Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 29
Tískuviku í París lauk á sunnudag og að vanda var margt að sjá. Hönn-
uðir lofa litríku sumri í kventísku en eru langt frá því að vera einslitir
í stíl. Allt frá fáguðum Hollywood-stíl áranna 1930-40 að pönkuðu rokk
og róli Vivienne Westwood, inni á milli arkitektúrískur stíll Cristobals
Balenciaga sem Nicolas Ghesquiere endurvinnur í sterkari litum og
skarpara sniði.
Einn af áhugaverðari nýjum hönnuðum sem sýndu í þetta skiptið í
París er indverskur, Manish Arora að nafni. Hann er ættaður frá Nýju-
Delí og hefur í tíu ár hannað í föðurlandi sínu þar sem hann er stjarna
og hannar meðal annars fyrir hinar frægu Bollywood-myndir en
dreymdi eins og marga um að sýna í París. Arora tekur ýmis inversk
tákn og vinnur með nýstárlegum hætti og er því trúr uppruna sínum.
Fyrsta sýningin til að vekja umtal var hjá Pierre Balmain en þar
hefur Christophe Decarnin yngt stílinn upp hjá hinu gamla tískuhúsi
og hefur tekist á nokkrum mánuðum að gjörbreyta ímynd þess og
skreytir sig nú með stjörnuviðskiptavinum sem vilja ólmir ganga í
hönnun hans.
John Galliano ætlar lengi að nota sér 60 ára afmæli tískuhússins til
að endurvinna hugmyndir meistara „New-look“ Christians Dior. Sýn-
ing Dior-tískuhússins var mjög mótuð af hönnun Dior frá um 1940 í
anda Hollywood-stjarna eins og Marlene Dietrich, Gretu Garbo og svo
seinna Audrey Hepburn (í Breakfast at Tiffany´s er allt sem Hepburn
klæðist frá Dior). En það er svo merkilegt með John Galliano eins og
hann getur verið „extravaganskur“ þá reyndist hann frekar þægur í
þetta skiptið og fatnaðurinn óvenju nothæfur. Mikið unnið með þunnt
silki, litirnir fölir pastellitir, bleikt, myntugrænt og parme. Annað-
hvort síðir kjólar eða örstuttir sem minna á klæðnað í gleðihúsum
snemma á tuttugustu öld. Galliano þarf hins vegar að fara að endur-
nýja sig.
Jean-Paul Gaultier var með frumlega sýningu í anda sjóræn-
ingjanna úr Karíbahafinu og korselettinu hans fræga. Litirnir sterkir,
rautt, hvítt, svart og röndótt og alls kyns höfuðföt og klútar að hætti
sígauna. En Gaultier segir sjónræningjana sem ferðuðust og stálu hér
og hvar minna á fatahönnuði sem eru alltaf að leita að hugmyndum og
stela hver frá öðrum. Að vanda blandar hann saman kvenlegu og karl-
mannlegu og af því að Gaultier þarf alltaf að vera öðruvísi en aðrir þá
dugði ekkert minna en fimmtán brúðir í lok sýningarinnar.
Engin ein lína lýsir kventísku næsta sumars, hún er sambland af
ýmsum stílum, straumum og litum, sumt er í fölum pastellitum en
annað er í hressandi litum sem gleðja augað.
Fæst í heilsubúðum,
apótekum,
og heilsuhornum
verslana
Einnig sjampó, hárnæring o.fl.
DREIFING: BLÓM Í EGGI: SÍMI: 552 6500
• 100% náttúrulegir jurtalitir
• Engin skaðleg aukaefni
• Ekkert ammóníak
• Laust við festiefni (Resorcinol)
• Þægilegt og fljótlegt í notkun
• 30 litir (Hægt að blanda fleiri)
Nýjar vörur
Nýjar vöru
ýjar v
Nýjar vörur
Nýjar vöru
Ný
jar
vö
ru
r
örur
Nýtt kortatímabil
Sendum í póstkröfu
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki