Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 50
BLS. 14 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007 Á að nota haustið til að koma sér í form? „Það er ekkert meiri áhersla á það á haustin en á öðrum tímum en ef ég er hreinskilin verð ég að viðurkenna að ég er ekki mikill íþróttaálfur. Ég hleyp inn og út úr bílnum og upp og niður stiga. Ég er alltaf á hlaupum og læt það bara duga.” Sóley Kristjánsdóttir plötusnúður. „Að sjálfsögðu, TT-átak í JSP. Ég er að fara að byrja og er komin með hnút í magann. Mun mæta 6.15 þrisvar í viku. Er maður ruglaður eða hvað?” Bryndís Ásmundsdóttir leikkona. „Jú, það á að gera það. Planið er að nota kortið í World Class og hætta að vera bara styrktaraðili. Ég ætla að gerast notandi.” Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslumaður. „Já, það má segja það. Allavega ætla ég að láta laga á mér ökklann svo þetta er pínu bókstaflegt hjá mér. Ég er kominn með álagsmeiðsli eftir allan djöfulgang- inn og ætla að láta herða upp á mér ökklann.” Ívar Örn Sverrisson leikari. A ndrea er nía en nían er alheimstala og getur lagað sig að öllu,“ segir spákonan Sigríður Klingenberg um athafnakon- una Andreu Róberts. „Andrea er að koma úr frekar erfiðu ári, þá er ég að meina árið 2006, en miklar breytingar hafa orðið á högum hennar á þessu ári. Þetta ár verður skemmtilegt og óvenjulegt sem er kannski ekkert nýtt fyrir Andreu. Hún á eftir að ferðast mikið á árinu og hitta margt og spennandi fólk og margt fólk sem hana hefur lengi langað að hitta. Hún er að hugsa sér nýjar brautir í lífinu og er komin í tengingu við nýtt fólk sem á eftir að lyfta henni á nýjan stall, hvort sem hún vill það eða ekki. Andrea hefur óvenju skemmtilega orku og hefur sérstakt lag á að koma öllum í gott skap í kringum sig. Eins og Andrea er nían sterk og mikill leiðtogi og leiðtogaorkan skín sterk í gegnum Andreu og hún á eftir að nýta sér hana og verða miklu sýnilegri persóna en hún hefur nokkurn tímann verið. Á næsta ári, árið 2008-9, eru frjó- semisár fyrir Andreu svo það er um að gera að æfa sig vel svo egg klekist (nú verður kærastinn ánægður). Eitt er víst að Andrea er á góðu tíma- bili.“ Næstu ár verða frjósöm Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is ANDREA RÓBERTS „Eins og Andrea er nían sterk og mikill leiðtogi og leiðtoga- orkan skín sterk í gegnum Andreu og hún á eftir að nýta sér hana og verða miklu sýnilegri persóna en hún hefur nokkurn tímann verið.“ SPURNINGAKEPPNI sirkuss Helgi Seljan 1. Pass. 2. LA Galaxy. 3. Garðar Cortes. 4. Hann reyndi að fremja sjálfsvíg. 5. Stefán Máni. 1. Hvað heitir fimmta og nýjasta plata Eivarar Pálsdóttur? 2. Með hvaða knattspyrnuliði leikur David Beckham? 3. Hvaða íslenski tónlistarmaður hefur slegið í gegn í Grikklandi með lagið In My Place? 4. Af hverju komst Hollywood leikarinn Owen Wilson í fréttirnar á dögunum? 5. Hver skrifaði bókina Skítadjobb sem kom út árið 2002? 6. Hver leikstýrir söngleiknum Gretti? 7. Hvernig er fáni Skotlands á litinn? 8. Hvað heitir eiginkona Dr. Phil? 9. Hver er talin áhrifamesta kona heims um þessar mundir af tímarit- inu Forbes? 10. Hver er ritstjóri Blaðsins? 6. Rúnar Freyr Gíslason. 7. Hvítur og blár. 8. Nancy. 9. Hillary Clinton. 10. Ólafur Stephensen. SPURNINGAKEPPNI SIRKUS HELDUR ÁFRAM. KASTLJÓSSMAÐURINN HELGI SELJAN HEFUR REYNST ÓSIGRANDI HINGAÐ TIL. HÉR MÆTIR HANN FRÉTTAKONUNNI RAKEL ÞORBERGSDÓTTUR. 6. Rúnar Freyr Gíslason. 7. Blár og hvítur. 8. Mrs Phil. 9. Hillary Clinton. 10. Ólafur Þ. Stephensen. Helgi og Rakel fengu bæði fimm stig. Helgi er ósigraður og heldur því áfram. Rakel skorar á fréttamanninn Finn Beck sem mætir Helga í næstu viku. Rakel Þorbergsdóttir 5 RÉTT SVÖR 1. Eivör 5. 2. Los Angeles Galaxy. 3. Magni. 4. Hann reyndi að fyrirfara sér. 5. Jón Atli Jónasson. 5 RÉTT SVÖR 1. H um an C hi ld . 2 . L os A ng el es G al ax y. 3 . B M V eð a Br yn ja r M ár V al di m ar ss on .4 . H an n re yn di a ð fre m ja sj áf sm or ð. 5 . Æ va r Ö rn J ós ep ss on . 6 . R ún ar F re yr Gí sl as on .7 . B lá r o g hv ítu r.8 . R ob in .9 . A ng el a M er ke l. 10 . Ó la fu r S te ph en se n. S öngkonan Alma í Nylon og fyr-irsætan Edda Björk Pétursdótt-ir fengu hugmyndina að sjálf- styrkingar- og fyrirsætunámskeiðum fyrir unglinga og ákváðu að hrinda henni strax í framkvæmd. Alma segir að henni hafi fundist vanta almenni- legt námskeið til að hjálpa unglingum að fá meira sjálfstraust. ,,Það eru ákveðnir hlutir sem ungl- ingar læra ekki í skólanum sem er mik- ilvægt að kunna. Það bjargaði mér þegar ég byrjaði í Nylon að hafa sótt bæði leiklistar-og söngnámskeið,“ segir Alma. Á námskeiðunum er farið yfir fram- komu, sjálfsálit, líkamsburð, heilsu, förðun, átraskanir, fjármál og að láta drauma sína rætast. Námskeiðin eru tvö, annars vegar fyrir 13-15 ára og hins vegar 16-20 ára. Þau eru í fyrirlestraformi og koma margir þekktir aðilar við sögu. Unnur Birna Vil- hjálmsdóttir fegurðar- drottning er ein af þeim. Hún segist þó ekki vilja gefa nákvæmlega upp hvað hún ætlar að kenna unglingun- um. „Ég get þó lofað því að ég ætla að segja þeim frá ýmsu sem hefur drifið á daga mína, sérstaklega frá tímanum sem Miss World.“ Hafðir þú nægt sjálfstraust þegar þú varst kjörin ungfrú Ísland á sínum tíma? „Já, ég myndi segja það. Ég var orðin 21 árs þegar ég tók þátt í keppninni og hafði náð töluverðum þroska. En þetta námskeið er pottþétt eitthvað sem hefði hentað mér þegar ég var yngri,“ segir Unnur Birna. Fyrir utan að vera að kenna á námskeiðunum er Unnur Birna á fullri ferð í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún leggur stund á lögfræði. „Svo er ég að byrja aftur að kenna dans eftir tveggja ára hlé. Ég kenni bæði í Dansskóla Birnu Björns og Dansstúd- íói World Class.“ Verður maður svona flottur af dans- inum? „Það veit ég ekki, er ekki dómbær á það því ég er búin að vera í dansi og fimleikum síðan ég var fjögurra ára. Dansinn er svo skemmtilegt sport og af honum lærir maður að bera sig betur,“ segir Unnur Birna klár í slaginn fyrir veturinn. Skráning á namskeid.com martamaria@frettabladid.is STJÖRNUM PRÝDD SJÁLFSTYRKINGARNÁMSKEIÐ Alma og Unnur Birna hjálpa unglingunum VINKONUR Unnur Birna og Alma hlakka til að kenna unglingunum. SÓLEY ÁSTUDÓTTIR Veit allt um förðun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.