Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 10
„Áttarðu þig á því
hvað þú lítur út fyrir að vera skin-
helgur núna,“ sagði David
Cameron, leiðtogi breska Íhalds-
flokksins, í spurningatíma breska
þingsins í gær þar sem Gordon
Brown forsætisráðherra sat fyrir
svörum.
Vikum saman hafa vangaveltur
staðið um hvort Brown myndi boða
til kosninga innan skamms, ekki
síst þar sem skoðanakannanir voru
stjórninni í vil. Á laugardag, þegar
skoðanakannanir snerust í fyrsta
sinn stjórninni í óhag, tók Brown af
skarið og sagðist vilja sýna Bret-
um hvernig stjórnin ætli að fram-
fylgja stefnu sinni. Cameron sagði
í þinginu að Brown hafi „enga sann-
færingu, aðeins útreikning hags-
muna, enga sýn, aðeins tómið eitt.“
Íhaldsmenn gagnrýndu stjórn-
ina og Brown einnig harðlega fyrir
áform um lækkun erfðaskatts,
breytingar á flugvallarskatti og
endurskoðun á skattfrelsi útlend-
inga sem búa að mestu erlendis en
afla tekna í Bretlandi.
Þessi þrjú mál voru harðlega
gagnrýnd á flokksþingi Íhalds-
flokksins í síðustu viku, og áttu
sinn þátt í því að staða flokksins
batnaði í skoðanakönnunum.
„Í síðustu viku missti Brown vin-
sældirnar, í þessari viku missti
hann siðferðilega stöðu sína,“ sagði
Cameron.
Ásakanir dynja á Brown
Kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum á netinu er vandamál
sem vitað er að hefur aukist ár frá
ári eftir því sem fleiri börn nota
netið. Um ræðir annars vegar þau
tilvik þegar börn eru ginnt af full-
orðnum sem beita þau ofbeldi ýmist
með kynferðislegum athöfnum í
gegnum vefmyndavélar eða fá
börnin til þess að hitta sig. Hins
vegar er heimilisofbeldi í vaxandi
mæli birt á netinu.
Barnaheill stendur fyrir ráð-
stefnu í dag undir yfirskriftinni Ný
tækni – sama sagan: kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum. Þar munu
erlendir og innlendir fræðimenn
ræða leiðir til þess að takast á við
vandamálið og aðferðir til þess að
hjálpa þeim börnum sem beitt eru
ofbeldi.
„Lögreglan á ekki bara að vera
að leita eftir glæpum á netinu held-
ur á allt samfélagið að taka höndum
saman um að berjast gegn þessu.
Þetta er ekki bara tæknilegt vanda-
mál, heldur nota 98 prósent barna
tölvur og það verður að vera sam-
eiginlegur skilningur á vandamál-
inu,“ segir Elizabeth Skovgard,
framkvæmdastýra Barnaheilla í
Noregi. Hún mun fjalla um aðgerð-
ir til þess að taka á kynferðislegu
ofbeldi gegn börnum á netinu í
dag.
„Stjórnvöld í Noregi gerðu breyt-
ingar á lögum til þess að taka á
vandanum. Sett voru ströng lög um
barnaklám sem tiltaka allar tegund-
ir mynda, texta og hljóðs. Þau hafa
reynst mjög góð. Auk þeirra eru
svonefnd ginningarlög. Það er nú
ólöglegt að hafa samband við barn
ef tilgangurinn er að misnota það
kynferðislega. Þau lög eru tæki sem
lögregla getur beitt áður en ráðist
hefur verið á barnið og ekki þarf að
bíða þess að glæpurinn hafi verið
framinn. Þessi lög eru góður grund-
völlur, en virka ekki ein og sér. Mik-
ilvægast er að fræða foreldra, því
netnotkunin fer að mestu leyti fram
innan veggja heimilanna.“
Þá hefur norska fjarskiptafyrir-
tækið Pelanore, í samstarfi við lög-
regluna í Noregi, útbúið lista yfir
2.600 barnaklámsíður. Þeim var
læst og komast norskir notendur
ekki inn á þær. Þannig er reynt að
stýra eftirspurninni og vonast er til
að framboðið minnki.
„Það sem er efst á baugi Barna-
heilla í Noregi er að fá miðlæga
stofnun, þar sem sérfræðingar á
öllum sviðum sem tengjast kynferð-
islegu ofbeldi á netinu vinna saman
að því að koma í veg fyrir glæpina,
finna úrræði fyrir bæði fórnarlömb
og gerendur og upplýsa samfélagið
um hættuna. Á Íslandi hafið þið nú
þegar Barnahús – það er góð byrj-
un.“
Úrræði gegn
netofbeldi
Börn eru berskjölduð þegar þau nota netið til fróð-
leiks og skemmtunar. Stjórnvöld, kennarar og for-
eldrar þurfa að gera sér grein fyrir hættunni.
Undirbúningur
og mótun kröfugerða er í fullum
gangi innan verkalýðshreyfing-
arinnar. Trúnaðarmannaráð
Rafiðnaðarsambandsins og
Samiðnar koma saman í vikulok
og VR er að fara af stað með
kjarakönnun.
„Það er fullsnemmt að segja
hvernig kröfugerðin verður,“
segir Gunnar Páll Pálsson,
formaður VR. Hann telur sitt
fólk meðal annars vilja aukið og
sveigjanlegt orlof þar sem
orlofsréttur er lengdur um allt
að þrjá daga og reglum breytt
svo hægt verði að taka vetrarfrí.
Vilja lengja
orlofið sitt
BLESER
leggings
MOORE
hásokkar
Kaupauki
fylgir vöru frá Oroblu
Kynningar á n‡ju vetrarvörunum
frá Oroblu í Lyfju
Fimmtudag, kl. 14-18 á Smáratorgi
Föstudag, kl. 13-17 í Lágmúla
Laugardag, kl. 13-17 í Smáralind
Um 150 lögreglumenn í óeirðabúningum
tóku í gær þátt í aðgerð sem fólst í að yfirbuga nunnur
sem yfirtóku klaustur í Póllandi árið 2005 í uppreisn
gegn Vatíkaninu. Nunnurnar gerðu uppreisn eftir að
skipun barst frá Vatíkaninu um að skipta um abbadís í
klaustrinu.
Lásasmiður opnaði hlið klaustursins og lögreglu-
menn fóru inn og handtóku abbadísina. Því næst var
um 65 nunnum fylgt út úr klaustrinu, sem sumar
kölluðu „þjónar Satans“ að lögreglunni. Nunnurnar
voru reknar úr reglunni sem þær tilheyrðu í fyrra.