Fréttablaðið - 18.10.2007, Síða 72
kl. 17
Haldin verður kynning á fatalín-
unni Ull á köldum klaka í
Startart, Laugavegi 12b, í dag á
milli 17 og 21. Verður hönnuður
línunnar, Gaga Skorrdal, á
staðnum. Hún hefur hingað til
verið þekktust fyrir prjónahönnun
sína, en þessi nýja fatalína
markar frumraun hennar á sviði
þess að hanna saumaðan fatnað.
Lífið litríkt í fornöld
Franz Kafka er maður vik-
unnar í Þjóðleikhúsinu, þar
sem kanadíska leiksýningin
Kafka og sonur verður sett
upp nú í vikulok. Sýningin
verður önnur af tveimur
sýningum Þjóðleikhússins
sem við koma þessum tékk-
neska rithöfundi, en hin er
Hamskiptin sem byggð er á
samnefndri skáldsögu hans.
Kafka og sonur er einleikur sem
hefur farið sigurför um heima-
land sitt. Sýningin kemur til
Íslands í boði Þjóðleikhússins og
með stuðningi kanadíska sendi-
ráðsins. Í verkinu er tekist á við
samband Franz Kafka við föður
sinn og hvernig það hafði áhrif á
ritstörf hans. Kafka og sonur
hefur fengið framúrskarandi
dóma og þykir leikarinn Alon
Nashman fara á kostum sem
bæði faðir og sonur. Verkið verð-
ur frumsýnt á Smíðaverkstæðinu
í kvöld og verða tvær sýningar á
því til viðbótar á föstudags- og
laugardagskvöld. Leikið er á
ensku og hefjast sýningarnar kl.
20 öll kvöldin.
Alon skrifaði sjálfur leikgerð-
ina Kafka og sonur ásamt leik-
stjóra sýningarinnar Mark Cass-
idy. „Handritið unnum við upp úr
bréfi sem Kafka skrifaði föður
sínum en sendi aldrei. Bréfið er
heilar 50 síður og Kafka skrifaði
það á tíu daga tímabili. Í bréfinu
gerir hann upp samband sitt við
föður sinn og tilfinningar sínar
til hans og játar að nánast öll
skrif sín snúist á einn eða annan
hátt um samband þeirra. Við
gerðum okkar besta til að koma
þessu uppgjöri til skila í leikrit-
inu,“ segir Alon.
Franz Kafka og faðir hans voru
afar ólíkir menn; faðirinn var
yfirþyrmandi og stjórnsamur en
Franz var viðkvæm sál. Alon
segir samband þeirra feðga varpa
ljósi á höfundarverk Kafka. „Það
er í raun mjög viðeigandi að sýna
verkið samhliða Hamskiptunum
þar sem samband Kafka við föður
sinn endurspeglar að mörgu leyti
þá sögu.
Það er til að mynda magnað að
í bréfi Kafka kemur fram að faðir
hans hafi kallað hann sníkjudýr
og skordýr einhvern tímann
þegar þeim feðgum sinnaðist.
Ekki er ólíklegt að hugmyndin að
Hamskiptunum hafi mótast út
frá samskiptum þeirra feðga.“
Stormasamt samband feðg-
anna er þannig að nokkru leyti
þungamiðja í mörgum þekktustu
verka skáldsins. „Kafka tileink-
aði föður sínum sögur sínar.
Hann elskaði föður sinn, leit
upp til hans og upplifði sjálfan
sig sem misheppnaðan einstakl-
ing þar sem honum tókst ekki að
uppfylla væntingar hans“ segir
Alon.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
verkið verður sýnt utan Kanada.
Alon hlakkar til að leika fyrir
íslenska áhorfendur. „Ég er hæst-
ánægður með að vera kominn
hingað. Það sem ég hef séð af
landinu er fallegt og ég ætla að
nota tímann til að skoða mig um á
milli sýninga.“
Þjóðleikhúsið býður upp á sér-
stakt feðgatilboð á sýninguna
með það fyrir augum að styrkja
fjölskyldutengsl, en feðgar fá tvo
miða á verði eins.
Snobbum!
Oft verja menn af mestri sannfæringu það sem þeir þekkja minnst.
Ekki hneykslast. Það sýnir andlegan þroska að aðhyllast eitthvað sem
maður skilur ekki.
Orðið snobb á víst uppruna sinn í kirkjubókum einhverjum. Við nafn
hvers nýbura var skráður aðalstitill ef við átti. Þeir sem engan titil
báru voru merktir upp á latínu sine nobilitate, skammstafað s.nob.
Skammstöfunin var síðan væntanlega notuð í talmáli um þá sem gerðu
sér far um að umgangast hefðarfólk án þess að vera þess umkomnir.
Orðið á sumsé við um þann sem leitar á einhvern hátt upp fyrir sig.
Þetta er vanmetinn eiginleiki.
1) Jæja, snobb í veraldlegum efnum er viðsjárvert. Menn eyða um
efni fram til að þykjast efnaðri en þeir eru. Það getur orðið þeim að
falli.
2) Þó er eins og fólki sé frekar álasað fyrir annars konar snobb:
Bókmennta-, lista- eða menningarsnobb. Er ekki efnasnobbið oft hulið
jákvæðari orðum eins og metnaður eða dugnaður?
3) Listasnobbarinn er sakaður um tilgerð. Hann ku upphefja sig með
einhverju sem hann hefur ekki vit á. En hversu mikinn skilning þurfa
menn að hafa til að áhugi þeirra teljist ekki snobb? Hafa allir þeir sem
fara á völlinn svo mikið vit á fótbolta? Listasnobbarinn er ekki að
upphefja sig frekar en klappstýran.
4) Listasnobb er í raun bara trúin á að listin feli í sér eitthvað sem er
þess virði að þekkja. Snobb almennt er viðurkenning á því að til séu
gildi sem við þráum að höndla þótt þau séu handan seilingar um
stundar sakir eða löngum.
5) Það skiptir ekki miklu hvort hinn snobbaði fær um síðir einhverja
dýpri þekkingu á innviðum listarinnar (hvað sem það nú er). Að fara á
tónleika, sýningu eða lesa góða bók er alltaf hollara en að gera það
ekki, eins þótt manni leiðist eða taki bara eftir aukaatriðum. Oftast
verður þetta auðvitað að sérstakri þekkingu eða reynslu sem auðgar
manninn. Svo gætu menn fyrir slysni orðið nobb, innvígðir. Ég
viðurkenni fúslega að það sem fyrst hreif mig við bækur var lyktin af
þeim. Svo reyndist ágætt að blaða í þeim til að hafa eitthvað fyrir
stafni á meðan ég lyktaði.
6) Kannski má lýsa öllum þekkingarþorsta sem snobbi. Þegar barnið
bullar, er það ekki málsnobb? En þannig lærir það að tala.
7) Megi menn vera einarðir í snobbi sínu en ekki þykjast betri fyrir
það.
Myndlistarhópurinn Moms verður
seint sagður fara hefðbundnar leið-
ir í listsköpun sinni. Þeir hafa
byggt pitsustað, sett reiðhjól í nýtt
samhengi, boðið upp á ferjuþjón-
ustu í Feneyjum og nú hafa þeir
sett myndlistarverk inn í textavarp
Sjónvarpsins. Verkið er hluti af
myndlistarhátíðinni Sequences
sem stendur nú yfir.
Morri er einn meðlima Moms
ásamt þeim Munda og Schuyler.
„Textavarpið er vannýttur miðill
þrátt fyrir að hann sé notaður
mikið dagsdaglega. Textavarpið er
frekar gamaldags og laust við allan
kúl-faktor og okkur langaði til að
sjá hvað við gætum gert innan
þessa ramma“ segir Morri.
Það gekk vel að fá umsjónar-
menn textavarpsins til liðs við sig.
„Við töluðum við Ágúst Tómasson
sem sér um textavarpið hjá Sjón-
varpinu og hann var boðinn og
búinn að hjálpa okkur að koma
þessu af stað. Við fengum því að
skapa 99 skjámyndir fyrir texta-
varpið á tölvuna sem er notuð til að
setja efni þar inn. Þessar skjá-
myndir birtast svo hver á fætur
annarri á síðu 444 í textavarpinu
og eru þær um 25 mínútur að fara
hring.“ Það má með sanni segja að
sýning þeirra Moms-liða nái víða
þar sem hver sá sem hefur aðgang
að Sjónvarpinu á að geta notið
hennar. Morri segir það mikinn
kost. „Við erum vissir um að sýn-
ingin á góðan möguleika á að verða
sú sem fjölséðasta í íslenskri
myndlistarsögu enda gerir hún
ekki þá kröfu til áhorfenda að þeir
standi upp úr sófanum. En þetta er
afar þægilegur sýningarvettvang-
ur, við losnum við vesenið sem oft
fylgir því að setja upp sýningar í
galleríum. Við þurftum ekki að
hengja neitt upp og svo þurftum
við ekki að vera viðstaddir neina
opnun, þannig að þetta er afar
þægilegt.“
Það verður þó hægt að nálgast
sýninguna á gönguleið Sequences
þar sem Moms-liðar fengu lánuð
gömul sjónvarpstæki hjá Góða
hirðinum og settu þau upp í Ranim-
osk, Kaffi Hljómalind og Naked
Ape. „Það er einmitt gaman að
skoða sýninguna í ólíkum sjón-
varpstækjum því það fer eftir mót-
tökuskilyrðum og gæðum tækisins
hvernig hún kemur út,“ segir
Morri.
Sýningin verður í textavarpinu
fram á sunnudag, en þá lýkur Sequ-
ences. Moms sýnir annað verk á
hátíðinni og má berja það augum á
föstudag. „Við verðum með gjörn-
ing í Tjarnarbíói á föstudag kl. 20
undir yfirskriftinni „Single Moms
night out“. Þangað viljum við bjóða
sérlega velkomnar einstæðar
mæður og börn þeirra og lofum
fjölskylduvænni list. Svo má líka
minnast á það að Mundi verður
með tískusýningu á hönnun sinni á
föstudag kl. 18 í versluninni Kron-
kron og ég hvet fólk til að mæta
þangað líka,“ segir Morri að
lokum.
Vannýttur miðill