Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 58
Tilkynningar um merkisatburði má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Hress heilsurækt er tuttugu ára um þessar mundir og í tilefni af því verð- ur boðið til glæsilegrar afmælisveislu í húsakynnum stöðvarinnar að Dals- hrauni 11 í Hafnarfirði á morgun. „Við ætlum að fagna þessum áfanga með því að bjóða gömlum og nýjum viðskiptavinum í boð sem verður haldið hérna frá klukkan 18 til 20 á morgun,“ segir eigandinn og framkvæmdastjórinn, Linda Hilmars- dóttir, sem bætir við að þar verði ávextir og grænmeti í fyrirrúmi ásamt eins hollu víni og völ er á. „Við ætlum að hittast á sama stað og venjulega en sleppum svitagallanum að þessu sinni,“ segir Linda og hlær. „Spjalla saman og rifja upp gamla tíma. Það hefur náttúrlega gengið á ýmsu síðastliðin tuttugu ár.“ Linda tók við rekstri Hress fyrir fimmtán árum en þá var stöðin í eigu Önnu Haraldsdóttur. Athygli vekur að líkt og margar líkamsræktarstöðvar á Íslandi hefur Hress verið í eigu kvenna, en Linda rekur það til níunda áratugar- ins þegar þolfimiæði tröllreið öllu. „Þetta byrjaði allt með þolfimi þegar Jane Fonda kynnti hana á sínum tíma. Við byrjuðum margar með tíma í ein- hverjum litlum sölum. Síðan hlóðst utan á þetta, þannig að úr urðu fyrir- tæki sem voru lítil fyrir tuttugu árum en hafa vaxið og dafnað þar sem sífellt fleiri leita eftir heilsurækt af þessu tagi.“ Ýmsar breytingar hafa átt sér stað á starfsemi Hress síðan þá, ekki síður en á líkamsrækt almennt á Íslandi. Til marks um það bendir Linda á húsnæðis- skipti stöðvarinnar, sem var flutt úr Bæjarhrauni 4 í Dalshraun 11 fyrir tíu árum, stækkun stöðvarinnar og þá stöðugu endurnýjun sem á sér stað á tímum. „Það er alltaf að koma eitthvað nýtt og skemmtilegt og við teljum okkur vera þar í fararbroddi. Við erum með öfluga tímatöflu, sem samanstendur af hjólatímum, body steps, body pump, body combat og fleiru og fylgjum svo- kölluðu Les Mills-æfingakerfi, sem er stundað af fjórum milljónum manna í viku hverri á 11.000 stöðvum um allan heim. Á þriggja mánaða fresti fáum við nýja tímatöflu senda að utan. Hér fer fram kennsla í þessu kerfi, sem er ætlað kennurunum, rétt fyrir boðið.“ Þá er verið að gera umtalsverðar endurbætur á stöðinni sjálfri, þar sem tækjum verður fjölgað, móttaka stækkuð og lítið og notalegt kaffihús opnað. Linda vonast þó til að það verði ekki einu breytingarnar, þar sem Hress hefur sótt fast eftir rekstri á nýrri sundlaug og heilsurækt á völlunum í Hafnarfirði. „Ég vonast þannig til að bærinn verðlauni okkur fyrir að hafa staðið fyrir heilsueflingu Hafnfirðinga síðustu tuttugu ár,“ segir hún. Þrátt fyrir að ekki hafi náðst að ljúka ofangreindum endurbótum segir Linda aldrei hafa komið til greina að fresta afmælinu. „Þetta átti að vera tilbúið um helgina, en tekur lengri tíma en maður ætlaði. Það verður bara fínt að breyta bekkpressunni í kokkteilstól. Annars fögnum við á hverjum degi að hafa verið til í tuttugu ár.“ Tupac Shakur skotinn „Vel á minnst þá hrósa ég fólki með því að kalla það geðveikt. Manson er sannarlega geðveikur. Vonandi er ég það líka.“ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Lilju Sigrúnar Óskarsdóttur sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, miðvikudaginn 22. ágúst. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Auðbjörg Eggertsdóttir Sigurður Eggertsson Klemenz Eggertsson Erla Stringer og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, sambýliskona, amma og langamma, Anna Margrét Tryggvadóttir Brautarholti, Blönduósi, lést á Heilbrigðisstofnun Blönduósi föstudaginn 31. ágúst. Jarðsungið verður frá Blönduóskirkju laugardaginn 15. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda Þóra, Kolbrún, Árni og Ragnar. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Hávarður Hálfdánarson skipasmiður, áður til heimilis að Seljalandsvegi 79, Ísafirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 4. september. Útför verður auglýst síðar. Þorleifur Hávarðarson Guðný Þorsteinsdóttir Markús H. Hávarðarson Svala Stefánsdóttir Gróa Hávarðardóttir Guðmundur Gunnarsson Kristjana G. Hávarðardóttir Ásgeir Sigurðsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. 70 ára afmæli Kristinn Kristmundsson fyrrverandi skólameistari á Laugarvatni verður sjötugur á morgun. Af því tilefni ætlar hann að taka á móti gestum í FRAM-heimilinu við Safamýri í Reykjavík í kvöld, 7. september frá klukkan 20 og vonast til að sjá sem allra flesta. Kristinn biðst undan afmælisg jöfum en leyfi r sér að benda á nýstofnaðan sjóð til styrktar efnilegum nemendum við Menntaskólann að Laugarvatni. Kennitala sjóðsins er 630807-1070, banka- og reikningsnúmer 0120-05-570537. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Ingunnar S. Jónsdóttur áður til heimilis að Sléttuvegi 13. Sérstakar þakkir færum við til Hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða fyrir ómetanlega alúð og umönnun. Fyrir hönd aðstandenda Jóna Gróa Sigurðardóttir, Guðmundur Jónsson, Mattína Sigurðardóttir og Sigurjón Kristjánsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erna Halldórsdóttir Kolbeins kennari, síðast til heimilis að Skjóli, lést að morgni 5. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Halldór Torfason Védís Stefánsdóttir Ragnheiður Torfadóttir Gunnar Ingi Hjartarson Lára Torfadóttir Hafsteinn Pálsson Ásthildur Gyða Torfadóttir Kristberg Tómasson Erna Torfadóttir Geir Sæmundsson Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jóhann Jón Þorvaldsson húsgagnasmiður, Furugerði 1, áður til heimilis að Geitlandi 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. september kl. 15.00. Selma Jóhannsdóttir Magnús Jóhannsson Elín Guðmundsdóttir afa- og langafabörn. Okkar hjartkæra Anna Einarsdóttir kjólameistari Miðholti 3, Mosfellsbæ, lést 27. ágúst sl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 7. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á ABC barnahjálp. Ellen Einarsdóttir Áslaug Einarsdóttir Sigríður Einarsdóttir María Einarsdóttir Alda Sigurðardóttir 80 ára Ragnar G. Jónasson fyrrv. slökkviliðsmaður frá Kefl avík, varð áttræður 5. september sl. Af því tilefni ætlar hann að bregða undir sig betri fætinum og halda út á land til að fagna með stórfjölskyldu sinni um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.