Fréttablaðið - 11.10.2007, Qupperneq 38
11. OKTÓBER 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið blessuð börnin
Börn hafa gaman af að hjálpa
til og láta muna um sig. Slík
tækifæri gefast oft í sveitinni,
til dæmis í réttunum á haustin.
Elín Helga Sigurðardóttir átta ára
og Hafþór Logi Heiðarsson sex
ára voru að handsama fé og draga
það í dilka í Hnappavallarétt í Ör-
æfum þegar ljósmyndara Frétta-
blaðsins bar þar að.
„Það getur verið erfitt að ná
kindunum en það er spennandi,“
segir Elín Helga svolítið móð eftir
átökin. „Maður verður að reyna
að króa þær af og henda sér svo á
þær,“ segir Hafþór Logi til að út-
skýra vinnubrögðin. „Já, og grípa
í hornin,“ bætir Elín við. Þau eru
kappsöm og iðin að eiga við óþæg-
ar kindurnar og láta sig engu skipta
þó að þau detti stundum í drulluna.
Allt í lagi þó að fötin óhreinkist,
þau fara bara í þvottavélina.
Elín Helga á heima á Hnappa-
völlum. Aðspurð kveðst hún dá-
lítið dugleg við bústörfin og segir
skemmtilegast af öllu að smala á
hesti. „En þegar féð er rekið úr
girðingunum hleyp ég og labba,“
útskýrir hún. Hafþór Logi á heima
á Höfn en kemur oft í sveitina til
ömmu sinnar og annars frænd-
fólks. Honum finnst gaman að
hjálpa til að reka kindur í réttina
og ná þeim þar en hefur ekki próf-
að að smala á hesti. „Ég hef samt
farið á bak honum Léttfeta hennar
Elínar,“ tekur hann fram.
Þau Elín Helga og Hafþór
Logi eru dálítið rík því þau eiga
sínar eigin kindur. „Ég á tvær ær,
önnur heitir Glógló og ég er búin
að eiga hana alveg síðan ég man
eftir mér og fékk tvö lömb undan
henni í vor,“ segir Elín Helga. „Ég
skírði hina ána mína Fýlu því hún
er alltaf í fýlu!“ bætir hún glettin
við.
Hafþór Logi á líka tvær ær.
„Fluga mín eignaðist tvö lömb í
vor og stal því þriðja. Svo dó eitt
lambið og þá átti hún tvö eftir, hrút
og gimbur. Hin ærin mín heitir Ír,
hún er undan Flugu og var líka
með hrút og gimbur.“
Viðtalið er tekið á sunnudegi
og eftir réttarstússið fara börnin
heim að undirbúa sig fyrir skóla-
vikuna. Elín Helga er í Hofsskóla.
Oftast frá klukkan níu til þrjú,
nema á föstudögum, þá er hún
búin um hádegi. „Ég vakna yfir-
leitt klukkan átta því ef ég sef
til hálf níu verð ég að vera alveg
rosalega fljót að drífa mig í skóla-
bílinn,“ segir hún.
Hafþór Logi er í 2. bekk Nesja-
skóla í Hornafirði og finnst gaman
þar. Hann á samt erfitt með að
benda á uppáhaldsnámsgrein.
„Mér finnst nú skemmtilegast
í frímínútunum,“ segir hann og
brosir. gun@frettabladid.is
Spennandi að ná kindum
og draga þær í dilka
Það reynir á kraftana að draga fé í dilka en Hafþór Logi og Elín Helga hafa gaman af því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Góð heilsa og gott líkamsform
eykur líkur á heilbrigðri með-
göngu.
Par í barneignarhugleiðingum ætti
að gera allar breytingar til batnað-
ar nokkru áður en þær eru fyrir-
hugaðar. En ef þið brennið af löng-
un í barn akkúrat núna er gott að
hafa hugfast að flestum pörum
tekst ekki að verða barnshafandi
um leið og löngunin kviknar. Oftast
líða nokkrir mánuðir þar til kona
verður þunguð.
Hættið að reykja. Reykingar
draga úr frjósemi karla, sem
og frjósemi kvenna sem reykja
óbeint í gegnum maka sína.
Feður sem reykja stefna heilsu
barna sinna í hættu, bæði fyrir
og eftir fæðingu þeirra, og auka
hættu á vöggudauða.
Slakið á drykkjunni. Áfengi dreg-
ur úr gæðum sæðis og gerir vel
heppnaða meðgöngu ólíklegri.
Varist streitu. Stress veldur
hormónabreytingum sem geta
leitt til frjósemisvanda.
Klæðið ykkur létt. Sæðisfram-
leiðsla er rétt undir venjulegum
líkamshita. Forðist heit böð og
klæðist boxer-nærbuxum til að
auka loftrás í kringum eistun.
Borðið vel. Heilbrigt mataræði
og regluleg hreyfing minnkar
streitu og eykur hreysti.
Gætið að vigtinni. Að vera sem
næst kjörþyngd eykur líkur á
getnaði og gerir meðgönguna
þægilegri. Of lítið hold getur
komið í veg fyrir getnað, á meðan
offita eykur líkur á háþrýstingi
og sykursýki á meðgöngu.
Hættið að reykja. Reykingar
auka líkur á fósturláti, andvana-
fæðingu, fæðingu fyrir tímann
og lágri fæðingarþyngd. Reyk-
ingar á meðgöngu hafa áhrif á
alla bernsku barnsins og valda
þeim margvíslegum sjúkleika og
kvillum.
Ekkert áfengi. Sérfræðingar
ráðleggja konum að sniðganga
áfengi alveg hyggi þær á barn-
eignir.
Taktu fólínsýru. Fólat er mikil-
vægt B-vítamín sem kemur í veg
fyrir hryggrauf og sjúkdóma í
miðtaugakerfi. Mælt er með inn-
töku fólínsýru nokkru áður en
getnaður er reyndur. Fólat finnst
einnig í grænu grænmeti, app-
elsínum, grófkorna brauði og
morgunkorni.
Stundið kynlíf. Það hljómar auð-
vitað augljóst en reglulegt kynlíf
eykur líkur á þungun. Reynið að
hafa kynmök alla daga frjósemis-
tímabilsins. Konur hafa egglos
einu sinni í hverjum tíðahring og
er getnaður líklegastur fjórtán
dögum fyrir næstu blæðingar.
Að búa til barn
Varist streitu ef barneignir eru á döfinni.
K A R L M E N N :
K O N U R :
A L L T F Y R I R B Ö R N I N
- kvef
- ofnæmi
- eyrnabólga
- ennis og
kinnholusýking
Fæst í apótekum
Ég nota Sterimar, það hjálpar