Fréttablaðið - 18.10.2007, Side 54
18. OKTÓBER 2007 FIMMTUDAGUR16 fréttablaðið vinnuvélar
Samgöngusafnið á Skógum
geymir nokkrar vinnuvélar
sem leystu handverkfærin af
hólmi og voru stórkostlegar
tækninýjungar á sinni tíð.
„Alltaf er eitthvað að bætast við
en húsið er fullt þannig að við
getum ekki bætt inn á sýning-
una en skiptum út hlutum annað
slagið,“ segir Sverrir Magnússon,
framkvæmdastjóri Skógasafns.
Hann tekur fram að ekki sé að-
eins um hjóla- eða beltatæki að
ræða á samgöngusafninu heldur
séu þar líka munir sem tengjast
pósti og síma og einnig rafvæð-
ingu.
Gaman er að staldra við á
Skógum og líta yfir þetta fágæta
safn sem greinilega er vel hlúð
að. „Það er oft leitað til okkar
með alls konar muni sem tengj-
ast samgöngum. Sumum getum
við tekið við og öðrum ekki, eins
og gengur,“ segir Sverrir. „Við
erum heppin að hafa notið trausts
þannig að fólk vilji koma hlutum
til okkar.“
- gun
Gersemar í góðu skjóli
Caterpillar 12 E veghefill af árgerð 1941.
Hann var í eigu Vegagerðarinnar og var
gerður upp á Akureyri 1991-96.
Deutz, árgerð 56, Massey Harris Pony, árgerð 49, Farmall Cup, árgerð ´49 og
Ferguson ´49.
Hann er ekki stór þessi vörubíll miðað við búkollur nútímans því heildarþyngd hans
er 13,5 tonn og vélin 150 hestöfl. Gerðin er Scania Vabis, árgerðin 1954 og skrásetn-
ingarnúmerið X-24. Eigandi frá upphafi var Haraldur Georgsson, Haga í Gnúpverja-
hreppi, en núverandi eigandi, Jóhanna Haraldsdóttir, lánaði bílinn á sýninguna í
Skógum.
Sverrir Magnússon
er framkvæmdastjóri
Skógasafns.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Caterpillar D4
DD beltaskófla
árgerð 1945.