Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Ljósmyndarinn Áslaug Snorra-
dóttir varð fyrir þeirri ógæfu að
aðalvinnutæki hennar, myndavél
af gerðinni Fuji GX 680 var stolið
í síðasta mánuði. „Hún var í stórri
svartri ferðatösku á hjólum, sem
hvarf af heimili mínu á Dalbraut
þrjú um miðjan ágúst. Í töskunni
er medium-format filmumynda-
vél, fjórar linsur og fylgihlutir,“
útskýrði Áslaug, sem segir miss-
inn mikinn. „Þetta er vinnutæki
mitt til síðustu tólf ára. Það eru
ekki til nema þrjár svona vélar á
Íslandi í dag,“ sagði hún.
Áslaug segir vélina vera ómetan-
lega með öllu. „Hún er tólf ára
gömul, þannig að þetta er ekki
heldur mjög spennandi þýfi, og
svo er ég tilfinningalega tengd
henni líka. Þess vegna
langar mig svo ofboðslega
að fá hana aftur og býð
mjög góð fundarlaun,“
sagði Áslaug, sem nú
vinnur að gerð mat-
reiðslubókar ásamt
Rúnari Marvinssyni.
Vélin hvarf á
sama tíma og
framkvæmdir
stóðu yfir á heim-
ili Áslaugar, en
hún var sjálf í
útlöndum.
„Myndavélin er ekki
tryggð, af því að húsið
var allt galopið á
meðan á vinnunni
stóð. Ég held að
þjófar ímyndi sér að þetta sé allt í
lagi, af því að það sé allt saman
tryggt,“ sagði Áslaug. „Þessi
græja fæst ekki einu sinni
lengur. Það er til ein í
Taívan, svo ég þyrfti að
fara þangað til að kaupa
nýja,“ bætti hún við.
Hægt er að hafa
samband við Áslaugu í
síma 862 9098 eða á lupina@
internet.is. Hún heitir
veglegum fundarlaunum
fyrir gripinn góða.
Myndavél Áslaugar stolið
„Við vorum ágætis mátar þótt við
stæðum aldrei á sviðinu saman.
Við skiptumst á sýningum um
allan heim og hann var mikill lista-
maður,“ segir Kristján Jóhannsson
stórtenór, sem heldur tónleika á
Akureyri nú á sunnudaginn. Eins
og fram kom í fjölmiðlum í gær
andaðist hetjutenórinn Luciano
Pavarotti eftir harða baráttu við
krabbamein og Kristján dregur
ekki dul á virðingu sína fyrir
honum, segir hann hafa verið kon-
ung söngvaranna.
„Pavarotti söng fram á síðasta
dag og dó sem tenór. Þetta var
mikill listamaður en eins og svo
oft hjá svona snillingum hélt hann
sig mikið til hlés. En þetta var
ágætis maður og fráfall hans gerir
það að verkum að ég mun beita
mér enn frekar á sunnudaginn,“
útskýrir Kristján. Hann mun til-
einka starfsbróður sínum eitt lag
á tónleikunum og heiðra þannig
minningu hans.
Kristján er kominn heim í heið-
ardalinn, norður á Akureyri, og
þar hefur honum verið tekið með
kostum og kynjum. Sveitungar
tenórsins stöðva hann úti á götu til
að ræða málin og þá þótti honum
vænt um þegar afgreiðslu-
maður í fataverslun bað
hann um eiginhandarárit-
un eftir að hann hafði
keypt pils. „Konunni minni
finnst ég alltaf breytast
þegar ég kem heim. En ég
veit ekkert hvort það er til
góðs eða ills,“ segir Kristján
og skellir upp úr. Hann var þá
staddur við Pollinn og horfði á
lítinn bát sigla meðfram bænum.
„Ég væri sko alveg til í að vera
þarna um borð,“ bætir óperu-
söngvarinn við.
Kristján var nýkominn af
æfingu með stjórnanda Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands, Guð-
mundi Óla Gunnarssyni, og píanó-
leikaranum Daníel Þorsteinssyni.
Þótt fráfall Pavarotti setji ein-
hvern svip á tónleikana ætlar
Kristján þó helst að syngja til
móður sinnar, Fanneyjar Oddgeirs-
dóttur, sem verður níræð 14.
september næstkomandi. „Ég er
virkilega spenntur og mér finnst
ég vera í góðu formi. Vonandi get
ég gefið áheyrendum góða kvöld-
stund,“ segir Kristján. Með honum
á sviðinu verður gríska sópr-
ansöngkonan Sofiu Mitropoulos
og einn fyrsti nemandi Kristjáns,
ítalski barítóninn Corado
Alessandro Cappitt.
„Við ætlum nú að haga þessu eftir veðri og
vindum en auðvitað erum við með okkar
óskalista þótt ég vilji nú síður gefa hann
upp,“ segir Örn Árnason, einn forsprakka
hinnar sívinsælu Spaugstofu. Nokkrar
breytingar verða hjá fimmmenningunum því
þeir hafa í hyggju að bjóða úrvali góðra gesta
að taka þátt í að skrifa og leika í þáttaröð
vetrarins. Örn vildi ómögulega gefa upp
hverjir þetta væru en bætti því við að þetta
þyrftu ekkert endilega að vera leikarar
heldur gætu gestirnir verið fólkið sem hefði
verið hvað mest í umræðunni hverju sinni.
„Við ætlum að poppa og peppa þáttinn aðeins
upp, síðasti vetur gekk mjög vel og við
ætlum auðvitað að reyna að gera enn betur
núna,“ segir Örn.
Það er reyndar engin nýlunda hjá Spaug-
stofunni að hafa aukaleikara hjá sér en að
þessu sinni verður þetta aðeins meira í ætt
við hinn bandaríska Saturday Night Live,
sem nýtur gríðarlegra vinsælda þar vestra.
Fyrsti fundurinn hjá þeim félögum var
áætlaður í gærkvöldi en þó gat brugðið til
beggja vona enda Sigurður Sigurjónsson
fastur fyrir norðan að leikstýra Óvitunum
eftir Guðrúnu Helgadóttur hjá Leikfélagi
Akureyrar. Tökur hafa hins vegar verið
skipulagðar í næstu viku. Spaugstofan varð
til árið 1985 en hefur starfað í núverandi
mynd síðan 1989. Þrjúhundruðasti
Spaugstofuþátturinn fór í loftið í mars
síðastliðnum.
Spaugstofan með breyttu sniði í vetur
„Þetta var hreinn þrældómur og
ég hef aldrei lagt eins hart að
mér á ævinni.“