Fréttablaðið - 11.10.2007, Side 36

Fréttablaðið - 11.10.2007, Side 36
 11. OKTÓBER 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið blessuð börnin Sögustund á Sólbakka Hvað gerðirðu í sumar? „Ég fór í sund og líka á ströndina og í sól- bað. Mér fannst skemmtilegast í sundinu,“ segir Guðrún María kát. Hvað þýðir að vera kurteis? „Að leyfa hinum að vera með.“ En hvað þýðir að vera dónalegur? „Það þýðir að segja eitthvað ljótt og að vera vondur við mann og að rífa í hárið á manni og meiða mann. Eða klemma mann. En það er samt gott að klemma nefið ef maður finnur vonda lykt,“ bætir Guðrún María við og sýnir hvað hún meinar. Hvert er uppáhaldsdótið þitt: „Dúkkan mín sem heitir Öskubuska og hún á Öskubuskukjól. Hún er dúkkan mín og ég elska hana og hún má fara í sund en ekki hárið.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Grjónagrautur.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Prinsessa,“ segir Guðrún María ákveðin enda fer ekki framhjá neinum að hér er svo sannarlega lítil prinsessa á ferð. hrefna@frettabladid.is Hvað gerðirðu í sumar? „Ég fór bara í sumarbústað og var í sól- baði. Það var heitur pottur og ég fór líka í sund,“ segir Ásdís Ósk. Hvað þýðir að vera kurteis? „Bara að leika við hvort annað og vera góð. Líka að leyfa öðrum að leika sér með dótið.“ En hvað þýðir að vera dónalegur? „Að rífa í hárið og svoleiðis.“ Hvert er uppáhaldsdótið þitt? „Blettatígursbangsinn minn af því hann er vinur minn og hafmeyjubarbí sem heitir Ariel,“ segir Ásdís Ósk en bætir svo við ásamt vinkonu sinni Guðrúnu Maríu: „En veistu, stundum eru strákarnir að elta okkur stelpurnar og þeir eru alltaf að meiða okkur og svoleiðis. En sumir eru hættir og byrjaðir að vera vinir okkar, en sumir eru ekki hættir,“ útskýra stelpurnar og er mikið í mun að þetta komi fram. En aftur að hversdagslegri hlutum. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Spagettí.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Söngvari,“ segir Ásdís Ósk dreymin. Hvað gerðirðu í sumar? „Ég fór á ströndina í Reykjavík. Ég var með svona hring og synti með hann á mér. Í dag kann ég að synda með engan kút því ég er farinn á sundnámskeið,“ útskýrir Emil Örn stoltur. En næst ræddum við um aðeins flóknari hluti. Hvað þýðir að vera kurteis? „Það er að segja eitthvað fallegt eins og ég elska þig,“ segir Emil Örn einlægur. Hvert er uppáhaldsdótið þitt? „Það er svo margt en ég held mikið upp á risaeðlurnar mínar og bílinn minn sem er með 11 framan á og gulldekk. Hann er flottur.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Grjónagrautur og hafragrautur og spag- ettísúpa,“ segir Emil Örn, sem er mjög hrifinn af öllum grautum og súpum. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Sterkasti maður Íslands, sterkasti maður heims og töframaður og trúður,“ segir Emil Örn ákveðinn og greinilegt að hann hefur háleit markmið og öflug. Hvað gerðirðu í sumar? „Ég fór til Danmerkur og fór í tívolí og það var rosalega skemmtilegt. Ég fór í flugvél- ina í tívolíinu.“ Þetta var í fyrsta skipti sem Tryggvi Klemens fór til útlanda og fannst honum það mjög spennandi. Honum fannst sér- staklega gaman að fara í ávaxtabúðina og fá Spiderman-ís. „Þegar ég borða Spiderman-ís þá fæ ég svona bláa tungu,“ segir Tryggvi Klemens og hlær. Næsta spurning var hins vegar að- eins erfiðari. Hvað þýðir að vera kurteis? „Ég er nú eiginlega með kvef,“ skýtur Tryggvi Klemens inn í en segir svo: „En að vera kurteis er að segja eitthvað fallegt og líka að segja elskan.“ Hvert er uppáhaldsdótið þitt? „Það er skjöldurinn minn og sverðið mitt. Það er riddaradót og það er svo gaman að vera í riddaraleik,“ segir Tryggvi Klemens spenntur. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Kjötsúpa.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Ég ætla að verða lögga,“ segir Tryggvi Klemens ákveðinn. TRYGGVI KLEMENS TRYGGVASON: EMIL ÖRN JÓHANNESSON: ÁSDÍS ÓSK EIRÍKSDÓTTIR: GUÐRÚN MARÍA ÁRNADÓTTIR: Margir kannast við sængurgjafaveislur úr amerískum kvikmyndum, þegar konur koma saman með gjafir til heiðurs ófæddu barni, en einnig er til mæðrablessun sem er ævaforn athöfn Navajo-indjána til heiðurs verðandi móður, styrk hennar, fegurð, reisn og skapandi kröftum. Mæðrablessun er skipulögð út frá per- sónuleika og þörfum konunnar. Fagnaðurinn getur tekið allt frá klukkustund upp í heil- an dag, en til samfundanna býður hin verð- andi móðir konum sem henni eru kærar. Til- efni mæðrablessunar geta verið mörg; að fagna meðgöngu konunnar, kvenleika henn- ar, dekra við hana, sækja kraft, innblástur, viðurkenningu og stuðning kynsystra, þörf fyrir sterkt stuðningsnet kvenna, upplif- un andlegrar athafnar, dýpri upplifun með- göngu, fæðingar og móðurhlutverks, eða bara hvað sem er. Við mæðrablessun er hús móðurinnar fagurlega skreytt, allir taka með sér góðan mat, móðirin fær nudd, andlitsbað, hand- og fótsnyrtingu eða annað dekur, gestir henn- ar búa til hálsfesti og henni eru gefnar tákn- rænar gjafir. Einnig er útbúið fallegt albúm með bænum, óskum eða sögum til móður og barns, farið í slökun, hugleitt, beðist fyrir, kveikt á reykelsi og jurtir brenndar, farið með sólar- og mánakveðjur, gifsbumbur skreyttar, snæddar táknrænar máltíðir eða hvaðeina sem skipuleggjendum dettur í hug. Draumafæðing www.draumafaeding.net skipuleggur mæðrablessanir fyrir móður- ina sjálfa, eða aðra sem vilja halda mæðra- blessun sem gjöf til móðurinnar. Mæðrablessun Til mæðrablessunar býður hin verðandi móðir konum sem henni eru kærar. Á leikskólanum Sólbakka eru fjörugir og skemmtilegir krakkar. Við vorum svo heppin að fá að spjalla við fjóra hressa krakka á leikskólanum og eru þau ýmist orðin fimm ára eða alveg að verða fimm.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.