Fréttablaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 60
Breska tískuráðið, the Brit-
ish Fashion Council, hefur
tilkynnt hvaða hönnuðir eru
tilnefndir til verðlaunanna
í ár. Þrír eru tilnefndir sem
tískuhönnuðir ársins, en svo
skemmtilega vill til að þar
eru eingöngu konur á ferð-
inni: þær Anya Hindmarch,
Luella Bartley og Stella
McCartney.
Christopher Kane, Gareth Pugh
og Marios Schwab slást hins
vegar um upphefðina sem fylgir
því að vera valinn nýgræðingur
ársins í tískuheiminum. Verð-
launahafar í öllum flokkunum tíu
verða tilkynntir við hátíðlega
athöfn 27. nóvember næstkom-
andi.
Tónlistarmaðurinn Mugison hefur
lokið við nýjustu plötu sína og er hún
væntanleg í búðir sautjánda október.
Platan nefnist Mugiboogie og er tölu-
vert rokkaðari en Mugimama is this
Monkeymusic? sem kom út fyrir þrem-
ur árum.
„Þetta gæti eiginlega verið plata
með Elvis Presley, svona Elvis á síð-
ustu metrunum í Vegas orðinn alltof
feitur,“ segir Mugison, sem fékk góða
aðstoð við gerð plötunnar. Meðal þeirra
sem voru honum til halds og trausts
voru Pétur Ben, Davíð Þór Jónsson og
gítarleikarinn Björgvin Gíslason.
Að sögn Mugisons varð ekkert úr því
að hann færi til Memphis, heimaborg-
ar Elvis, til að taka upp plötuna. Þess í
stað ætlaði hann að taka upp lagið
Jesus is a Good Name to Moan í Brixt-
on í London en það datt líka upp fyrir.
„Ég hætti við hálftíma áður en ég átti
að fara í flugið. Ég fílaði ekki útgáfuna
af laginu þannig að við skelltum okkur
í „live take“ á laginu. Ég fílaði hana og
hún endaði á plötunni. Það vantaði
gredduna í hina útgáfuna.“
Mugison spilar næst laugardaginn
20. október á Nasa á Iceland Airwaves-
hátíðinni þar sem lög af nýju plötunni
fá væntanlega að hljóma í bland við
eldri slagara.
Mugiboogie tilbúin
Hljómsveitin Radiohead ætlar ekki
að gefa upp hversu margir hafa
pantað nýjustu plötu þeirra, In Rain-
bows, á netinu. Sveitin ætlar heldur
ekki að segja frá því hversu mikið
aðdáendur hafa borgað fyrir plöt-
una, sem var fyrst hægt að hlaða
niður af heimasíðu hennar í gær.
Aðdáendur geta ráðið því hversu
mikið þeir borga fyrir plötuna og ef
þeir vilja geta þeir sótt hana án
endurgjalds. Ekki er talið að platan
komist á vinsældalista í Bretlandi á
meðan sölutölunum er haldið leynd-
um. Stærri útgáfa af plötunni, með
aukadisk og textabók, verður fáan-
leg frá og með 3. desember.
Sölutölur eru leyndarmál
Dagskráin byrjar á tískusýningu kl. 18.30
á móti KAREN MILLEN í Kringlunni
Sigga Lund kynnir
Sigga Beinteins syngur lög af nýrri
plötu sem kemur út í haust
Make up store kynnir nýjustu línuna
Allir viðskiptavinir eiga möguleika á
að vinna 25-30 þús. kr. Inneignir
K AREN MILLEN AL L S A INTS WAREHOUSE
FIMMTUDAGINN 11.OKTÓBER