Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 16

Fréttablaðið - 11.10.2007, Page 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Á móti síun Hraðbrautar „Mig langaði að halda almenni- lega upp á fertugsafmælið mitt en hins vegar langaði mig ekkert sérstaklega í blóm, styttur og þess háttar. Ég spurði þau á nýrnadeildinni hvort það væri ekki eitthvað sem vantaði þang- að. Mér var þá réttur bæklingur sem innihélt upplýsingar um tæki sem ég hef þegar pantað,“ segir Hólmar. Tækið sem um ræðir er 600 þúsund króna ómsjá. „Hún kemur til með að nýtast fjölda sjúklinga á spítalanum, ekki síst nýrna- veikum,“ segir Hildur Þóra Hall- björnsdóttir, deildarstjóri á melt- ingar- og nýrnadeild 13E. Afmæli Hólmars hefst klukkan átta á Players á morgun. Hann segir öllum velkomið að líta inn, kunnugum jafnt sem ókunnugum. Gestir eigi þó ekki að hafa með sér gjafir heldur greiða 2.000 krónur í aðgangseyri. Ágóðinn verði svo notaður til að standa straum af tækinu. „Ég ætla bara að vona að gömlu skólafélagarnir, krakkarnir úr dansinum og fleiri sem maður hefur kynnst láti sjá sig,“ segir Hólmar og hlær. Skemmtiatriðin verða ekki af verri endanum en sjálf Andrea Jónsdóttir ætlar að þeyta skífum auk þess sem tónlistarmennirnir Jónsi og Magni koma fram. „Ég hef starfað sem húsasmið- ur hjá Innliti/Útliti og átti smá greiða inni hjá þeim og tóku þau vel í að launa hann til baka í afmælinu,“ segir Hólmar um ástæður þess að hann hefur feng- ið til sín svo vinsæla skemmti- krafta. „Þetta átti samt aldrei að verða svona mikið, boltinn bara fór að rúlla og vatt upp á sig. Nú er svo komið að fólk sem ég hef ekki séð í fjölda ára hefur haft samband við mig og vill leggja málefninu lið þótt það komist ekki í veisluna,“ segir Hólmar en fyrir það fólk hefur hann stofnað reikning í Byr: 1195-05-402889 kennitalan er 250967-2929. Safnar fyrir ómsjá á Players „Þetta var alger snilld. Ég var djúpt snortinn,“ segir ástralski rokkblaðamaðurinn Ritchie York sem dvelur nú á Íslandi og fylgd- ist með tendrun Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey. Með Yoko var sonur hennar, Sean Lennon, auk þess sem Olivia, ekkja George Harrison, flaug hingað með syni þeirra hjóna og sjálfum Ringo Starr til að vera við athöfnina í Viðey. „Það var yndislegt að sjá þau öll saman komin til að styðja John. Það er frábært að þau haldi áfram að senda jákvæð skilaboð – eins og tónlistin þeirra gerði alla tíð,“ segir Ritchie. Athygli vakti hversu Ringo leit vel út og virtist vel á sig kominn. „En eins og þau öll þá hefur Ringo átt sín góðu og slæmu augnablik. Þegar maður breytir heiminum sem einn af Bítlunum þá breytir heimurinn þér líka,“ útskýrir Ritchie. Rétt fjörutíu ár eru síðan Ritchie gerðist fyrsti rokkblaða- maður kanadíska blaðsins Tor- onto Globe and Mail. Hann er einmitt hér sem fulltrúi þess blaðs auk þess að vera á vegum Fairfax-samtakanna í Ástralíu. Ritchie segir John Lennon og Yoko hafa veitt sér innblástur um það hvernig nota mætti tón- list til að ná samfélagslegum markmiðum. Hann hafi starfað að því að breiða út friðarboð- skapinn, á svipaðan hátt og Yoko sé enn að gera. „Það er yndislegt að sjá Yoko enn að gera svona dásamlega hluti,“ segir Ritchie York. Friðarsúla Yoko er alger snilld Fólk bregst við slæmum tíðindum á misjafnan hátt. Hólmar Þór Stefánsson, smiður og samkvæmisdansari, fékk nýlega þær fréttir að hann væri með nýrnabilun. Læknar hafa sagt honum að hann eigi að byrja í blóð- skilun um áramót og verið er að leita að heppilegum nýrnagjafa. Hólmar sjálfur er svo að skipuleggja mikla veislu á Players til að safna fyrir tæki sem vantar á Land- spítalann. Leyst úr öllum málum Kýrskýrt Jólaundirbúningur hefst snemma KVIKMYND EFTIR ALEKSANDR SOKUROV KLIPPIÐ HÉR! - Ekkert hlé á góðum myndum Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu. FRUMSÝND 12 . OKTÓBER SÝND Í REGNBOGANUM www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig „Galina Vishnevskaya hefur yfir sér reisn sviðsleikkonunnar...Sokurov segir mannlega sögu í litlausum heimi ...ljúfsár og tregablandin mynd.“ - Anna Sveinbjarnardóttir, Morgunblaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.