Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 73

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 73
 Valdimar Þórsson skoðar það alvarlega þessa dagana hvort hann eigi að fara í hart gegn handknattleiksdeild Fram. Ástæðan er sú að Fram vildi ekki skrifa undir félagaskipti til sænska félagsins HK Malmö fyrr en Valdimar hefði endurgreitt fé sem hann fékk frá Fram er hann skrifaði undir samning við Safamýrarliðið í sumar. „Ég er að skoða mína stöðu í málinu og er að íhuga lögsókn enda taldi ég ekki rétt af Fram að krefja mig um þessa peninga,“ sagði Valdimar við Fréttablaðið. Ef Valdimar lætur verða alvöru úr málinu verða tveir handboltamenn í málaferlum við félagið en Sigfús Páll Sigfússon hefur þegar farið með sitt mál alla leið í héraðsdóm til að fá sig lausan frá Fram. Í samningi Valdimars við Fram er tekið fram að hann sé laus frá félaginu berist tilboð í hann upp á 20 þúsund evrur, sem eru tæplega 1,8 milljónir króna. Malmö var tilbúið að greiða þessa upphæð fyrir Valdimar, sem fer út til Svíþjóðar eftir að Malmö fær það staðfest frá Fram að Valdimar sé laus fyrir áðurnefnda upphæð. „Eftir að ég er kominn út byrja Framarar allt í einu að biðja um endurgreiðslu á peningagreiðslu sem ég fékk við undirskrift samn- ingsins. Mér fannst þeir ekki eiga rétt á því enda var ekkert ákvæði um slíkt,“ sagði Valdimar en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins hljómar þessi greiðsla upp á tíu þúsund evrur, eða tæplega 900 þúsund íslenskar krónur. Fram neitaði að skrifa undir félagaskiptin fyrr en það fengi peningana til baka. Valdimar leit- aði þá aðstoðar lögfræðinga og í kjölfarið var haft samband við HSÍ og þess krafist að sambandið gæfi út leikheimild fyrir Valdimar með sænska félaginu. Við þeirri bón varð HSÍ ekki. Lögmaður Valdimars taldi enn fremur að ef Fram teldi sig eiga inni pening hjá leikmanninum ætti félagið að sækja það sjálfstætt. Fram ætti aftur á móti að samþykkja félaga- skiptin þar sem HK Malmö væri búið að fullnægja ákvæðum samn- ings Valdimars. Valdimar bauð að lokum sátt í málinu, sem var samkvæmt heimildum Fréttablaðsins 5.000 evrur. Því tilboði var hafnað af Fram. Að lokum sættist Valdimar á kröfur Framara svo hann gæti gengið í raðir sænska félagsins, þar sem hann var þegar byrjaður að æfa með félaginu og var fluttur út með konu og barn. „Þetta var eina leiðin í stöðunni. Það var ekkert hægt að bíða með þetta lengur. Félagið hefði hugsan- lega leitað að öðrum leikmanni ef félagaskiptin hefðu ekki gengið í gegn og ég vildi ekki missa af því að spila með liðinu. Þess vegna samdi ég þó svo að ég væri ekki sáttur. Ég er fyrst og fremst feginn að vera laus frá Fram og kominn til Malmö. Við sjáum svo hvað setur,“ sagði Valdimar en samningar náðust ekki fyrr en um síðustu helgi og félaga- skiptin fóru í gegn síðastliðin mánudag. Handknattleikskappinn Valdimar Þórsson íhugar alvarlega þessa dagana að lögsækja handknattleiksdeild Fram. Valdimar segir félagið hafa þvingað sig til að endurgreiða peninga sem hann telur sig hafa rétt á að halda. Opið: Mán. 10 - 18, þri.-fös. 9 - 18, lau. 12 - 16.Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Akureyri 464-7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Umboðsmenn um land allt Jón Eggert Hallsson, formaður handknattleiksdeildar Fram, segir að viðbrögð Valdi- mars Þórssonar komi sér á óvart enda taldi hann félagið hafa gert samkomulag við Valdimar í góðu. „Þetta kemur mér mjög á óvart. Við ræddum nær eingöngu við föður hans og við náðum sátt- um við hann. Það var allt í mesta bróðerni. Öll okkar samskipti við þá hafa verið í góðu lagi þannig að þessi tíðindi koma mér á óvart. Þó svo að við höfum verið að deila um þessa greiðslu voru samskiptin í lagi og við enduðum á að skrifa undir samkomulag sem ég taldi menn vera sátta um,“ sagði Jón Eggert við Frétta- blaðið í gær. Jón staðfestir að Fram hafi neitað að skrifa undir félaga- skiptin við Malmö fyrr en sátt hafi náðst vegna eingreiðsl- unnar. „Samskipti okkar við Malmö voru alltaf á þann veg að ákveðin upphæð sem þeir vildu greiða væri ekki nóg enda stóð í samn- ingnum að Valdimar mætti fara fyrir þessa ákveðnu upphæð ef um stórlið væri að ræða. Við litum á þessa fyrirframgreiðslu sem laun og við teljum mjög eðli- legt að hann endurgreiði okkur þann pening. Meðan þeir neituðu að greiða okkur aftur kom ekk- ert til greina að samþykkja félagaskiptin enda stóðum við í öðrum skilningi en þeir á túlkun samningsins,“ sagði Jón Eggert en voru eingreiðslan og félaga- skiptagreiðslan ekki tvö óskyld mál? „Hann var samningsbundinn og það var ekki búið að ná sam- komulagi við Malmö um loka- greiðslu. Meðan það var ekki búið að ná samkomulagi skrifuð- um við ekki undir félagaskiptin,“ sagði Jón. Mjög undrandi á hegðun Valdimars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.