Fréttablaðið - 19.10.2007, Qupperneq 48
19. OKTÓBER 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið miðborgin
Barnafatnaður Jakki, buxur peysa
og húfa kr. 10.500.
North Ice Winter: Úlpa, buxur „su-
perdry“ nærföt, flís millilag, húfa,
lúffur og trefill kr. 19.500.
Skór Pro hunter kr. 9.500. Camo skór kr. 10.500. Premium skór kr. 12.500.
Gönguskór kr. 9.500. Leðursandalar kr. 3.150.
Veiðifatnaður Jakki, buxur, tvenn pör af nærfatnaði „super dry“ og flísmillilag, flónelskyrta, húfa, axlabönd,
áhneppt hetta og flugnanet og sætisyfirbreiðsla. Camo pakki: Jakki, buxur peysa, nærföt áhneppt hetta og
flugnanet, axlabönd. kr. 29.500.
North Ice Outdoor:Jakki, buxur, flís-
peysa, flísnærföt bolur, húfa og
sokkar kr. 17.500.
— ICEFIN—
Nóatúni 17
sími 534 3177 og 820 7746
Fr
u
m
Herrafatnaður frá heimsþekktum
hönnuðum, klæðskeraþjónusta og
sérvalinn kvenfatnaður er meðal
þess sem fæst hjá Alvaro Calvi í nýrri
fataverslun hans á Laugaveginum,
Calvi.
Nú á haustmánuðum var opnuð glæsi-
leg fataverslun á Laugavegi 85 er nefn-
ist Calvi. Eigandi hennar er Alvaro
Calvi, sem hann hefur langa reynslu úr
tískubransanum, en hann starfaði í tólf
ár hjá Sævari Karli áður en hann opnaði
sína eigin verslun 22. september síð-
astliðinn. Verslunin minnir á flottustu
tískuhúsin erlendis og hefur greinilega
verið vandað til verksins. Þar er boðið
upp á heimsþekkt fatamerki og klæð-
skeraþjónustu.
„Við erum einna helst með herraföt
enn sem komið er en bjóðum þó líka
upp á kvenfatnað sem er sérvalinn og
er í raun eins og listaverk. Ég er með
ítalska línu sem heitir Corneliani og er
það aðallega herrafatnaður. Síðan erum
við með fatnað frá Armand Basi sem er
hönnuður frá Barcelona og er ég bæði
með herra- og kvenfatnað frá honum.
Svo erum við með fatnað frá Christian
Lacroix, bæði jakkaföt og skyrtur sem
er þá meiri hátískuvara. Ég er líka með
Porsche design, eins og bíllinn, en línan
frá þeim kallast „Driver‘s collection“
og er það mjög fallegur sportfatnaður,“
útskýrir Alvaro og ljóst er að hér er um
toppnöfn í tískuheiminum að ræða.
Vetrartískan einkennist líkt og oft
áður af hlýjum litum og fræddi Alvaro
okkur um helstu strauma og stefnur
þetta árið.
„Fyrir veturinn er mikið af jarðlitum
og rauði liturinn er áberandi í aukahlut-
um eins og bindum. Sniðin núna eru öll
þétt að líkamanum en þó úr þægilegum
efnum með teygju. Einnig er mikið af
vestum. Jakkafötin eru í jarðlitum eins
og gráum og brúnum en svo er alltaf
klassískt að eiga dökk jakkaföt,“ segir
Alvaro.
Varðandi mynstur á jakkafötum þá
gat Alvaro bent okkur á þau helstu:
„Nú er mjög vinsælt mynstur sem
kallast „Prince of Wales“ og annað sem
kallast „pin stripes“ og „shadow stri-
pes“ þar sem teinarnir eru ekki áber-
andi.“
Viðtökur við opnun verslunarinnar
voru mjög góðar enda er Alvaro þekkt-
ur í sínu fagi hér á landi. Auk þess býður
hann upp á klæðskeraþjónustu.
„Við saumum alveg frá grunni. Við
hönnum snið og þetta er allt meira og
minna handunnið eins og gert var fyrir
mörgum árum og enn er gert á Eng-
landi,“ segir Alvaro en hjá honum er
fagmennska í fyrirrúmi.
Hjá Calvi starfar Mohammed Zah-
awi sem er mjög reynslumikill klæð-
skeri og þekktur hér á landi fyrir störf
sín við Íslensku óperuna. Áður starfaði
hann lengi í Þýskalandi.
Calvi býður upp á fyrsta flokks fatn-
að og er verslunin kjörinn staður fyrir
fagurkera að eyða góðum stundum og
fjármunum. hrefna@frettabladid.is
Klassískur Calvi
Alvaro Calvi býður upp á hágæða tískufatnað og klæðskeraþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR