Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 70
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég er með dellu fyrir svona amer- ískum ævintýradrekum,“ segir söngvarinn Raggi Bjarna en hann er kominn á glæsilegan, vínrauðan Mercury Gran Marquis árgerð 2006. Mercury-merkið er reyndar flutt til Kanada en engum dylst um amerískan uppruna hans, enda rúmgóður og leðurklæddur í bak og fyrir að hætti bandarískra glæsivagna. Og Ragnar viðurkenn- ir að hann sé kannski ekki sá eyðslugrennsti á markaðinum. „Ég átti einn svona frá árinu 1998 og keyrði hann út um allt. Er reyndar að reyna að selja hann en hann er keyrður 248 þúsund kílómetra enda held ég að ég sé einn upptekn- asti ellilífeyrisþegi landsins,“ segir Raggi, hress að vanda og að sjálf- sögðu úti að keyra á nýju drossí- unni. Ragnar segist hafa átt marga bíla, helst ameríska þótt auðvitað hafi það komið fyrir að hann hafi svikið lit. „Ég var alltaf á svona köggum þegar ég var í harkinu og keyrði út um allt,“ segir söngvar- inn og rifjar upp kaupin á fyrsta bílnum sínum en hann var keyptur hjá bílasölu Guðmundar á Klappar- stígnum árið 1956. „Þetta var Dodge ´55 árgerð og ég fékk lán fyrir honum hjá Vátryggingarfé- laginu. Ég rétt náði honum áður en einhverjir náungar frá happdrætti keyptu hann,“ segir Ragnar og hlær en hann er á fullu að syngja á söngskemmtun Hótel Sögu ásamt Hara-systrum og Bjarna Ara. Raggi á kanadískum kagga „Við erum komin til að vera, það er ekki spurning,“ segir fjölmiðlamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson en á morgun hefur sjónvarpsstöð hans, ÍNN, útsendingar að nýju eftir sumarleyfi. Eins og Frétta- blaðið hefur greint frá hóf Ingvi Hrafn tilraunaútsendingar á stöðinni í vor en þá byggðist dagskráin í kringum hans eigin þátt, hið sívinsæla Hrafnaþing. Að þessu sinni verður dagskráin bæði fjöl- breyttari og öflugari, þó að Hrafnaþing verði sem fyrr flaggskip stöðvarinnar. „Ég verð með Hrafnaþing þrisvar í viku, hálftímaþátt tvisvar sinnum og svo klukkutíma á föstudögum. Annars verða þarna með mér Katrín Jakobsdóttir og Illugi Gunnarsson sem stjórna saman þætti, Kiddi sleggja verður með þátt og svo verða þau Magga Frímanns og Mörð- ur Árnason hvort með sinn þáttinn,“ segir Ingvi Hrafn kokhraustur. En þar með er dagskráin ekki upp talin því Maríanna Friðjónsdóttir, sem jafnframt er sjónvarpsstjóri ÍNN, og Ólína Þor- varðardóttir skiptast á um að stjórna vikulegum þætti þar sem fjórar konur verða í aðalhlutverki hverju sinni. Ásdís Olsen mun stjórna neytendaþættinum Vertu ekki að plata mig og Guðjón Berg- mann verður með eigin þátt. „Svo má ekki gleyma þættinum hans Randvers Þorlákssonar,“ segir Ingvi sem útilokar ekki að Randver gleðji aðdáend- ur sína með því að koma fram í kven- mannsgervi á stöðinni. „Hann hefur alveg frjálsar hendur, það gæti meira en verið að Randólína láti sjá sig.“ Sjónvarpsstöðin ÍNN mun senda út frá klukkan 20 til 22 á virkum dögum. Stöðin verður áfram aðgengileg á Vísi.is en sú breyting er nú orðin á að hægt er að nálgast hana á rás 20 á Digital Ísland. „Við eigum að nást á 90 þús- und heimilum, alveg frá Vest- mannaeyjum og austur að Egils- stöðum.“ Meistari ljósvakans blæs til sóknar „Fyrst drekk ég staðið vatn með sítrónusafa og tek með því nokkrar vítamíntöflur og eina matskeið af hörfræolíu. Síðan borða ég korngraut með rúsínum, rjóma og kanil. Með þessu drekk ég yfirleitt myntute eða rauðrunnate. Að öllu þessu loknu fæ ég mér kaffi.“ „Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna,“ segir fyr- irsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deC- ODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harri- son. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey. Vísir greindi frá vinfengi þeirra Sólveigar og Dhanis í sept- ember en þá vildi Sólveig ekkert kannast við að örvar Amors hefðu hæft þau í hjartastað heldur að hann væri „aðstoðarmaður hennar“, eins og hún komst að orði þá. Sólveig sagði í samtali við Frétta- blaðið í gær að þau Dhani hefðu ekki staldrað lengi við meðal þotuliðsins í Hafnarhúsinu. Enda kunni hún ekkert sérstaklega vel við sig í slík- um hópi. Dhani fékk síðan far með Ringo Starr á einkaþotunni og flaug til London en Sólveig er á leið til New York þar sem hún hyggst klára BA-ritgerð sína í sálfræði. En sam- band þeirra Sólveigar og Dhansi er farið að vekja athygli og Egill Helga- son sá sig knúinn til að greina frá því á bloggi sínu að hann hefði jafn- vel séð vísi að sköpun næsta tengda- sonar þjóðarinnar í hlaðborði borg- arstjórans. „Dhani var í fylgd […] með ljóshærðri íslenskri stúlku. Ég sá ekki betur en að hann væri að kyssa hana. Nýr tengdasonur fyrir þjóðina?“ spyr Egill á bloggi sínu og bætir því við að Dhani hafi verið sá eini úr Bítlafamilíunni sem hann hafi komist í tæri við og hann hafi lýst yfir ánægju sinni með útgáfu Dhanis og Jakobs Dylan, sonar Bobs Dylan, á laginu Gimme Some Truth. Sólveig er dóttir Kára Stefánsson- ar, forstjóra deCODE, og hefur getið sér gott orð fyrir fyrirsætustörf. Dhani er hins vegar meðlimur í electro-blues hljómsveitinni then- ewno2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.