Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 10
„Við höfum verið að vinna í því að leita leiða til að efla samvinnu hinna sjálfstætt reknu tónlistarskóla og hinna borgar- reknu grunnskóla,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs. Tilraunaverkefni til þriggja ára sem gengur út á að tengja saman einkarekna tónlistarskóla og borgarrekna grunnskóla var kynnt í Fossvogsskóla í gær. Fimm tónlistarskólar og tíu grunnskólar koma að verkefninu en þó mun hver skóli vinna það með sínu sniði. Sumir munu einbeita sér að þjóðlegum kór- söng en aðrir munu taka fyrir dægurlög eða djass. Í sumum skólunum verður kennt á hljóð- færi en í öðrum munu tónlistar- kennarar laga sig að þeim verkefnum sem unnið er að innan grunnskólanna. Júlíus segir enga tvo skóla vera eins og það sé í höndum þeirra sjálfra að finna út hvernig þeir geti eflt tónlistariðkun og tónlistar- hlustun meðal grunnskólanema. „Við erum með mjög ólíkum hætti að koma tónlistinni inn í skólana. Tónlistin verður tengd inn í námsefnið með virkum hætti og þetta er ekki háð námskrá heldur viðbót við það sem fyrir er í skólunum.“ Júlíus segist búast við því að ímynd skólanna styrkist og sýnileiki þeirra aukist með samstarfinu. Tónlistinni komið inn í skólana NÝTT SYKURLAUST SÓLBERJA ÞYKKNI Ríkt af C-vítamíni Þú get ur b land að 8 lí tra af b rag ðgó ðum djús ! RV U ni qu e 08 07 04 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Lotus Professional Heildarlausn fyrir snyrtinguna WC SmartOne statíf blátt WC SmartOne statíf hvítt 3.982 kr. 1.865 kr. Þú spar ar bæð i pappír og sápu með nýju Lo tus Pro fession al skömm turunu m Lotus enMotion blár snertifrír skammtari Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari Lotus sápuskammtari Foam blár Lotus sápuskammtari Foam hvítur 1.865 kr. „Við höfum ekki fengið þessar upplýsingar frá íslensku nefndinni. Ég vonast til að af því verði afar fljótlega,“ segir Mechthild Rössler, yfirmaður hjá Menningarmálastofnun Samein- uðu þjóðanna (UNESCO) í París. Rössler sendi beiðni um umsögn vegna erindis Péturs M. Jónas- sonar vatnalíffræðings, eftir að hann sendi bréf til Parísar, 10. júlí. Í bréfinu vakti Pétur athygli á hugsanlegum áhrifum Gjábakka- vegar á Þingvallavatn og stöðu Þingvalla á heimsminjaskrá. Sagði hann að vegurinn myndi skemma vatnasvið Þingvallavatns. „Í svona beiðnum spyrjum við hvort nýju upplýsingarnar [bréf Péturs] skipti máli fyrir staðinn og stöðu hans á heimsminjaskrá. Síðan tökum við ákvörðun,“ segir Rössler. Ekki sé hægt að taka afstöðu til erindisins fyrr. Fyrrum heimsminjanefnd Íslands hafði lýst yfir áhyggjum af áhrifum Gjábakkavegar á stöðu Þingvalla á heimsminjaskrá. Björn Bjarnason, núverandi for- maður nefndarinnar, sagði í tölvu- pósti í gær að verndarsvæði Þing- vallavatns hefði „að sjálfsögðu ekki [verið] neitt meginatriði“ þegar Þingvellir fóru á heims- minjaskrá sem menningarminjar. Spurður um afstöðu nefndarinnar svaraði hann ekki beint en sagði nefndina hafa svarað UNESCO „með vísan til skilmála um vegamál í skráningu á Þingvöllum“ og nefndi ákvæði um hámarkshraða. Svarið er líklega á leiðinni út. UNESCO bíður svars Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.