Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 12
„Þetta er ástæðulaus árás á alla þá sem aðhyllast íslam. Vissulega eru til menn sem fara illa með trúna og mér þykir rétt að þrýst sé á úrbætur meðal þeirra stjórnvalda sem líða það,“ segir Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, um erindi baráttukonunnar Maryam Namazie, stofnanda Samtaka fyrrverandi múslima í Bretlandi, sem flutt var í gær og fyrradag. Maryam fæddist í Teheran en fluttist þaðan ásamt fjölskyldu sinni eftir að klerkastjórnin komst til valda. Hún er trúleys- ingi sem berst gegn uppgangi íslams og þeirri kúgun sem hún telur trúna hafa í för með sér fyrir konur. Sagði hún umburðar- lyndi Vesturlanda gagnvart íslam- istum vera of mikið og banna ætti íslamskan alklæðnað kvenna með öllu. Það segir hún ekki fatnað, fremur en skírlífsbelti, spenni- treyju eða Davíðsstjörnu, sem fest var á gyðinga á tímum helfararinnar. „Mér finnst bara eins og fólk eigi að klæða sig eins og það vill. Það er ekki rétt að banna konum að vera með blæju en heldur ekki rétt að þvinga þær til þess, “ segir Salmann. Hann tekur undir að vissulega séu konur kúgaðar sums staðar en slíkt gerist einnig á Íslandi. Maryam deildi einnig hart á dómskerfi sumra landa þar sem hafi verið litið léttvægara á heimilisofbeldi ef múslimar ættu í hlut því meðal þeirra tíðkaðist víða að karlmenn berðu eiginkonur sínar. Salmann tekur undir með henni að sömu lög eigi að gilda yfir alla í hverju landi. Hann segist þó finna fyrir ýmsum misskilningi meðal fólks um dómskerfið. Svokölluð heiðursmorð séu til að mynda hvergi leyfð í íslömskum ríkjum. „Þetta eru líka bara morð og ekkert annað. En hins vegar er ekki nægilega hart tekið á þessum skelfilega glæp í sumum löndum og því þarf að breyta.“ Maryam deildi einnig á vestrænar kvennahreyfingar fyrir aðgerðaleysi í garð kúgunar á íslömskum konum. Halldóra Traustadóttir, framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands, segir málið þó afar erfitt viðfangs og ólíkar meiningar um hvaða leið eigi að fara í þessum málum. Amal Tamimi, fræðslufulltrúi og túlkur í Alþjóðahúsi, segir baráttuna verða að koma frá íslömskum konum. Mikilvægasta skrefið sé að mennta konur. „Ég hef verið að kenna konum hér að lesa. Á meðan þær fá alla sínar upplýsingar í gegnum karlmenn er ekki von á miklum breyting- um,“ segir Amal. Segir ráðist á alla múslima Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, segir ummæli baráttukonunnar Maryam Namazie ástæðulausa árás í garð allra múslima. Leikarinn Fred Thompson er níundi repúblikaninn sem formlega býður sig fram til að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins í kosningunum, sem verða haldnar eftir rúmt ár. Thompson var öldungadeildarþingmaður á árunum 1994 til 2002, en er einnig þekktur leikari bæði úr sjónvarpi og kvikmyndum, nú síðast í hlutverki hranalegs lögmanns í sjónvarpsþáttunum Law and Order. Hann hafnaði því alfarið að hann væri orðinn of seinn til að blanda sér í slaginn. Þess í stað skaut hann á mótframbjóðendur sína, sem hafa staðið í baráttunni frá því í janúar: „Ef menn geta ekki komið boðskap sínum á framfæri á nokkrum mánuðum, þá kemur maður honum sennilega aldrei á framfæri,“ sagði Thompson. Thompson skýrði frá ákvörðun sinni í sjónvarpsþætti Jay Leno, sem var sendur út á sama tíma og hinir frambjóðendur Repúblikanaflokksins sátu fyrir svörum í sjónvarpsumræðum. Þeir tóku fréttunum vel og sögðust fagna því að fá Thompson í hópinn. Af hinum frambjóðendunum átta hafa Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, og öldungadeildarþingmaðurinn John McCain þótt einna sigurstranglegastir. Kjósendur Repúblikanaflokksins hafa þó, samkvæmt skoðanakönnunum, átt erfitt með að gera upp hug sinn og virðast ekki sérlega ánægðir með neinn frambjóðand- anna. Thompson tekur af skarið Heildarnafnverð flokksins er 22.000.000 EUR Skuldabréfaflokkur að fjárhæð EUR 22.000.000 sem var gefinn út þann 7. febrúar sl. og er auðkenni flokksins á OMX ICE ATOR 07 1. Skuldabréfin eru óverðtryggð og skulu bera 3 mánaða EURIBOR vexti að viðbættu 290bp álagi. Höfuðstóll skuldabréfanna greiðist með einni afborgun þann 7. ágúst 2008. Bréfin verða skráð á OMX Nordic Exchange Iceland (OMX ICE) þann 7. septem- ber 2007. Atorka Group hf., kt. 600390-2289, hefur birt lýsingu vegna skráningar skuldabréfa á OMX ICE og gert aðgengilega almenningi frá og með 7. september 2007. Lýsinguna er hægt að nálgast hjá útgefanda Atorku Group hf., Hlíðasmára 1, 201 Kópavogur, eða á vefsetri útgefanda, www.atorka.is, fram til lokadags skuldabréfaflokksins. Umsjónaraðili skráningarinnar á OMX ICE er Landsbanki Íslands. 7. september 2007 NAFNVERÐ ÚTGÁFU: SKILMÁLAR SKULDABRÉFA: SKRÁNINGARDAGUR: SKRÁNINGARLÝSING: ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 38 84 3 09 /0 7 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 38 84 3 09 /0 7 Skráning skuldabréfa í OMX Nordic Exchange Iceland Atorka Group hf. 22.000.000 EUR. ATOR 07 1 WWW.N1.ISN1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200 VARAHLUTIR Við bjóðum landsins mesta úrval af viðurkenndum varahlutum. Þriggja ára ábyrgð er á öllum bílavarahlutum frá N1. F í t o n / S Í A Innbrotsþjófur sem spennti upp hurð og braust inn í vinnuskúr við Helgadalsveg í Mosfellsbæ í nótt skildi eftir brúna íþróttaskó á vettvangi. Maðurinn greip einnig ófrjálsri hendi verkfærakassa úr skúrnum. Í kassanum voru alls kyns rafmagnsverkfæri til byggingarstarfsemi. Varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir mjög óvenjulegt að glæpamenn skilji skópar eftir á vettvangi. Þjófurinn hafi líklega talið sig hafa fundið betri skó en hann átti. Þjófurinn skildi eftir íþróttaskó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.