Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 22
nám, fróðleikur og vísindi
Nýr tungumálaskóli á netinu sem
mun bjóða upp á námskeið í
ýmsum tungumálum hefur nú
verið opnaður. Tungumálaskólinn
er íslenskt fyrirtæki og meðal
tungumála sem í boði verða eru
íslenska, spænska og ítalska.
Menntamálaráðuneytið hefur
gefið vilyrði fyrir því að niður-
greiða nám hjá Tungumálaskólan-
um í íslensku fyrir nema sem búa
á Íslandi.
Námið í Tungumálaskólanum
byggist á því að lesa, hlusta, skrifa
og tala tungumálið í gegnum þá
tækni sem netið býður upp á.
Helsta nýjungin sem Tungumála-
skólinn býður upp á eru taltímar
sem fara fram í gegnum símafor-
ritið Skype sem hægt er að sækja
sér af netinu endurgjaldslaust.
Einnig verður unnið að ákveðn-
um „samtalsþætti“ á samskipta-
forritinu MSN sem hefur gefist
vel í kennslu hjá kennurum Tungu-
málaskólans. Þá verða í hverju
námskeiði spjallþræðir þar sem
nemendur geta kynnst.
Nemendur Tungumálaskólans
munu hafa aðgang að afþreyingar-
vef á því tungumáli sem þeir eru
að læra þar sem hægt verður að
vinna leikjatengt efni.
Skráning hófst í gær og munu
námskeið hefjast 1. nóvember.
Nýr tungumálaskóli á netinu
Menningarfræðileg þekking verði arðbær
Á leikskólanum Dverga-
steini í Vesturbæ Reykja-
víkur er fengist við ýmis
verkefni er snúa að íslensku
máli og málörvun. Til þess
eru notaðar þjóðsögur með
gamaldags og stundum
skrítnu orðalagi.
„Verkefnið heitir Ótrúleg eru ævin-
týrin og er eftir hana Sigríði J.
Þórisdóttur. Við vinnum stöðugt
með mál og málörvun hér og vinn-
um með eina þjóðsögu hvern vetur,“
segir Jóhanna Ragnarsdóttir leik-
skólakennari. „Þetta var upphaf-
lega sérkennsluefni en var síðar
sett upp fyrir bæði leik- og grunn-
skóla,“ heldur hún áfram.
„Við erum þau einu sem vinnum
með þetta sem þema hússins,“
bætir Elín Mjöll Jónasdóttir, leik-
skólastjóri á Dvergasteini, við. „Við
leituðum í fjölmarga kenninga-
smiði og vinnum í máli og verki og
nýtum marga möguleika. Við lesum
ekki bara söguna heldur látum við
börnin tjá sig í gegnum mörg
form.“
„Við fléttum alla þætti námsins
inn í þetta verkefni og þannig sinn-
um við okkar skyldum gagnvart
námskránni. Við leggjum inn sög-
una, lesum hana nákvæmlega og
vinnum síðan með einstök orð og
tengjum þau nútímanum. Mörg orð
eru erfið en fljótlega eru börnin
farin að nota þau. Sem dæmi þegar
við lásum Gilitrutt þá sagði ein-
hver: Ef ég hefði nú verið duglaus
og dáðlaus, þá væri ég nú ekki búin
að gera þetta!“ segir Jóhanna og
hlær dátt.
Börnin á Dvergasteini kynnast
þjóðsögunum á margvíslegan hátt
og leikur myndmennt stórt hlut-
verk, þar sem leikskólinn er í sam-
starfi við Myndlistaskóla Reykja-
víkur. Þá er einnig notuð hreyfing
og dans, tónlist og stærðfræði.
Börnunum er einnig boðið upp
á fjölbreytilegan efnivið. Þau
sauma svuntur, búa til kæfu,
kryfja fiska og þæfa ull svo dæmi
séu tekin.
„Við byrjum á því að ákveða
sjálfar hvað við ætlum að gera en
ef það koma upp hugmyndir frá
börnum á leiðinni þá reynum við
að framkvæma þær. Við ráðum
ekkert ferlinu, heldur stýra börn-
in því. Þannig verður þetta frum-
leg og frjó vinna og allir taka þátt
í henni. Eldhúsið og foreldrarnir
líka. Sagan er alltaf í huga okkar
hvað sem við erum að gera,“ segir
Jóhanna og þær Elín sammælast
um að fjölbreytileiki og flæði
hugmyndafræðinnar sé einstakt.
Ævintýralega skemmti-
legt á Dvergasteini