Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 13
Í fjölþættri dagskrá Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, í Xian Yang-borg og
Shaanxi-fylki í Kína á sunnudag,
kom fram eindreginn vilji kín-
verskra ráðamanna til að stórefla
samvinnu við Ísland um jarðhita-
nýtingu. Fyrsti áfangi hitaveitunn-
ar í Xian Yang, sem reist er í sam-
vinnu Glitnis, Orkuveitu Reykjavíkur
og Enex við Sinopec, sem er þriðja
stærsta orkufyrirtæki Kína, þykir
benda til að raunhæft sé að hefjast
nú þegar handa við undirbúning
næstu áfanga. Kínversk stjórnvöld
hafa valið borgina sem miðstöð
jarðhitanýtingar í Kína.
Á fundi Ólafs Ragnars með Hu
Jintao, forseta Kína, fyrir nokkrum
dögum lýsti forseti Kína eindregn-
um stuðningi við þessa samvinnu
enda væri hún veigamikið framlag
til að breyta orkubúskap Kínverja í
átt til hreinnar orku. Ólafur Ragnar
skoðaði einnig nýja hitaveitu í Xian
Yang en aðeins eru tvö ár liðin frá
því undirritaðir voru samningar um
það verkefni þegar forseti kom í
opinbera heimsókn til Kína.
Á sunnudagskvöld átti Ólafur
Ragnar fund með ríkisstjóra
Shaanxi-fylkis þar sem ítarlega var
rætt um næstu áfanga í jarðhita-
samvinnu Shaanxi og Íslands. For-
seti lagði áherslu á að ítarleg úttekt
yrði gerð á jarðhitamöguleikum
fylkisins, að hitaveituframkvæmd-
um yrði hraðað og samvinna vís-
indamanna og sérfræðinga á þessu
sviði yrði efld.
Vilja efla samvinnu við Ísland
Ungir jafnaðarmenn í
Hafnarfirði (UJH) hvetja
bæjaryfirvöld og stjórn Strætó
bs. til að fella niður strætófar-
gjöld öryrkja og barna undir 18
ára. Það sé hin mesta kjarabót
fyrir öryrkja og fjölskyldufólk og
áhrifarík leið til þess að venja
yngstu kynslóðina á notkun
almenningssamgangna.
Þá fagna UJH kjöri nýrrar
stjórnar Ungra jafnaðarmanna,
ungliðahreyfingar Samfylkingar-
innar.
Frítt fyrir börn
og öryrkja
Óheppilegt var að kynna
breytingar á upphæðum flutn-
ingsstyrkja á sama tíma og
mótvægisaðgerðir vegna
samdráttar á
þorskveiðum,
sagði Jóhanna
Sigurðardóttir
félagsmálaráð-
herra á Alþingi
á þriðjudag.
Jóhanna
svaraði fyrir-
spurn Kristins
H. Gunnarsson-
ar, sem spurði
hvort ætlunin væri að bera fé í
fólk til að það flytti sig um set, í
stað þess að ríkisstjórnin axlaði
ábyrgð á atvinnuástandinu.
Jóhanna sagði ákvæði um
flutningsstyrki hafa verið í lögum
í vel á þriðja áratug og á síðustu
tíu árum hefðu átta styrkir verið
veittir.
Óheppilegt að
tengja styrki
þorskkvótanum
Flokkur Viktors
Jústsjenkó forseta og flokkur
Júlíu Timosjenkó hafa samþykkt
að bjóða flokki Viktori Janúkov-
itsj forsætisráðherra aðild að
nýrri ríkisstjórn.
Evrópusinnuðu flokkarnir tveir
fengu nægilega mörg atkvæði í
þingkosningunum í lok september
til að geta myndað stjórn með
naumum meirihluta, en
Jústsjenkó forseti lagði til að
samið yrði við flokk forsætisráð-
herrans, sem hlaut flest atkvæði í
kosningunum og aðhyllist nánari
tengsl við Rússland.
Janúkóvitsj fær
boð um aðild
Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur gefið út
reglugerð um loðnuveiðar á
vetrarvertíð 2008, að tillögu
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Heimilt verður að hefja loðnu-
veiðar 1. nóvember.
Bráðabirgðakvóti fyrir
komandi vertíð hefur verið
ákveðinn 205 þúsund lestir og
koma þar af rúmar 120 þúsund
lestir í hlut íslenskra loðnuskipa.
Heildarkvóti komandi vertíðar
er áætlaður 308 þúsund lestir og
þá eykst heildarkvóti íslensku
loðnuskipanna um 100 þúsund
lestir.
Kvótinn 205
þúsund tonn
Samtök hjúkrunarfræð-
inga í Danmörku hafa lýst yfir
reiði sinni vegna nærfataauglýs-
ingar þar sem hjúkrunarkona er
sýnd í kynferðislegu ljósi.
Áttunda hver hjúkrunarkona í
Danmörku hefur verið kynferðis-
lega áreitt í vinnunni samkvæmt
könnun frá 2005. Áreitnin kemur
frá sjúklingum, aðstandendum,
samstarfsmönnum og yfirmönn-
um en sjúklingarnir eru verstir.
Og auglýsingin mun ekki bæta
ástandið segir varaformaður
samtakanna, Dorte Steenberg, við
fréttavef Politiken. „Það er stórt
vandamál fyrir okkur að vera
kynferðislega hlutgerðar.“
Reiði yfir nær-
fataauglýsingu
Íslenskur raforkumarkaður
Einkavæðing - skipulagsbreytingar - samkeppni
Opinn morgunfundur Samtaka iðnaðarins
þriðjudaginn 16. október á Grand Hótel
Samtök iðnaðarins efna til morgunfundar um íslenskan raforkumarkað á
Grand Hóteli þriðjudaginn 16. október næstkomandi.
Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:15 og stendur til 10:30.
Ræðumenn:
Katrín Júlíusdóttir
formaður iðnaðarnefndar Alþingis
Árni Sigfússon
bæjarstjóri Reykjanesbæ
Bryndís Skúladóttir
verkfræðingur hjá SI
Friðrik Sophusson
forstjóri Landsvirkjunar
Tómas Már Sigurðsson
forstjóri Fjarðaáls og
stjórnarmaður í SI
Fundarstjóri:
Sveinn Hannesson
framkvæmdastjóri SI
Fundurinn er öllum opinn
Félagsmenn SI eru eindregið hvattir til að sækja fundinn