Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 32
BLS. 4 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007
Þ óra Sigurðardóttir, eða Birta, sem oftast er kennd við Stundina okkar, hefur sett glæsiraðhús sitt á Framnes-
veginum á sölu. Húsið vakti mikla athygli þegar það birtist
í tímaritinu Veggfóðri síðasta sumar. Þá var Þóra búin að
standa í ströngu við að innrétta húsið upp á nýtt á sérlega
smekklegan hátt.
,,Þetta er náttúrlega bara snilldarhús með byggingarrétti
og öllu. Þar sem ég er eiginlega alltaf erlendis var ekkert
annað í stöðunni en að selja enda er þetta allt of fínt hús til
að leigja út,“ segir Þóra og hlær.
Hún segist þó kveðja húsið með trega
enda tengjast því margar góðar minn-
ingar. Til að mynda hafi eiginmaður
hennar, undrakokkurinn Völli Snær,
séð sér leik á borði þegar fram-
kvæmdir voru að hefjast og sent
henni iðnaðarmenn í röðum til að
heilla hana upp úr skónum. En á
þeim tímapunkti var hann sjálf-
ur vant við látinn við veit-
ingarekstur á Bahama-
eyjum.
FYRSTU RAÐHÚSIN Á ÍSLANDI Húsið er teiknað af Guðjóni
Samúelssyni sem teiknaði einnig Háskóla Íslands, Þjóðleikhúsið
og Landspítalann svo eitthvað sé nefnt.
KVEÐUR HÚSIÐ MEÐ
TREGA Þóra á eftir að
sakna hússins enda
geymir það margar
góðar minningar.
Þ etta eru þýskar sakamálamynd-ir sem gerðar eru eftir sænsk-um sögum,“ segir leikkonan
Sólveig Arnarsdóttir, sem er í stuttu fríi
á Íslandi áður en hún heldur aftur út til
að klára tökur. Myndirnar sem Sólveig
leikur í eru hluti af þekktum og virtum
dagskrárlið sem sýndur er á laugar-
dagskvöldum í Þýskalandi auk þess
sem flest Norðurlöndin hafa tryggt sér
sýningarréttinn. Meðleikarar Sólveigar
eru ekki af verri endanum en margir af
vinsælustu leikurum Norðurlandanna
og Þýskalands léku með henni. Á
meðal þekktra leikara eru hinn danski
Nikolaj Lie Kaas sem meðal annars lék
í kvikmynd Lars Von Trier, Idioterne
og mynd Susanne Bier, Elsker dig for
evigt, en Nikolaj er eini leikarinn sem
unnið hefur þrjú Bodil-verðlaun fyrir
þrítugt. Samlanda hans, Paprika Steen,
sem þekkist meðal annars úr Idioterne
og Festen, leikur einnig með Sólveigu
ásamt hinum norska Bjorn Floberg
sem lék í íslensku myndinni Ungfrúin
góða og húsið auk sænska ungstirnis-
ins Fridu Hallgren sem að sögn Sól-
veigar hefur unnið til allra verðlauna
sem hægt er að vinna. Karakter Sól-
veigar er aðstoðaryfirlögreglukona og
er annað aðalhlutverkanna. „Þessar
myndir eru ekkert ósvipaðar bresku
þáttunum sem sýndir hafa verið hér á
landi en í myndunum fylgjumst við
með sama lögregluhópnum leysa
glæpi,“ segir Sólveig og bætir við að
stjörnurnar hafi komið vel fram. „Þetta
eru allt frábærir leikarar sem hafa góða
reynslu af þessum miðli og haga sér
eftir því svo það voru engir stjörnu-
stælar í gangi. „Ég velti því nú lítið fyrir
mér hversu frægt þetta fólk er en upp-
götvaði stundum að fólkið á næstu
borðum glápti á þau þegar við vorum
úti að borða,“ segir Sólveig og viður-
kennir að þátttaka hennar í myndun-
um eigi eftir að auka velgengni hennar
í Þýskalandi en þar hefur hún starfað
síðustu átta árin meðfram vinnu hér
heima. „Þetta er mjög gott fyrir frama
minn í Þýskalandi en í nóvember mun
ég leika í leikhúsi í Berlín í verki eftir
sænska leikskáldið Lars Norén sem
sýnt verður meðal annars á norrænni
leikhúshátíð þar í landi.“
indiana@frettabladid.is
LEIKKONAN SÓLVEIG ARNARSDÓTTIR ER NÝKOMIN HEIM ÚR
TÖKUM FRÁ ÞÝSKALANDI ÞAR SEM HÚN VAR AÐ LEIKA Í VIN-
SÆLUM SAKAMÁLAMYNDUM.
PAPRIKA STEEN Danska leikkonan leikur
með Sólveigu en Paprika er ein sú
þekktasta í Danmörku og lék meðal
annars í Idioterne og Festen.
Í STJÖRNUFANSI
Á GOTLANDI
SÓLVEIG ARNARSDÓTTIR „Ég
velti því nú lítið fyrir mér
hversu frægt þetta fólk er en
uppgötvaði stundum að
fólkið á næstu borðum glápti
á þau þegar við vorum úti að
borða,“ segir Sólveig.
BIRTA SELUR HÚSIÐ
Eivör Mannabarn 2CD
Megas Megas og Senuþjófarnir
Eivör Human Child
Ýmsir Pottþétt 44
Magni Magni
Ýmsir Íslandslög 7
Mika Life in Cartoon Motion
Millarnir Alltaf að græða
Garðar T. Cortes Cortes 2007
Ýmsir Íslandslög 1-6 (6CD)
Ljótu Hálfvitarnir Ljótu Hálfvitarnir
Smashing Pumpkins Zeitgeist
Ýmsir 100 Íslensk 80’s lög
Gus Gus Forever
KK og Maggi Eiríks Langferðalög
Ýmsir Instant Karma (John Lennon)
Rúnar Júl Snákar í garðinum
Soundspell An ode to the umbrella
Björk Gling Gló
Creedence Clearwater Chronicle: 20 Greatest Hits
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
Það er Eivør sem heldur topp
sætinu aðra vikuna í röð með
sérútgáfu disksins Human
Child. Nýliðinn í vikunni er
Rúnar Júl með diskinn Snákar
í Garðinum, hann er að fara í
Laugardalshallar æði og
stefnir á tónleika þar í
Október.
Eivør
Nældu þér í eintak
Li
st
in
n
g
ild
ir
v
ik
u
n
a
06
.
-
13
.
se
p
te
m
b
er
2
00
7
A N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista
Skífulistinn er samantekt af mest seldu plötunum í
Skífunni og verslunum BT út um allt land.
N
N
N
Auglýsingasími
– Mest lesið