Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur
SÁÁ fagna 30 ára starfsaf-
mæli um þessar mundir og
af því tilefni stóðu samtökin
fyrir þriggja daga ráð-
stefnu um fíkn. Niðurstaðan
er að hér sé stórt lýðheilsu-
vandamál við að eiga.
Það er kannski lýsandi fyrir breyt-
ingar á íslensku samfélagi síðustu
þrjá áratugi að þegar Samtök áhuga-
fólks um áfengisvandann var stofn-
að var það vegna óánægju með þá
meðferð sem stóð áfengissjúku
fólki til boða. Það var ekki fyrr en
síðar að vímuefnavandanum var
hnýtt aftan við upphaflegt nafn
samtakanna. Áfengisbölið er vissu-
lega enn hluti af lífi stórs hóps
Íslendinga en eftir að hafa hlýtt á
fjölmörg erindi fræðimanna og
hagsmunaaðila þá þrjá daga sem
ráðstefnan stóð þá er neysla ann-
arra vímuefna jafnvel enn stærri
vandi. Gamli túrakarlinn hefur
gengið úr rúmi fyrir ungt fólk sem,
að sögn Þórarins Tyrfingssonar,
yfirlæknis SÁÁ, kemur hundruðum
saman hálfsturlað í meðferð vegna
neyslu örvandi vímuefna.
Enn er það svo að áfengi er það
vímuefni sem rekur flesta einstakl-
inga í meðferð hjá SÁÁ. Á síðasta
ári greindust átta af hverjum tíu
sem komu á Vog með áfengis-
vanda.
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir
SÁÁ, og Sigurður Gunnsteinsson
ráðgjafi fluttu athyglisvert erindi
um áfengissýki eldra fólks. Niður-
staða þeirra er að áfengissýki fólks
á seinni hluta ævinnar hefur aukist
mikið hér á landi síðastliðinn ára-
tug. Eldra fólk leitar sér aðstoðar
hjá SÁÁ í síauknum mæli og neyslu-
mynstur á áfengi hefur breyst í
sjúklingahópi sjúkrahússins og ein-
kennist nú meira af dagdrykkju en
áður. Vandi þeirra sem eldri eru er
oft flóknari og djúpstæðari en yngri
sjúklinga sem leita sér aðstoðar.
„Eldri einstaklingar koma til
okkar með þennan vanda sem birt-
ist í félagslegum erfiðleikum og
ekki síst í samskiptum innan fjöl-
skyldunnar,“ sagði Valgerður.
„Áfengisneyslan kemur hart niður
á líkamlegri og andlegri heilsu
eldra fólks og félagsleg staða þess
er oft bágborin.“ Sigurður Gunn-
steinsson ráðgjafi fjallaði sérstak-
lega um meðferð á fullorðnum ein-
staklingum sem hefur skilað góðum
árangri.
Á ráðstefnunni kom fram ítrekað
að á síðustu fjórum árum hefur
neysla amfetamíns aukist gríðar-
lega. Starf SÁÁ árið 2006 einkenn-
ist ekki hvað síst af því að aldrei
hafa komið eins margir einstakl-
ingar til meðferðar sem eru stór-
neytendur amfetamíns. Þórarinn
Tyrfingsson setti í brennipunkt
fyrir ráðstefnugesti hversu vand-
inn er orðinn mikill. „Sennilega
fara fjögur prósent af öllum piltum
á aldrinum 20 til 25 ára inn í þessa
fíkn á þessu aldursbili eins og stað-
an er í dag. Af þeim sem greindust
með þessa fíkn árið 1996 eru 30
þegar látnir og 20 af þeim náðu
ekki 35 ára aldri.“
Stór hópur þeirra sem eiga við
fíkn í örvandi vímuefni að stríða
eru sprautufíklar. Í erindum Har-
aldar Briem sóttvarnarlæknis og
Sigurðar Ólafssonar, læknis á
Landspítalanum, kom fram að
margir sprautufíklar eru smitaðir
af lifrarbólgu C en alnæmissmit
innan þessa hóps er nær óþekkt.
Mikil fjölgun tilfella af lifrarbólgu
C er þó metin sem varúðarmerki
um að stutt sé í að alnæmisfarald-
ur geti herjað á þennan hóp.
Rafn M. Jónsson, sviðsstjóri á Lýð-
heilsustofnun, fjallaði um kannan-
ir á neyslu grunnskólabarna á
Íslandi og kom fram í máli hans að
frá árinu 1995 er vel merkjanlegt
að neysla áfengis og vímuefna auk
tóbaks hefur minnkað innan þessa
hóps. Jafnframt var sleginn sá var-
nagli að ósennilegt væri að kann-
anir af þessu tagi næðu til þeirra
sem í mestu neyslunni eru. Þórar-
inn Tyrfingsson sýndi fram á að
tölfræði sjúkrahússins sanni að
neyslutölur hafa ekki forspárgildi
en sýni að gott forvarnastarf er
unnið á grunnskólastiginu. Sagði
hann gífurlegt magn gagna um
neyslu ungmenna liggja fyrir en
fjármagn skorti frá hinu opinbera
til að greina þær upplýsingar
markvisst.
Ófeigur T. Þorgeirsson, yfirlæknir
á slysa- og bráðadeild Landspítal-
ans (SBD), hélt erindi um eina
öfgafyllstu birtingarmynd þess
vanda sem við er að glíma, ofbeldi.
Kom fram í máli hans að einstakl-
ingum sem koma á SBD með
ofbeldisáverka hefur fjölgað um
35 prósent síðan 1998. Það segir þó
ekki nema hálfa söguna því árin
2005 og 2006 skera sig úr þar sem
fjölgunin er sláandi.
Umræðan um áfengis- og vímu-
efnavandann kristallast iðulega í
umræðunni um „ástandið í mið-
bænum“. Einföldunin er mikil og
gerir jafnvel lítið úr þeim vanda
sem við er að eiga. Á ráðstefnunni
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri í pallborðsumræðum
að sér fyndist yfirvöld ekki hafa
tekið á aukinni vímuefnaneyslu af
nægilega mikilli festu. „Þrátt fyrir
góðan vilja ríkis, sveitarfélaga og
félagasamtaka til að láta gott af sér
leiða þá virðist mér eins og menn
viti ekki nákvæmlega hvað eigi að
gera.“
Þórarinn Tyrfingsson vill að
borgarstjóri taki að sér að kalla til
þá sem hagsmuna hafa að gæta og
segir hann lykilmann vegna pólit-
ískrar stöðu sinnar. Hann geti kall-
að til samstarfs yfirmenn heilbrigð-
isstofnana, þá sem annast meðferð
vegna áfengis- og vímuefnaneyslu
og hagsmunaaðila eins og fulltrúa
íbúa og fyrirtækja. Þórarinn telur
samstarf þessara hópa og skilning
yfirvalda á þörf á auknu fjármagni
forsendu þess að snúa vörn í sókn.
Fíkn er stórt lýðheilsuvandamál
Rannsóknar-
hagsmunir
Heiður og upphefð Nóbelsverðlaunahafa
TH E
E DG E
OF
H EAVEN
KVIKMYND E F T IR
F A T IH AK IN
BESTA HANDRITIÐ
CANNES 2007
TILNEFND TIL
GULLPÁLMANS
CANNES 2007
„Dramatísk, falleg og bjartsýn þrátt fyrir
grimma atburðarás...einkar ánægjulegt
að sjá Schygullu, drottnandi líkt og á
tímum Fassbinders ...ein athyglis-
verðasta mynd hátíðarinnar.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
FRUMSÝND 12 . OKTÓBER SÝND Í REGNBOGANUM
HIN HLIÐIN | AUF DER ANDEREN SEITE