Fréttablaðið - 18.10.2007, Side 84
Glæsileg opnunarveisla Hilton Reykjavík Nordica-
hótelsins var haldin í fyrradag. Yfir eitt þúsund
manns var boðið í veisluna þar sem kokkar frá veit-
ingastaðnum Vox stjönuðu við gesti og gangandi.
Saga Film sá um að setja ævintýralegan blæ á
veisluna þar sem eldfjöll, jöklar og hverir voru áber-
andi. Hilton-hótelin um heim allan eru orðin tæplega
fimm hundruð um heim allan og hefur Ísland nú loks-
ins bæst í hópinn.
George Lucas, leikstjóri hinna
vinsælu Star Wars-mynda, er
byrjaður að vinna að gerð leikinna
sjónvarpsþátta sem verða byggðir
á myndunum. Hvorki Luke Skyw-
alker né Darth Vader verða á
meðal persóna í þáttunum.
„Geimgenglarnir eru ekki í þátt-
unum. Þeir fjalla um persónurnar
sem voru í smærri hlutverkum,“
sagði Lucas, sem bætti því við að
vélmenni yrðu áberandi. Lucas er
með aðra sjónvarpsþáttaröð í píp-
unum sem kallast Star Wars: The
Clone Wars og er hún tölvuteikn-
uð.
Tvö ár eru liðin síðan sjötta og
síðasta Star Wars-myndin, The
Revenge of the Sith, kom út.
Star Wars í sjónvarp
Söngkonan Madonna hefur undirritað
risaplötusamning við tónleikafyrirtækið
Live Nation. Hún er þar með fyrsta
stórstjarnan sem gerir útgáfusamning
við tónleikafyrirtæki í stað þess að
semja við hefðbundið útgáfufyrirtæki.
„Tónlistarheimurinn hefur breyst og
sem listamaður og viðskiptakona verð ég
að fylgja þeim breytingum,“ sagði
Madonna. „Í fyrsta sinn á ferli mínum
nær tónlist mín á ótakmarkaðan hátt til
aðdáenda minna. Ég vil ekki takmarka
hugsun mína og með þessum nýja
samningi eru möguleikarnir endalausir.“
Þar með lýkur 25 ára veru Madonnu
hjá Warner Music, þar sem hún hefur
verið allan sinn feril og selt um tvö
hundruð milljónir platna. Til að klára
samninginn sinn þarf hún þó að gefa út
eina plötu í viðbót undir merkjum
Warner. Er hún væntanleg á næsta ári.
Talið er að Madonna, sem er 49 ára, fái
í sinn hlut um 7,2 milljarða króna á
næstu tíu árum fyrir nýja samninginn.
Auk þess eignast hún hlutabréf í Live
Nation. „Madona er sannkölluð goðsögn
og frumherji, bæði sem listamaður og í
viðskiptum,“ sagði framkvæmdastjóri
Live Nation. „Samstarf okkar er
stórmerkilegt skref í tónlistarsögunni.“
Sérfræðingar segja að samningurinn
beri vott um breyttar áherslur í tónlist-
arheiminum vegna dvínandi plötusölu. Í
framtíðinni verði lagt meira kapp á
tónleika, minjagripasölu og þátttöku í
sjónvarpsþáttum en áður.
Madonna gerir risasamning
Kevin Federline kom með-
leikurum sínum og starfs-
liði við tökur á One Tree
Hill á óvart á dögunum.
Endalausar maríjúana-
reykingar voru ekki vel
séðar.
Kevin Federline hefur verið í hlut-
verki góða mannsins undanfarið, á
meðan fjölmiðlar hafa einbeitt sér
að skandölum barnsmóður hans
og fyrrum eiginkonu, stórstjörn-
unnar Britney Spears. Federline
var þó á árum áður þekktur fyrir
partístand og óheflaða framkomu,
og nú virðist hann stefna í sama
farið.
Federline varð sér úti um gesta-
hlutverk í táningaþáttunum One
Tree Hill, og hefur verið við tökur
á þættinum síðustu daga. Þar
hefur hann reykt hverja jónuna á
fætur annarri, starfsfólki og
öðrum leikurum til mikillar undr-
unar. „Hann reykir maríjúana alls
staðar á tökustað, eins og það sé
bara hluti af líferni hans. Lyktin
er svo sterk að það er augljóst að
hann er ekki að reykja venjulegar
sígarettur. Hann virðist ekki reyna
að leyna því á neinn hátt,“ segir
heimildarmaður New York Daily
News.
Federline hefur einnig látið taka
eftir sér á börum bæjarins Wilm-
ington í Norður-Karólínuríki, þar
sem tökur fara fram. „Ég hef þjón-
að honum nokkrum sinnum og
hann hefur alltaf verið mjög örlát-
ur. Einu sinni gaf hann mér 600
dollara í þjórfé fyrir bara tvo
bjóra,“ segir einn barþjónanna í
bænum. Federline ætti að hafa
efni á því, en talið er að Britney
greiði honum mánaðarlega ríflega
eina milljón króna.
Leiðir hjónanna fyrrverandi
liggja næst saman í réttarsal 26.
október næstkomandi.
Glæsileg opnun-
arveisla á Hilton
Skiptum út
nýjumhaustvörum fyrir
nýrrihaustvörur
afsláttur
af völdum vörum og skóm
50%
Smáralind s. 522 8383 Kringla s. 522 8393