Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 74
 Það hefur lítið farið fyrir Dananum Allan Dyring í sumar enda lítið sem ekkert leikið með FH-ingum og fjöldi manna heldur að hann sé löngu farinn heim. Svo er alls ekki. Allan er atvinnumaður á fullum launum hjá Íslands- meisturunum og hann er með samning við FH fram í desember. Mínútur Allan í deildinni eru klárlega þær dýrustu enda hefur hann aðeins leikið í 43 mínútur í sumar. Það er ekki einu sinni einn hálfleikur. Allan hefur aðeins tekið þátt í fjórum leikjum og það gegn fjórum neðstu liðunum í deildinni. Lengst fékk Allan að spila í 19 mínútur en styst í 5 mín- útur. Allan hefur ekki spilað síðan 3. júlí og það sem meira er þá var hann síðast í leikmannahópi FH 28. júlí. Allan hefur því ekki kom- ist í leikmannahóp FH í síðustu sex leikjum. „Málið er að ég hef reynt að tala við Óla en hann vill alls ekkert tala við mig. Ég veit ekki af hverju en það verður að segjast að Óli er frekar furðulegur,“ sagði Allan við Fréttablaðið. „Þetta er samt allt í lagi. Nú er ég bara að reyna að standa mig á æfingum og ég tel mig hafa sýnt fram á að ég sé nógu góður til að komast í hópinn en Óli er því greinilega ekki sammála. Þetta fór illa í mig til að byrja með en nú er ég farinn að hlæja að þessu því ég veit ég er nógu góður til að spila. Ég geri mér einnig grein fyrir því að ég mun ekki spila meira með FH.“ Allan segir að ekki hafi kastast í kekki á milli hans og Ólafs þrátt fyrir þessa stöðu og þá staðreynd að Ólafur vilji ekki tala við hann. Daninn bað á endanum um að fara á lán til annars félags áður en félagaskiptaglugginn lokaði en það vildu FH-ingar ekki þýðast. Því hefur verið fleygt að ástæð- an fyrir því að Allan fái svo lítið að spila sem raun ber vitni sé sú að hann fái greidda ákveðna upphæð fyrir hvern leik og FH sé því að spara sér peninga. Allan segir þær sögur ekki eiga við rök að styðj- ast. „Þetta hefur ekkert að gera með minn samning. Ég er atvinnu- maður á föstum launum og svo fæ ég bónusa fyrir titla. Þess vegna óska ég þess innilega að við vinnum alla titla. Þá fæ ég í það minnsta góðan pening á endanum og það án þess að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég get ekki kvartað, venjulega myndi ég ekki hugsa um pening- ana en fyrst ég er ekki að spila þá hugsa ég eðlilega um peningana og það er smá sárabót að fá góðan bónus áður en ég hætti hjá FH,“ sagði Allan, sem segist hafa áhuga á því að vera að minnsta kosti eitt ár í viðbót á Íslandi en þegar hafa nokkur félög sett sig í samband við hann og lýst yfir áhuga á við- ræðum þegar samningur hans við FH rennur út. Knattspyrnumaðurinn Allan Dyring hjá FH hefur aðeins leikið í 43 mínútur í sumar. Hann fær því klárlega best borgað á mínútu í Landsbankadeildinni enda er Allan atvinnumaður. Hann hugsar meira um peninga en fótbolta. Eiður Smári Guðjohn- sen byrjar á varamannabekkn- um í leiknum á móti Spáni á laugardaginn að eigin sögn. Hann er að jafna sig af meiðslum sem hafa haldið honum frá æfingum og keppni um tíma. Það er langt síðan Eiður hefur verið í þeirri stöðu að sitja á varamannabekk landsliðsins. Það gerðist síðast fyrir tæpum átta árum, í frægum leik við Frakka á Stade de France 9. október 1999. Eiður Smári var þar að leika sinn fjórða landsleik og kom þá inn á sem varamaður fyrir Rík- harð Daðason á 54. mínútu leiks- ins. Staðan var þá 1-2 fyrir Frakka en Eiður Smári átti mik- inn þátt í jöfnunarmarki íslenska liðsins sem Brynjar Björn Gunnarsson skoraði aðeins tveimur mínútum eftir að Eiður kom inn á. Þetta var fjórði landsleikur Eiðs Smára en hann hafði komið inn af bekknum í hinum þremur. Í fyrsta leiknum hafði hann leyst föður sinn af hólmi og í öðrum leik skoraði hann sitt fyrsta landsliðsmark. Eiður Smári var síðan í byrj- unarliði Íslands í næsta lands- leik sem var 2-1 sigurleikur gegn Svíum 16. ágúst árið eftir og hefur verið í byrjunarliðinu í síð- ustu 42 landsleikjum. Ekki á bekknum í átta ár BANDARÍKIN ERU NÆR EN ÞÚ HELDUR Nú brúar DHL bilið til Bandaríkjanna. Með beinum og betri tengingum við þéttriðið flutningsnet DHL um gjörvöll Bandaríkin getum við afhent sendingar þínar til Bandaríkjanna næsta virka dag. 34.000 starfsmenn DHL í Bandaríkjunum eru til þjónustu reiðubúnir. Kynntu þér þjónustuna á www.dhl.is og prófaðu hana næsta virka dag. DHL afhendir sendingar þínar til Bandaríkjanna næsta virka dag www.dhl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.