Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 26
Smurbrauðsstofa Sylvíu á
Laugavegi verður fimmtán ára
á morgun og þar standa nú
yfir færeyskir dagar, enda er
eigandinn, Sylvía Locke Gunn-
stein, frá Færeyjum.
„Ég býð upp á smurt brauð og
snittur á Smurbrauðsstofunni,“
segir Sylvía og bætir við: „Við
erum með fyllta bakka og diska
sem eru eins og lítið kalt borð, til
dæmis með þremur tegundum af
kjöti, eggi, síld og ávöxtum og svo
fylgir auðvitað brauð með og svo-
leiðis.“
Nú standa yfir færeyskir dagar
á Smurbrauðsstofunni hjá Sylvíu
og þá býður hún upp á færeyska
rétti. „Ég er með smurt brauð með
færeysku áleggi, knetti, rúllu-
pylsu, steiktar fiskibollur og
skerpukjöt sem er líklega vin-
sælast hérna þessa daga,“ segir
Sylvía.
Sylvía er frá Færeyjum en hefur
búið hér á landi í nær fjörutíu ár.
„Ég kom hingað þegar Hótel Loft-
leiðir var opnað árið 1966 og var
þar í nokkur ár. Svo var ég í fjórtán
ár á Kjarvalsstöðum til ársins
1992,“ segir Sylvía og bætir því við
með stolti að hún hafi tekið á móti
öllum þjóðhöfðingjum sem heim-
sótt hafa landið frá því 1981. „Ég
hef verið að smyrja fyrir móttökur
sem þessir höfðingjar hafa komið í
á vegum borgarinnar.“
Spurð hvort hún sé ánægð með
lífið á Íslandi segir Sylvía: „Marg-
ir halda nú alltaf að grasið sé
grænna hinum megin en það er
hvergi betra að búa en á Íslandi.“
Færeyskar fiskibollur
- leggur heiminn
að vörum þér
Gvatemalabaunir frá búgarðinum La Union
brenndar í vínarbrennslu - keimur af dökku
súkkulaði, kryddi og brenndum sykri.
Kaffi ræktað af sannri alúð.
Frábært í allar gerðir uppáhellingar. H2
hö
nn
un
NY UPPSKERA!
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is