Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 66
Júlíus Jónasson, þjálf-
ari A-landsliðs kvenna, hefur valið
16 manna hóp fyrir æfingamót
sem fram fer í Hollandi dagana
17.-21. október. Í hópnum eru tveir
nýliðar; Framararnir Sara Sigurð-
ardóttir og Þórey Rósa Stefáns-
dóttir, en eins eru í liðinu fleiri
ungir leikmenn sem eiga ekki
marga leiki að baki. Fram á líka
flesta leikmenn í liðinu en liðið er
einmitt óvænt á toppnum í N1-
deildinni.
„Framstelpurnar hafa verið að
standa sig vel og stóðu sig líka vel
í fyrra þar sem það var mikill stíg-
andi hjá þeim. Þær eru að upp-
skera fyrir það. Ég hef verið að
taka jafnt og þétt yngri leikmenn
inn í hópinn og mun halda mig við
það að taka þær inn við hlið eldri
stuðbolta,“ segir Júlíus en mótið í
Hollandi er fyrsta verkefni lands-
liðsins síðan í vor.
„Þetta er árlegt mót og við
höfum verið með í nokkur ár. Þetta
er æfingamót fyrir undankeppni
EM í Litháen í næsta mánuði. Þetta
er mjög flott mót, vel skipulagt og
það mætir mikið af áhorfendum.
Það er vel staðið að öllu,“ segir
Júlíus en íslenska liðið er í riðli
með Hollandi, Japan og Spáni á
mótinu í Hollandi.
„Þýskaland er sterkast í hinum
riðlinum og Holland er sterkast í
okkar riðli,“ segir Júlíus en
íslenska landsliðið spilaði tvo
æfingaleiki við bæði þessi lönd í
vor. „Það verða allir leikir erfiðir
fyrir okkur. Ég er með nokkuð
breytt lið miðað við oft áður. Það
eru forföll, bæði vegna óléttu og
annarra ástæðna,“ segir Júlíus.
Hrafnhildur og Drífa Skúladætur
eru báðar í barnsburðarfríi alveg
eins og Ágústa Edda Björnsdóttir.
Guðbjörg Guðmannsdóttir fær frí
vegna persónulegra ástæðna og
Stjörnustúlkurnar Elísabet Gunn-
arsdóttir (meidd) og Sólveig Lára
Kjærnested (nám) eru heldur ekki
með.
„Við vorum með æfingar í vor
þar sem við fórum til Hollands og
spiluðum leiki við Þýskaland.
Síðan þá hafa stelpurnar bara
verið með sínum félagsliðum.
Þegar maður valdi þennan hóp þá
tók maður bæði inn í þennan
árangur sem leikmenn hafa verið
að ná í haust en einnig hvernig
þær stóðu sig í vor því það eru svo
fáir leikir búnir,“ segir Júlíus, sem
ætlar að nýta mótið vel til þess að
slípa liðið fyrir undankeppnina
þar sem Ísland er í riðli með Hvíta-
Rússlandi, Litháen, Bosníu, Grikk-
landi og Ísrael.
Framstúlkur fjölmennastar í landsliðinu
Ragnar Sigurðsson,
miðvörður íslenska landsliðsins
og Gautaborgar, hefur vakið
mikla athygli fyrir góðan leik í ár
og samkvæmt sænskum fjölmiðl-
um er stórlið Roma á eftir honum.
„Ég reyni nú að hugsa ekki mikið
um það á meðan félagsskipta-
glugginn er lokaður og það yrði
enginn heimsendir ef ég yrði
áfram hjá Gautaborg. En auðvitað
eru svona fréttir mikið hrós og
jafnframt spark í rassinn til þess
að leggja sig meira fram,“ sagði
Ragnar ákveðinn.
Er orðaður við
stórlið Roma