Fréttablaðið - 19.10.2007, Síða 88
Kona sem ég þekki ekki nógu mikið til að hún geti fjölyrt
um lyndiseinkunn mína gerði það
samt um daginn. Að hennar sögn
er mér tamt að benda á það sem
bjátar á en leggja aldrei til neinar
lausnir. Ljótt ef satt er en hún
minntist aftur á móti ekki einu
orði á hvað ég ætti að gera í þessu.
En í samfélagi sem þarfnast
úrbóta er hugarfar sem þetta
vissulega löstur. Ég hef því einsett
mér að hætta alfarið að einblína á
vandamál en hugsa og tala í
lausnum. Heildarlausnum ef vel
vill til.
, lífið varð miklu einfald-
ara í kjölfarið: Fjölgum leikskóla-
kennurum, lækkum matvælaverð,
leggjum Sundabraut, réttum mis-
lægu gatnamótin, róum umræð-
una, þykkjum sósuna, rekum Eyj-
ólf og svo framvegis. Þetta eru
aðeins nokkur af þeim aðkallandi
vandam.... afsakið, úrlausnar-
efnum sem ég hef leyst í kjölfar
þess að ég tileinkaði mér hugsun-
arhátt hins batnandi manns. Þetta
hefur líka haft þau virðisaukandi
áhrif að það sem áður voru allt að
því óyfirstíganlegar hindranir
hafa breyst í tækifæri eða jafnvel
hrein hlunnindi. Gerum bara gott
úr þessu öllu saman.
stafar semsagt af
öllum sviðum mannlífsins þessa
dagana – hamingjan vellur úr mér
eins og óstöðvandi blóðnasir.
Suzuki Swift af árgerð 1991 er
ekki lengur dældaður skrjóður
heldur ómetanlegur þjónn, sem
þarf aldrei að læsa því engum
dettur í hug að það séu verðmæti í
honum. Af því hlýst mikið hag-
ræði. Dráttarvextirnir í inn-
heimtubréfunum eru ekki lengur
hótun heldur innblásin, ljóðræn
hvatning um að gera ekki ekki
neitt; ég kem skyndilega auga á
hollan sannleik og djúpa lífsspeki
í sjálfshjálparbókum og verkum
Paulo Coelho; og já, ég tel að
súkkulaðigosbrunnurinn í Vöru-
torgi sé sannarlega partígræja
ársins 2007 sem ég ætti að panta
strax í dag.
sem áður virtist
gallaður og uppfullur af snúnum
vandamálum kemur mér eftir við-
horfsbreytinguna fyrir sjónir sem
hinn besti allra hugsanlega heima.
„Og til þess eru svínin gerð að
maður éti þau,“ sagði líka Altúnga
við vin sinn Birtíng í samnefndri
bók, „enda erum við étandi svín ár
og síð: þar af leiðir að þeir sem
segja að alt sé í lagi eru hálfvitar;
maður á að segja að alt sé í allra-
besta lagi.“
Eigðu
góðan dag!