður að vera nefndur í sömu
andrá og ítalski hetjutenórinn en
taldi þetta ótímabærar vanga-
veltur. „Röddin hans var einstök
og það verður erfitt fyrir nokkurn
mann að feta í fótspor hans,“
segir Garðar. „Ég var á æfingu
áðan með Kiri og það var fátt
annað rætt en andlát Pavarottis,“
bætir Garðar við.
Sweeting nefnir einnig Ítalann
Andrea Bocelli sem lengi hafi
dreymt um að verða „alvöru“
óperusöngvari en gagnrýnendur
hafi skotið þær hugmyndir í kaf
og sagt tenórnum að halda sig við
það sem hann geri best, að syngja
léttsígild og poppuð lög. Næstur á
lista er Alfie Boe og á eftir honum
er Russell Watson. Þá nefnir
Sweeting einnig Paul Potts,
lagerstarfsmanninn sem sló
eftirminnilega í gegn í Britain‘s
Got Talent.