Fréttablaðið - 18.10.2007, Qupperneq 46
18. OKTÓBER 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið vinnuvélar
Kraftvélar við Dalveg hafa tekið í
notkun nýtt og hentugt húsnæði fyrir
námu- og jarðgangatæki frá sænska
fyrirtækinu Sandvik.
„Það er mikið steypt í dag og þeir sem kaupa
sand og möl gera kröfur um hágæðatæki til að
brjóta og harpa efnið, hreinsa það og flokka.
Því er nauðsynlegt að huga vel að þeirri tegund
tækja og bjóða bara það besta. Það gerum við
í Sandvíkurdeildinni okkar sem við erum nú
að efla með auknu rými,“ segir Ólafur Ár-
sælsson, sölustjóri námu- og jarðgangatækja
hjá Kraftvélum. Um leið sýnir hann rúmgott
og hentugt húsnæði sem Kraftvélar hafa ný-
lega tekið í notkun undir malarhörpur, brjóta,
jarðbora og fleyga sem koma frá sænska
fyrirtækinu Sandvik. „Þessi deild er bjartasta
vonin eins og er,“ segir hann glaðlega.
Brjótarnir eru vandasöm smíði að sögn
Ólafs og þá sérstaklega hersla á því stáli sem
brýtur það grjót sem notað er í byggingar og
vegaframkvæmdir. „Brjótarnir eru aðallega
framleiddir í þremur gerðum. Kjálkabrjótar
eru grófastir og notaðir sem forbrjótar. Síðan
koma keilubrjótar sem taka við malarefninu
úr kjálkabrjótnum og smækka það. Að síðustu
eru innbyrðisbrjótar. Þeim má líkja við sterka
tunnu sem þeytir efninu þannig að steinarnir
rekast hver á annan, brotna og breyta um
lögun,“ lýsir Ólafur.
Ólafur hefur verið í vélabransanum í fjöru-
tíu ár. Hann byrjaði hjá Heklu og var þar til
1980 er hann fór í Bílaborg, þar sem hann hóf
að koma Komatsu-vinnuvélunum á markað.
Síðan stofnaði hann fyrirtækið Merkúr með
öðrum og rak það í 15-16 ár. Svo kom hann
aftur í Komatsu-bransann sem Kraftvélar
höfðu tekið að sér. Nú eru námu- og jarð-
gangatækin hans ær og kýr. Hann lýkur lofs-
orði á sænska fyrirtækið Sandvik, sem stofn-
að var 1862, og þær vélar sem það hefur upp
á að bjóða. „Margir sem komnir eru yfir
miðjan aldur muna eftir Sandvik-trésögunum
og hömrunum sem þóttu bera af í gæðum og
endingu. Nafnið Sandvik hljómar kunnuglega
í eyrum þeirra,“ segir hann brosandi og bætir
við að Sandvik hafi alls ekki dottið í dróma eða
slen heldur ríki þar mikil gróska. „Sandvik-
samsteypan hefur um 42.000 manns í vinnu
og hefur komið sér upp umboðsmönnum í 130
löndum,“ lýsir hann.
Ólafur segir malarhörpurnar og
grjótbrjótana frá Sandvik til í mörgum stærð-
um og útfærslum og til að auka breiddina hafi
fyrirtækið nýlega keypt Fintec- og Extec-
verksmiðjurnar, sem báðar séu rómaðar fyrir
vandaða framleiðslu á hörpum og brjótum.
„Sandvik á líka Tamrock- og Rammer-verk-
smiðjurnar í Finnlandi sem framleiða jarð-
bora og vökvafleyga. Borarnir sem eru notaðir
í Héðinsfjarðargöngunum eru Tamrock-borar
og Arnarfell er líka með þá á virkjanasvæð-
inu fyrir austan. Þetta eru snilldargræjur,“
segir Ólafur, sem lýsir næst litlum klapparbor
sem hann segir byltingarkenndan hvað varðar
notagildi. Sá heitir Commando 120 RF. „Með
bornum má komast á hina ólíklegustu staði
þar sem plássið er lítið. Verktakar á Íslandi
nota vökvafleygana alltof mikið. Með því að
bora og sprengja meira væri hægt að spara
bæði tíma og peninga.“ gun@frettabladid.is
Hörpur og brjótar eru hágæðatæki
Harpa af gerðinni Fintec 542 að vinna fyrir Ístak í
Tungumelsnámum.
Ólafur hjá Kraftvélum við klapparborinn netta, Commando 120. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NOTAÐAR DRÁTTARVÉLAR FRÁ DANMÖRKU
Fyrstu dráttarvélarnar sem Jötunn Vélar flytja inn notaðar frá dóttur-
fyrirtæki sínu Total Maskiner í Danmörku komu til Selfoss í vikunni.
Um er að ræða vel með farnar Case MX 200 vélar árgerð 2000 sem
Total Maskiner tók uppí nýjar Fendt dráttarvélar í sumar. Casarnir
eru þegar seldir og
munu verða afhentir
nýjum eiganda á næstu
dögum.
Á næstunni er von á
fleiri stórum notuðum
dráttarvélum til lands-
ins frá Danmörku.
Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði,
sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn,
hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef-
hjól á kerrur. Bílamottur.