Fréttablaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 86
TOPPMYNDIN ÁÍ SLANDI!
Sofðu einu sinni hjá Chuck
og næsti maður sem þú hittir
er ást lífs þíns.
Brjálæðislega fyndin mynd!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
14
16
12
16
14
16
14
14
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10
THE KINGDOM kl. 8 - 10
HALLOWEEN kl. 6*
SUPERBAD kl. 6*
*Síðustu sýningar
14
16
16
12
12
12
14
16
14
4 MONTHS ENSKUR TEXTI kl.5.40 - 8 - 10.15
EDGE OF HEAVEN ENSKUR TEXTI kl.5.40 - 8 - 10.20
ALEXANDRA ENSKUR TEXTI kl.6 - 10.15
HALLOWEEN kl. 8 - 10.30
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
GOOD LUCK CHUCK kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
GOOD LUCK CHUCK LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HALLOWEEN kl. 8 - 10.25
SUPERBAD kl. 5.30 - 8 - 10.30
SHOOT´EM UP kl. 10.20
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 - 6
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 300 kr. Síð. sýningar
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
- I. Þ. Film.is
- J. I. S. Film.is
“Skotheld skemmtun”
- T.S.K., Blaðið
“H EIMA ER BEST”
- MBL
“ ALG JÖRLEGA EINSTÖK”
- FBL
“VÁ”
- B LAÐIÐ
“ME Ð GÆSA HÚÐ AF
HRIFNIN GU”
- DV
“SI GUR ROS HAVE
REINVENTED THE
ROCK FILM”
- Q
“SO BEAUTI FUL
ITS HYPNOTIC”
- EMPIRE
Dóri DNA - DV
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU
LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Í
Bölvun
eða
blessun?
GOOD LUCK CHUCK kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE KINGDOM kl. 5.40 - 8 - 10.20
HEIMA - SIGURRÓS kl. 6 - 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 10.20
- L.I.B. Topp5.is
STARDUST ER MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND
STÚTFULL AF GÖLDRUM, HÚMOR OG HASAR.
ROBERT DE NIRO OG MICHELLE PFEIFFER Í FRÁBÆRRI MYND SEM VAR
TEKINN UPP Á ÍSLANDI OG ALLIR ÆTTU AÐ HAFA GAMAN AF
www.SAMbio.is 575 8900i i
AKUREYRI
ÁLFABAKKA
THE BRAVE ONE kl. 5:30 - 8D - 10:30D 16
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30
STARDUST kl. 5:30D - 8 - 10:30 10
NO RESERVATIONS kl. 8 - 10:30 L
SUPER BAD kl. 8 - 10:30 12
CHUCK AND LARRY kl. 8 12
MR. BROOKS kl. 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 16
STARDUST kl. 8 -10:20 10
SELFOSSI
HAIRSPRAY kl. 8 L
BRATZ kl. 8 L
3:10 TO YUMA kl. 10:20 16
CHUCK AND LARRY kl. 10:20 12
KEFLAVÍK
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10 L
HAIRSPRAY kl. 10:20 L
STARDUST kl. 8 7
Leiðin að hjartanu er í
gegnum ljúfengan mat!
KRINGLUNNI
THE KINGDOM kl. 5:40 - 8 - 10:20 10
THE BRAVE ONE 5:40D - 8D-10:20D 16
STARDUST kl. 5:30D 10
NO RESERVATIONS kl. 10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8 L
JIS - FILM.IS
- bara lúxus
Sími: 553 2075
THE KINGDOM kl. 5.45, 8 og 10.20 16
3:10 TO YUMA kl. 5.30, 8 og 10.30 16
CHUCK & LARRY kl. 5.45 og 10.20 12
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Hljómsveitin Thundercats og bandaríski tónlistarmað-
urinn Khonnor spila saman á Iceland Airwaves-hátíð-
inni annað kvöld. Sveitin komst í kynni við Khonnor í
gegnum netið og hitti hann síðan nokkrum mánuðum
síðar á Íslandi.
Khonnor vakti fyrir nokkrum árum athygli fyrir plötu
sína Handwriting, sem fékk mjög
góða dóma gagnrýnenda, og bera
meðlimir Thundercats honum
vel söguna. „Þetta er „brilliant“
náungi. Hann er með öflugri
listamönnum sem maður
hefur uppgötvað síðustu
ár,“ segir Þrumuköttur-
inn emMelLessS. „Tón-
listin er svo einlæg og
þetta er bara alvöru-
náungi.“
Thundercats gerði
nýverið útgáfusamn-
ing við þýska indí-fyrirtækið Nordic Notes og kemur
fyrsta plata sveitarinnar, New Wave, út í Þýskalandi,
Austurríki og Sviss, auk Íslands. Hefur platan að geyma
tilraunaskotið popp/rokk með forrituðum trommuleik
og kemur tónlistarkonan Jara við sögu í fjórum lögum.
Auk þess að spila með Thundercats á Organ annað
kvöld klukkan 00.30 verður Khonnor á sama stað í kvöld
með eigin tónleika. Þrumukettirnir sjálfir, sem hafa
skartað forláta grímum á tónleikum sínum, ætla hugs-
anlega að afhjúpa leyndarmál sitt og fella þær niður á
Organ. Geta þá aðdáendur sveitarinnar svalað forvitni
sinni í eitt skipti fyrir öll.
Spila með Khonnor á Airwaves
Breska hljómsveitin Slow Club
kemur fram á Airwaves-hátíðinni
í kvöld. Sveitin spilar á Moshi
Moshi-kvöldinu svokallaða á Nasa
en það ágæta plötufyrirtæki hefur
um árin fært Íslendingum nokkur
frábær atriði á Airwaves, til
dæmis Hot Chip, Architecture in
Helsinki og Klaxons.
Slow Club skipa þau Rebecca og
Rebecca en hún syngur og spilar á
trommur og hann spilar á gítar og
syngur. Það sem er kannski
skemmtilegast við sveitina er sú
staðreynd að Rebecca trommar
standandi. „Mér finnst einfald-
lega ekki gaman að tromma sitj-
andi. Ég gerði því bara mína eigin
útgáfur af furðulegu trommusetti
sem mér finnst fjörugt. Það gerir
mér líka auðveldara um vik að
syngja,“ útskýrir Rebecca þegar
blaðamaður Fréttablaðsins náði
tali af henni þar sem hún sat í
strætó í London.
Með Slow Club í kvöld troða
einnig upp til dæmis Best Fwends,
The Teenagers, Late of the Pier og
íslensku ungstirnin í Retro Stef-
son. „Við munum pottþétt standa
upp úr,“ segir Rebecca, full af
sjálfsöryggi. „Sjálfstraust er mik-
ilvægt í tónlist, því þú verður að
trúa á hlutina sem þú ert að gera.
Reyndar er það oft erfitt, sérstak-
lega í Bretlandi, þar sem svo
margar sveitir berjast um hituna.
En á endanum nær maður vonandi
að gleðja sjálfan sig og vonandi
aðra í leiðinni.“
Ætla að skara fram úr
Þeir eru ófáir tónlistarað-
dáendurnir sem hlakka til
tónleika Deerhoof á Airwa-
ves í ár enda þykir sveitin
framúrskarandi. Steinþór
Helgi Arnsteinsson ræddi
við hinn takfasta trommu-
leikara sveitarinnar, Greg
Saunier.
Deerhoof hefur verið starfandi
frá byrjun síðasta áratugs og á
þeim tíma sent frá sér hátt í tíu
breiðskífur. Erfitt er að flokka
tónlist sveitarinnar undir einn
hatt enda sveiflast tónlist Deer-
hoof frá argasta gítarhávaðarokki
yfir í sykurhúðað tyggjópopp. Til-
raunamennskan er þó yfirleitt í
fyrirrúmi.
Nýjasta plata sveitarinnar, Fri-
end Opportunity, kom út fyrr á
þessu ári en platan var sú fyrsta
eftir brotthvarf Chris Cohen, sem
hafði spilað á bassa og gítar með
sveitinni til nokkurra ára. Sveitin
hefur reyndar gengið í gegnum
nokkrar mannabreytingar frá
stofnun sveitarinnar en hvaða
áhrif hafa þessar breytingar á
hljóm Deerhoof á milli platna?
„Spurðu mig aftur eftir tíu ár,“
svarar Greg og hlær. „Ef ég hlusta
á einhverja plötu með Deerhoof-
heyri ég aðeins gallana og allt það
sem ég vildi að við hefðum gert
betur. Síðan á sama tíma heyri
hluti sem ég er undrandi yfir, því
ég hélt að við gætum ekki gert lög
sem hljómuðu svona. Á margan
hátt hefur ekkert breyst síðan
Chris hætti. Við vissum ekkert
hvað við vorum að gera þegar
hann var með okkur í sveitinni,
höfðum enga formúlu. Núna
höfum við enn enga stefnu og
vitum ekkert hvernig við munum
hljóma.“
Deerhoof hefur lengi verið
þekkt fyrir þróttmikla tónleika og
segir Greg að á margan hátt ein-
faldi það hlutina að vera núna þrjú
í stað þess að vera fjögur. „Við
getum spilað sama lagið, og á
hverjum tónleikum hljómar það
öðruvísi. Einn daginn spilum við
það hraðar og hinn daginn hægar.
Fyrir mér er þetta bara eins og
með Rolling Stones eða eitthvað.
Einfaldlega klassísk rokk og ról
formúla. Lögin eru svo einföld að
það gefst mikið svigrúm til að
leika sér aðeins með þau. Og á
margan hátt er auðveldara að
framkvæma slíkt þegar færri eru
í sveitinni.“
Undanfarið hefur Deerhoof
verið nokkuð dugleg að gefa aðdá-
endum sínum fría tónlist á heima-
síðu sinni, meðal annars alls kyns
óútgefið efni, útvarpsupptökur,
ábreiðulög og fleira. „Það var sá
tími þegar Deerhoof hefði aldrei
gefið tónlist sína. Það var áður en
ég eignaðist sjálfur tölvu,“ svarar
Greg og springur úr hlátri. „En ég
meina, við erum ekkert frábrugðn-
ari öðrum sveitum að þessu
leyti.“
Greg hlakkar mikið til Íslands-
heimsóknarinnar en segir að sveit-
in muni ekki spila mikið af nýju
efni hérlendis en eitthvað þó. „Við
erum nú að fara að spila á Íslandi í
fyrsta skiptið og þar býst ég við að
flestallir áhorfendurnir séu að
hlusta á Deerhoof í fyrsta skipt-
ið.“ Ég segi Greg hins vegar að
þar sé hann að vanmeta íslensku
áhorfendurna. Deerhoof spilar á
Gauknum á föstudagskvöldið á
Airwaves í ár.