Fréttablaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 22
hagur heimilanna
Keypti sextíu skó á vinstri fót
Það borgar sig að taka
mynd- og hljómdiska á
Borgarbókasafninu, en
það er líka vissara að skila
á réttum tíma. Frétta-
blaðið kannaði verðmun
á þjónustu bókasafna á
höfuðborgarsvæðinu og bar
saman verð á útleigu á nýju
mynd- og tónlistarefni.
Fyrir stuttu voru gjöld á mynd-
diskum og hljómdiskum felld
niður á Borgarbókasafni í Reykja-
vík en dagsektir hækkuðu á móti
og eru nú 200 krónur. Ársskírteini
Borgarbókasafnsins gildir einnig
á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ,
en þar þarf að greiða milli 200 og
300 krónur fyrir útlán á mynd- og
hljómdiskum.
Ársskírteini á bókasafni Garða-
bæjar gildir einnig á bókasöfnum
Hafnarfjarðar, Kópavogs og Álfta-
ness. Munur er þó á gjaldskrá
bókasafnanna á útleigu mynd- og
hljómdiska.
Greiða þarf 450 krónur fyrir
útleigu á nýjum mynddiski á bóka-
safni Garðabæjar, sem er það
hæsta sem gerist á höfuðborgar-
svæðinu. Í Hafnarfirði og Kópa-
vogi kostar slíkt hið sama 300
krónur en á Álftanesi 100 krónur.
Mikill munur er á úrvali á disk-
um. Sem dæmi má einungis finna
milli fimm og tíu diska á bókasafni
Álftaness, en á bókasafni Hafnar-
fjarðar má finna stærsta tónlistar-
safn Íslands.
Í ljós kemur að árgjald allra
bókasafnanna er 1.200 krónur,
fyrir utan bókasafn Kópavogsbæj-
ar en þar kostar skírteinið 1.300
krónur.
Í Hafnarfirði nefndi starfsmað-
ur bókasafnsins að sérstaklega
væri tekið tillit til fólks með lágar
tekjur og að atvinnulausum hafi í
gegnum tíðina staðið til boða árs-
skírteini á helmingsverði.
Í öllum bæjarfélögum miða
bókasöfnin við að 18 til 67 ára
greiði fyrir bókasafnsskírteini en
börn, eldri borgarar og öryrkjar
fái þau án endurgjalds.
Mikill munur er á stærð og
aðbúnaði safnanna. Yfirleitt er
hægt að kaupa aðgang að netinu
og kostar klukkutíminn yfirleitt
um 200 krónur. Sums staðar er sú
þjónusta ódýrari eða jafnvel
ókeypis og víðast hvar er gjald-
frjálst þráðlaust net.
Hvað varðar aðstöðu fyrir náms-
menn stendur bókasafnið í Hafn-
arfirði vel að vígi, en þar er að
finna lesstofu og sérstaka kaffiað-
stöðu fyrir námsmenn.
Mestu munar á
útleigu mynd-
og hljómdiska
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, leik- og
söngkona, fann umhverfisvæna leið til
að halda skónum sínum glansandi.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
19
03