Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2007, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 11.10.2007, Qupperneq 56
Handritshöfundar í kvik- mynda-og sjónvarpsgeira Bandaríkjanna gætu sett allt á annan endann ef þeir ákveða að fara í verk- fall 1. nóvember. Kvik- myndaverin gætu sloppið fyrir horn en sjónvarps- framleiðendur verða lík- lega fyrir miklum skaða. Viðræður milli Samtaka hand- ritshöfunda og AMPTP, sam- taka sjónvarps-og kvikmynda- framleiðenda, hafa siglt í strand hvað eftir annað og nú síðast á föstudaginn lauk samningafundi þeirra eftir aðeins 45 mínútur ef marka má Reuters-fréttastofuna. Málið er sagt vera í miklum hnút og stóru kvikmyndaverin óttast að framleiðslan kunni að lamast. Handritshöfundar hafa lengi bar- ist fyrir auknum greiðslum sér til handa en þeir telja sig ganga held- ur snauða frá borði þegar sjón- varpsþáttum eða kvikmyndum er dreift á dvd-mynddiskum, á net- inu eða teknir til endursýninga. Auk þess sem handritshöfundar vilja að greiðslum fyrir höfundar- verkin verði breytt. Hingað til hafa þær greiðslur borist eftir að framleiðandinn hefur tekið til sín allan kostnað og náð inn gróða en samkvæmt handritshöfundum reynast þær fjárhæðir sem eftir standa heldur rýrar. Reiknilíkan framleiðendanna sé eins og völundarhús og þegar allt hefur verið talið saman standi lítið sem ekkert eftir handa handritshöf- undinum. Mikill ótti ríkir nú í Hollywood því upphaflega var talið að verk- fallið myndi ekki skella á fyrr en í sumar. Kvikmyndaverin hafa því sankað að sér háum bunka af handritum og látið flestar umboðsskrifstofur vita að ekki verði tekið við fleiri hugmyndum fyrr en lausn er í sjónmáli. Verk- fallið á eftir að snerta flesta þætti kvikmynda- og sjónvarpsfram- leiðslu og munu förðunar- fræðingar jafnt sem kvik- myndatökumenn og leikstjórar standa uppi án verkefna auk þess sem menn spá miklu atvinnuleysi meðal handritshöfunda. Samtök handritshöfunda hafa þegar sent út atkvæðaseðil þar sem greiða á atkvæði um hvort til verk- fallsaðgerða eigi að grípa. Fulltrúar AMPTP segj- ast þegar vera búnir að gera ráðstafanir en fréttaskýrendur í Hollywood eru á einu máli um það að þetta eigi eftir að reynast Holly- wood dýrt spaug. Verkfall hefur ekki verið í kvik- myndahöfuðborginni síðan 1988 þegar handritshöfundar fóru í 22 vikna verkfall. Þá lamaði það alla haustframleiðslu sjónvarps- stöðvanna og hafði mikil áhrif á kvikmyndaframleiðsluna. Tapið sem varð vegna þessa verk- falls var talið nema hálfum milljarði Bandaríkjadoll- ara, eða 30 milljörðum íslenskra króna. Þeir sem hafa fylgst með gangi mála telja að þetta verkfall gæti jafnvel varað mun lengur og þar af leiðandi haft mikil áhrif á afþreyingariðn- aðinn. Hollywood hefur smám saman verið að ná sér eftir mögur tímabil í miðasölunni og því var farið að gæta ákveðinn- ar bjartsýni meðal kvikmyndaris- anna. Jafnframt hafa sjónvarps- þættir á borð við Grey‘s Ana- tomy og Desperate Housewifes náð stjarnfræðilega háu áhorfi og rakað inn gulli fyrir sjón- varpsstöðvarnar. Ef verkfallið skellur á mun það hins vegar hafa mikil áhrif á þessa þætti og verða sjónvarpsstöðvarnar þá að grípa til framleiðslu á raun- veruleikasjónvarpi sem hefur sífellt verið að fikra sig neðar og neðar á áhorfendalistanum. Þættir með lítið áhorf gætu hins vegar orðið hvað verst úti og þeim hreinlega ýtt út af dag- skránni. Og þótt kvikmyndaverin seg- ist hafa verið undirbúin þá er talið nokkuð augljóst að þau fylgjast taugaspennt með gangi mála. Fréttir frá kvikmynda- borginni benda til þess að kvik- myndaverin hafi búist við verk- falli næsta sumar en skelli það á í nóvember gæti það haft alvar- legar afleiðingar. Kvikmyndir á borð við Harry Potter & The Half Blood Prince og stórmynd- ina Pompeii auk næstu James Bond-myndarinnar gætu þurft að fara annaðhvort mun fyrr í framleiðslu en áætlað var eða þeim jafnvel frestað um óákveð- inn tíma. Kvikmyndaklúbburinn Græna ljósið hyggst taka til sýninga þrjár myndir sem nutu mikilla vinsælda á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Reykjavík sem lauk á laugardaginn. Græna ljósið átti kvikmyndirnar áður en hátíðin hófst og gaf góðfúslega leyfi sitt fyrir því að myndirnar yrðu meðal rétta á hlaðborðinu. Myndirnar voru sýndar tvisvar til þrisvar á hátíðinni og nú gefst þeim sem misstu af þessum gæðamyndum að sjá þær á vegum Græna ljóssins. Mynd- irnar fengu alls staðar frábæra dóma og viðtökur hjá áhorfendum RIFF og því ánægjulegt að boðið verði upp á þennan möguleika. Myndirnar þrjár eru rúmenski Cannes- verðlaunahafinn Fjórir mánuðir, þrjár vikur og tveir dagar sem hefur fengið ein- róma lof gagnrýnenda en hún tekur á því eldfima málefni sem fóstureyðingar eru, Himinbrún eftir Faith Akin með Hönnu Schygulla í aðal- hlutverki og Aleksandra eftir Alexandr Sokurov sem leikstjórinn sjálfur hefur lýst sem stríðsmynd án stríðs. Sýningar á myndunum hefjast allar föstudaginn 12. október og fá félagar í bíóklúbbi Græna ljóssins boðsmiðakóða sendan í vikunni sem tryggir þeim tvo fría miða á eina af þessum sýningum. Áfram með veisluna Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . V SMS LEIKUR 9. HVER VINNUR! SENDU SMS JA GLF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Frumsýnd 12. október Dane Cook Jessica Alba Dan Fogler
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.