Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 64
 FH-ingar voru ekki lengi að ganga frá þjálfaramálum sínum því um leið og Ólafur Jóhannesson tjáði þeim að hann væri hættur settust þeir að samn- ingaborðinu með Heimi Guðjóns- syni og lokuðu málinu á stuttum tíma. Heimir mun skrifa undir tveggja ára samning við FH með endurskoðunarákvæði í lok næsta sumars. „Ég lít á þetta verkefni sem mikla áskorun fyrir mig. Ég er búinn að vera hjá FH sem leik- maður, fyrirliði og aðstoðarþjálf- ari þannig að þetta er rökrétt skref í framhaldi af því,“ sagði Heimir við Fréttablaðið í gær en óttast hann ekkert að þurfa að feta í fótspor farsæls þjálfara á borð við Ólaf? „Ég óttast það ekk- ert en það er vissulega verðugt verkefni að halda velgengninni áfram enda hefur Óli gert alveg frábæra hluti með FH-liðið.“ Heimir er lítið farinn að skoða leikmanna- og aðstoðarþjálfara- málin en hann segist ætla að taka sér góðan tíma í að finna rétta aðstoðarmanninn. Hann var lengi orðaður við sitt gamla félag, KR, og fer ekkert í grafgötur með að hafa verið í viðræðum við KR. „KR talaði við mig. Þeir vildu fá mig til að koma að uppbygg- ingu yngri flokka og hugsa um akademíuna þeirra. Það var vissu- lega freistandi líka en þegar í ljós kom að Óli myndi hætta gat ég ekki sleppt tækifærinu á að taka við liðinu enda rökrétt framhald á mínum ferli. Mér hefur liðið mjög vel í FH og mun líða þar vel áfram,“ sagði Heimir. Verðugt verkefni að feta í fótspor Ólafs Það urðu kaflaskil í knatt- spyrnusögu FH í gær þegar Ólaf- ur Jóhannesson tjáði stjórn knatt- spyrnudeildar félagsins að hann væri hættur að þjálfa karlalið félagsins. Undir stjórn Ólafs varð FH algjört yfirburðalið í íslenskri knattspyrnu. FH varð Íslands- meistari þrjú ár í röð og tók bikar- inn í ár. Hin tvö árin sem Ólafur stýrði FH varð liðið í öðru sæti deildarinnar. Titlarnir voru þess utan þeir fyrstu hjá FH í fótbolt- anum. „Þetta er búinn að vera fínn tími hjá FH. Ég hef stýrt liðinu í fimm ár og það er hæfilegur tími. Ég held það sé kominn tími til að leyfa einhverjum öðrum að prufa. Ég skil mjög sáttur við félagið og mér líður vel með ákvörðunina og að hafa þorað þessu,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið í gær en menn spyrja sig óhjákvæmilega að því hvað hann ætli sér að gera fram- haldinu. „Ég veit ekkert hvað ég geri næst. Ég tek á því þegar á þarf að halda,“ sagði Ólafur en hann hefur meðal annars verið orðaður við KR síðustu daga. Hefði hann áhuga á að þjálfa KR? „Ég er ekk- ert farinn að leiða hugann að því einu sinni. Ég ætla að skoða aðeins hvað gerist hjá mér næstu daga. Það kemur vel til greina að hætta. Konan mín sagði mér að panta utanlandsferð 15. júní næsta sumar því þá væri hún búin að kenna.“ Ólafur vildi heldur ekki tjá sig um hvort hann hefði áhuga á lands- liðsþjálfarastarfinu en samningur Eyjólfs Sverrissonar við KSÍ renn- ur bráðlega út. Ólafur segir það ekki eintóman dans á rósum að þjálfa í Landsbankadeildinni. „Þetta er mjög skemmtileg vinna en einnig mjög erfið. Því lengur sem maður er hjá sama félaginu þeim mun erfiðara verð- ur starfið. Hættan er sú að maður verði kærulaus og annað álíka,“ sagði Ólafur sem neitar því að hafa verið orðinn saddur eftir að hafa unnið allt með FH. „Það er fullt af áskorunum hjá FH og það var mjög gott að starfa þar.“ Ólafur Jóhannesson er hættur að þjálfa karlalið FH í knattspyrnu. Ólafur náði frábærum árangri og undir hans stjórn unnust fyrstu titlar Fimleikafélagsins – þrír Íslandsmeistaratitlar og einn bikarmeistaratitill. Framhaldið er óljóst hjá Ólafi. Hann útilokar þó ekkert, hvorki félagslið né landsliðið. KR ekki á eftir Ólafi og Logi ráðinn fyrir helgi Vinningar verða afhendir hjá BT Sm áralind. Kópavogi. M eð því að taka þátt ertu kom inn í SM S klúbb. 99 kr/skeytið. SMS LEIKUR 9. HVER VINNUR! SENDU SMS JA GLF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Fru ms ýnd 12 . ok tób er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.