Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 36
BLS. 8 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007 H elga Ólafsdóttir fatahönnuður starfar hjá danska merkinu Ilse Jacobsen. Á dögunum sýndu þær afraksturinn á tískuvikunni í Kaup- mannahöfn sem fram fór í Øxne- hallen. Þetta er í fyrsta skipti sem Ilse sýnir heila fatalínu en hún er þekkt sem skóhönnuður. Viðbrögðin fóru fram úr öllum vonum og var Helga himinlifandi þegar Sirkus hitti hana á heimili hennar í Kaupmannahöfn. Helga lærði fatahönnun í Heller- up textil college í Kaupmannahöfn. Hún útskrifaðist árið 2000 og hélt heim til Íslands. Á þeim tíma var litla vinnu að hafa í faginu í Dan- mörku svo hún réði sig hjá íslenska merkinu xtra.is sem sérhæfði sig í unglingafatnaði. Í millitíðinni starf- aði hún hjá Nikita, All Saints og fleiri fatamerkjum. Nú er hún komin aftur til Kaupmannahafnar enda hefur landslagið tekið miklum breytingum síðan Helga bjó síðast í Danmörku. „Þetta er eiginlega gömul nost- algía. Síðan ég útskrifaðist hef ég verið dugleg að heimsækja Kaup- mannahöfn og fylgst vel með því sem er að gerast í fatabransanum í Danmörku. Síðustu þrjú til fimm ár hefur verið mikill uppgangur í danskri fatahönnun og mig var farið að klæja í puttana að komast aftur út. Þegar mér bauðst starfið hjá Ilse var ekki aftur snúið.“ Við tók átakanlegur tími. Helga vildi ekki rífa börnin og manninn upp með rótum svo hún byrjaði á því að kynna sér aðstæður og dvaldi í Kaupmannahöfn á virkum dögum og var á Íslandi um helgar. Svona gekk það í þrjá mánuði. „Eftir þann tíma tókum við ákvörðun, ákvörðunin var ekki stór en verkefnið að flytja alla fjöl- skylduna var aðeins stærra. Mér hefur aldrei þótt neitt mál að flytja,“ segir hún og bætir því við að samt sem áður elski hún Ísland alltaf heitast. ,,Ef það væri bullandi vinna á Íslandi og tækifæri í fatahönnun á hverju strái þá væri ég ekki hér.“ Helga kynntist Ilse í gegnum Ragnheiði Óskarsdóttur sem á Ilse Jacobsen-verslun í Garðabænum. Þegar hún réð sig til starfa hjá henni var hún að byrja að leggja drög að heilsteyptri fatalínu. ,,Mér fannst spennandi að fá að vera með frá byrjun. Ilse er þekkt sem skóhönnuður og hafði aldrei gert heila fatalínu áður. Þetta var því mikil áskorun,“ segir Helga. Spurð um línuna segir hún hana fyrst og fremst skandinavíska með ítölsku ívafi. ,,Okkar inspírasjón er fyrst og fremst skandinavísk þar sem ein- föld og hrein form ráða ríkjum, en við sóttum líka mikið til Ítalíu. Ilse er ákaflega hrifin af því landi og meðan á vinnunni við línuna stóð borðuðum við mikið af ítölskum mat og hlustuðum á ítalska tónlist til að komast í réttu stemninguna,“ segir hún og brosir. Þær tóku því það besta frá báðum og blönduðu því saman. „Við vorum ein af fáum merkjum sem sýndum sterka liti á sýningunni á Øxnehallen. Okkar litapalletta samanstóð af djúpfjólubláum, blóðappelsínulituðum, miðnætur- bláum og beigelituðum. Með þessu notuðum við lúxuslitina gull, silfur og brons.“ Kynningin á línunni, sem kemur vorið 2008, var tvíþætt. Annars vegar héldu Helga og samstarfsfólk hennar tískusýningu í Hornbæk þar sem höfuðstöðvar Ilse Jacobsen eru. Og svo sýndu þær línuna einnig í Øxnehallen. ,,Sýningin í Hornbæk fór fram á HELGA ÓLAFSDÓTTIR HANNAR FYRIR ILSE JACOBSEN HELGA ÓLAFSDÓTTIR Flutti fjölskylduna sína með sér. Hér er hún með börnin sín, Viktoríu Þóru og Baldvin. GULLKÁPAN ÓGURLEGA Sumarlínan frá Ilse skartar mörgum lúxuslitum eins og gulli, silfri og bronsi. Í SKÝJUNUM Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir, make-up listamaður, Helga og Line Rebecca Rumhult sem báðar starfa sem hönnuðir hjá Ilse. SKVÍSUGANGURINN Í ALGLEYMINGI! Mjúkir litir eru áberandi. GERIR ÞAÐ GOTT Í KAUPMANNAHÖFN Tískuráð: Blanda saman dýru og ódýru er alltaf klassískt. Ef fólk kaupir sér dýra hluti á að velja þá vel, eyða í töskur og yfirhafnir og hafa grunninn svo ódýrari. Þá er líka auðveldara að grisja úr fataskápnum sínum og kaupa nýtt án þess að vera með mikinn móral. Hvað finnst þér um gervibrúnku: Mér finnst fallegt að vera með hvíta húð á veturna og fínt að verða útitekin á sumrin. Appelsínugulur er ekki fyrir mig. Mikilvægast í lífinu? Auðvitað fjölskyldan! Hvað langar þig í? Mig langar í nýja tösku.... Besti bitinn í Köben? Ég elska Avocado samlokuna á Joe & the Juice í Magasin.....uuuhhhh. Þegar ég er ein á ferð þá borða ég hana í kvöldmat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.