Fréttablaðið - 19.10.2007, Blaðsíða 80
Brian Barwick, yfir-
maður enska knattspyrnusam-
bandsins, ítrekaði í gær að Steve
McClaren væri ennþá rétti maður-
inn til þess að leiða enska landslið-
ið þrátt fyrir svekkjandi tap gegn
Rússum í undankeppni EM. Tapið
verður hugsanlega til þess að
enska landsliðið komist ekki í
úrslitakeppni EM sem fram fer
næsta sumar.
„Steve hefur allan okkar stuðn-
ing og við einbeitum okkur núna
bara að leiknum gegn Króatíu, en
auðvitað verðum við einnig með
augun á leik Rússa gegn Ísrael og
vonum að Ísrael vinni og veiti
okkur hjálparhönd í baráttunni,“
sagði Barwick í viðtali við fjöl-
miðla í gær. McClaren er búinn að
stýra Englendingum síðan í ágúst
í fyrra eftir að hafa áður verið
aðstoðarmaður Sven-Göran Eriks-
son hjá liðinu.
McClaren áfram með
enska landsliðiðið
Hinn 44 ára gamli Kevin
Reynolds, maðurinn sem lamdi
stjóra Manchester United, Sir
Alex Ferguson, í nárann fyrir
utan lestarstöð í London á
dögunum, hefur verið dæmdur í
fimmtán mánaða fangelsi fyrir
athæfi sitt. Ferguson var sjálfur
gáttaður á atvikinu.
„Ég átti ekki von á því að vera
laminn og vissi ekki hvað
maðurinn var að hugsa og ákvað
að gera ekkert á móti því hann
hefði getað verið vopnaður,“ sagði
Ferguson í yfirlýsingu sinni á
lögreglustöð eftir atvikið. Segja
má að Reynolds sé góðkunningi
lögreglunnar en hann á að baki
alls 146 kærur fyrir líkamsmeið-
ingar og smáglæpi.
Átti ekki von á
að vera laminn
U-19 ára landslið karla í
fótbolta komst á miðvikudag
áfram í milliriðla í undankeppni
Evrópumótsins árið 2008 þegar
liðið vann sigur á Rúmeníu 2-0.
Íslendingar voru í riðli með
Englandi, Belgíu og Rúmeníu og
fyrir leikinn á miðvikudag höfðu
strákarnir tapað gegn geysi-
sterkum Englendingum, en unnið
Belga, og þurftu því sigur í síð-
asta leiknum til að tryggja sér
þátttökurétt í milliriðli.
Íslendingar byrjuðu leikinn af
krafti og komust yfir eftir tæp-
lega stundarfjórðung þegar
Jósef Kristinn Jósefsson skoraði
gott mark.
Staðan var 1-0 í hálfleik, en
seint í síðari hálfleik bættu
íslensku strákarnir við öðru
marki. Þar var að verki Gylfi Þór
Sigurðsson, leikmaður Reading,
en hann bar fyrirliðaband Íslands
í leiknum í fjarveru Arons Ein-
ars Gunnarssonar sem tók út
leikbann. Niðurstaðan var örugg-
ur 2-0 sigur og Kristinn Rúnar
Jónsson, þjálfari landsliðsins,
var því hæstánægður með strák-
ana sína.
„Það var margt jákvætt við
leikina hjá okkur og strákarnir
stóðu sig vel. Þetta eru strákar
sem hafa nú þegar þó nokkra
reynslu af því að spila landsleiki
með U-17 ára liðinu og þrír leik-
menn liðsins eru komnir í
atvinnumennsku, tveir hjá
Reading og einn hjá AZ Alkmaar,
þannig að það er bara jákvætt,“
sagði Kristinn, sem hlakkar til
þess að takast á við næsta verk-
efni með liðinu.
„Milliriðlarnir verða leiknir á
tímabilinu frá 1. mars til 31. maí
á næsta ári og ég er samnings-
bundinn KSÍ út næsta ár þannig
að ég er bara spenntur fyrir
þessu eins og strákarnir,“ sagði
Kristinn Rúnar.
Öruggur sigur hjá
strákunum
Aganefnd íþróttamála á
Ítalíu hefur ákveðið að dæma
Inter til þess að greiða 30.000
evra sekt fyrir móðgandi borða
sem aðdáendur liðsins höfðu í
frammi á leik Inter og Napoli á
dögunum. Enn fremur hefur
aganefndin ákveðið að loka þeim
hluta vallarins tímabundið þar
sem hörðustu aðdáendur Inter
halda sig jafnan. Ráðamenn Inter
hafa frest þangað til í dag til þess
að áfrýja dómnum sem Massimo
Moratti, forseti félagsins, hefur
þegar gagnrýnt í fjölmiðlum.
„Við höfðum gert allt sem í
okkar valdi stendur til þess að
koma í veg fyrir ólæti á leikjum
með því að vera með stranga
gæslu og margar öryggismynda-
vélar og því tökum við dóminn
mjög nærri okkur. Nú þegar hafa
margir ársmiðahafar sent okkur
bréf til þess að kvarta yfir
dómnum og til þess að fá
endurgreitt ef dómurinn
stendur,“ sagði Moratti svekktur.
Inter dæmt til
að greiða sekt
Til varúðarráðstafana
hefur verið gripið fyrir leik Roma
og Napoli í Serie A deildinni á
morgun, þar sem aðeins ársmiða-
hafar Roma mega mæta og horfa
á leikinn. Ástæða þess að borgar-
og öryggisráð Rómarborgar
ákvað að banna áhangendum
Napoli að mæta á leikinn var
hættan á því að aðdáendur
liðanna myndu lenda í átökum
eftir leik. Bannið er liður í átaki
sem stendur yfir á Ítalíu gegn
ofbeldi á fótboltaleikjum. Byrjað
var á því í kjölfar þess að
lögreglumaður lét lífið og 150
slösuðust í átökum eftir nágrann-
aslag Catania og Palermo.
Átak hafið
gegn ofbeldi
Didier Drogba, framherji
Chelsea, segist óánægður og vill
fara frá félaginu. „Andinn í liðinu
er enginn eftir að José Mourinho
yfirgaf Chelsea. Það er ekkert
sem stöðvar mig núna í að fara
eitthvert annað og ég ætla að
fara,“ sagði Drogba í viðtali við
tímaritið France Football, en
Chelsea hefur þegar gefið frá sér
yfirlýsingu um málið.
„Drogba er nýbúinn að semja til
fjögurra ára við Chelsea og þar
sem hann er atvinnumaður mun
hann án efa standa við gerða samn-
inga,“ sagði í yfirlýsingunni.
Drogba kom til Chelsea árið
2004 frá Marseille og hefur reglu-
lega verið orðaður við önnur lið
vegna frábærrar frammistöðu
sinnar með Chelsea.
Hann skrifaði undir nýjan samn-
ing í nóvember en greindi frá því
að hann hefði íhugað að yfirgefa
félagið eftir að það vann tvo enska
meistaratitla í röð.
Drogba hefur áður sagst myndu
hafa áhuga á að leika með liðum á
borð við Barcelona, Real Madrid,
AC Milan og Inter.
„Síðan ég kom til Chelsea hefur
mig oft langað að fara og alltaf á
sumrin. Ég veit að Ronaldinho og
Kaka eru orðaðir við Chelsea en
koma þeirra myndi ekki breyta
neinu,“ sagði Drogba.
Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að framherjinn
Didier Drogba fari frá Chelsea.