Fréttablaðið - 19.10.2007, Page 88

Fréttablaðið - 19.10.2007, Page 88
Kona sem ég þekki ekki nógu mikið til að hún geti fjölyrt um lyndiseinkunn mína gerði það samt um daginn. Að hennar sögn er mér tamt að benda á það sem bjátar á en leggja aldrei til neinar lausnir. Ljótt ef satt er en hún minntist aftur á móti ekki einu orði á hvað ég ætti að gera í þessu. En í samfélagi sem þarfnast úrbóta er hugarfar sem þetta vissulega löstur. Ég hef því einsett mér að hætta alfarið að einblína á vandamál en hugsa og tala í lausnum. Heildarlausnum ef vel vill til. , lífið varð miklu einfald- ara í kjölfarið: Fjölgum leikskóla- kennurum, lækkum matvælaverð, leggjum Sundabraut, réttum mis- lægu gatnamótin, róum umræð- una, þykkjum sósuna, rekum Eyj- ólf og svo framvegis. Þetta eru aðeins nokkur af þeim aðkallandi vandam.... afsakið, úrlausnar- efnum sem ég hef leyst í kjölfar þess að ég tileinkaði mér hugsun- arhátt hins batnandi manns. Þetta hefur líka haft þau virðisaukandi áhrif að það sem áður voru allt að því óyfirstíganlegar hindranir hafa breyst í tækifæri eða jafnvel hrein hlunnindi. Gerum bara gott úr þessu öllu saman. stafar semsagt af öllum sviðum mannlífsins þessa dagana – hamingjan vellur úr mér eins og óstöðvandi blóðnasir. Suzuki Swift af árgerð 1991 er ekki lengur dældaður skrjóður heldur ómetanlegur þjónn, sem þarf aldrei að læsa því engum dettur í hug að það séu verðmæti í honum. Af því hlýst mikið hag- ræði. Dráttarvextirnir í inn- heimtubréfunum eru ekki lengur hótun heldur innblásin, ljóðræn hvatning um að gera ekki ekki neitt; ég kem skyndilega auga á hollan sannleik og djúpa lífsspeki í sjálfshjálparbókum og verkum Paulo Coelho; og já, ég tel að súkkulaðigosbrunnurinn í Vöru- torgi sé sannarlega partígræja ársins 2007 sem ég ætti að panta strax í dag. sem áður virtist gallaður og uppfullur af snúnum vandamálum kemur mér eftir við- horfsbreytinguna fyrir sjónir sem hinn besti allra hugsanlega heima. „Og til þess eru svínin gerð að maður éti þau,“ sagði líka Altúnga við vin sinn Birtíng í samnefndri bók, „enda erum við étandi svín ár og síð: þar af leiðir að þeir sem segja að alt sé í lagi eru hálfvitar; maður á að segja að alt sé í allra- besta lagi.“ Eigðu góðan dag!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.