Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 4
Sænskur maður,
sem ranglega bendlaði tengda-
son sinn við al-Kaída í tölvu-
póstskeyti til bandarískra
yfirvalda, hefur verið ákærður
fyrir mannorðsmorð. Frá þessu
var greint í Sydsvenska Dag-
bladet í gær.
Skeytið varð til þess að þegar
tengdasonurinn fór í viðskipta-
ferð til Bandaríkjanna fékk hann
ekki að koma inn í landið og var
sendur beint aftur til Svíþjóðar.
Tengdafaðirinn viðurkenndi að
hafa sent skeytið eftir að það var
rakið til heimatölvu hans. Hann
er sagður hafa tjáð lögreglu að
hann hafi sent skeytið í reiði-
kasti eftir rifrildi við tengdason-
inn, sem var að skilja við dóttur
hans.
Ákærður fyrir
mannorðsmorð
Einn helsti leiðtogi
tamílsku Tígranna á Srí Lanka,
S.P. Tamilselvan, féll í gærmorg-
un í loftárás stjórnarhersins á
fundarstað, þar sem leiðtogar
Tígranna voru saman komnir.
Tamilselvan var leiðtogi hins
pólitíska vængs uppreisnarhóps-
ins, en í árásinni féllu einnig
fimm aðrir af leiðtogum
skæruliðanna. Frá þessu var
skýrt á vefsíðu Tamíltígranna í
gær.
Tamilselvan var helsti
tengiliður Tígranna við umheim-
inn, hitti meðal annars norska
og íslenska friðargæsluliða og
ræddi oft við blaðamenn.
Einn leiðtoga
Tamíla felldur„Það er geinilegt að
sveitarstjórnin hefur sótt þetta mál
af meira kappi en forsjá,“ segir
Árni Finnsson, formaður Náttúru-
verndarsamtaka Íslands, um
ákvörðun Vegagerðarinnar að hætta
við útboð á lagningu Gjábakkaveg-
ar, eða Lyngdalsheiðarvegar eins
hann er nefndur hjá Vegagerðinni,
en hann á að liggja milli Þingvalla
og Laugarvatns.
Veginum hefur mikið verið mót-
mælt meðal annars vegna ótta að
hann kunni að skaða lífríki Þing-
vallavatns. Úrskurðir Skipulags-
stofnunar voru kærðir til umhverf-
isráðherra en í maí úrskurðaði
Jónína Bjartmarz, þáverandi
umhverfisráðherra, að úrskurður
Skipulagsstofnunar skyldi standa
og ákváðu fulltrúar Vegagerðarinn-
ar að útboð yrði auglýst í haust. Nú
hefur það verið dregið til baka þar
sem misfarist hafði hjá sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar að gera
breytingar á aðalskipulagi, auglýsa
þær og þar með gefa almenningi
kost á að gera athugsemdir. Talið er
að hálft ár muni líða þar til Vega-
gerðin getur aftur auglýst útboð.
Segist Árni vona að menn noti þann
tíma til að endurskoða lagningu
vegarins og finna aðra leið þar sem
hún valdi minni skaða.
Pétur Ingi Haraldsson, skipulags-
fulltrúi Bláskógabyggðar, segir
vegarkaflann sem láðist að setja
inn á nýtt aðalskipulag þó vera
nálægt Laugarvatni, eða frá þeim
kafla sem liggur að þjóðgarðinum
og deilt hefur verið um. Hann eigi
ekki von á að gerðar verði breyting-
ar á veginum við Þingvelli.
Samruna Reykjavík
Energy Invest og Geysis Green
Energy var hafnað á stjórnar-
fundi Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) í gær. Bryndís Hlöðvers-
dóttir, stjórnarformaður OR,
segir að fallið hafi verið frá
öllum samþykktum frá stjórnar-
og eigendafundi frá 3. október.
Nýr eigendafundur hefur verið
boðaður.
„Við teljum eftir að hafa skoð-
að alla þætti að það leiki það mik-
ill vafi á þessu að við séum ekki
bundin af þessum ákvörðunum,“
segir Bryndís. „Við tökum þessa
ákvörðun að mjög vel ígrunduðu
máli, ekki síst lögfræðilega séð.“
Spurð um þann lagagrundvöll
sem byggt er á þegar samning-
unum er hafnað segir Bryndís að
það sé almenn regla í samninga-
rétti að ef annar aðilinn hafi ekki
réttar forsendur fyrir því sem
samið er um geti sú staða komið
upp að samningurinn hafi ekki
gildi.
Fram undan er að finna útrás
OR farveg á nýjum grunni, segir
Bryndís. Stjórn OR fól henni að
ræða við aðra hluthafa í Reykja-
vík Energy Invest (REI) og for-
svarsmenn Geysis Green Energy
(GGE) um framhaldið.
„Nú er komið að þeim punkti
að fólk setjist niður og sjái hvort
hagsmunir liggi saman einhvers
staðar, og hvort menn hafi áhuga
á að vinna á nýjum grunni að
framgangi þeirra,“ segir Brynd-
ís.
„Þetta er eitthvað sem er of
snemmt að spá fyrir um, við
sjáum ekki fyrir alla leiki. Sam-
runanum hefur verið hafnað. Það
er sá punktur sem við erum á
núna. Okkar hlutverk er að vinna
okkur áfram frá þeim punkti.“
Hannes Smárason, stjórnar-
formaður GGE, sagði í Frétta-
blaðinu í gær að fyrirtækið líti
svo á að samningar hafi náðst og
þeir séu í gildi nema samið verði
um annað eða þeim hnekkt fyrir
dómi.
„Um lögfræðileg atriði geta
menn deilt. Samrunasamningur-
inn er viljayfirlýsing um tiltek-
inn samruna sem á sér stað í
ákveðnu ferli og tekur tíma. Það
eru formsatriði sem þarf að gæta
að. Ég lít svo á að þessu ferli hafi
ekki verið lokið,“ segir Bryndís.
Þá segir hún mörg rök hníga að
því að ákvarðanir hafi oft á tíðum
verið teknar á hæpnum forsend-
um.
Bryndís segist ekki óttast að
forsvarsmenn GGE eða aðrir
hluthafar í REI krefjist skaða-
bóta vegna þess að samruni fyr-
irtækjanna nái ekki fram að
ganga. Fyrst og fremst sé verið
að tryggja hagsmuni OR.
Spurð um samninga REI
erlendis segir Bryndís að fyrir-
tækið geti tekið ákvarðanir og
staðið við samninga þrátt fyrir
að samruninn gangi ekki eftir. Þó
hafi stjórnin beint því til stjórn-
ar REI að ekki verði teknar nýjar
ákvarðanir á grundvelli ákvarð-
ana sem teknar voru á umdeild-
um eigendafundi 3. október nema
með samþykki stjórnar OR.
Ekki bundin af ákvörðunum
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fellst á ákvörðun borgarráðs og samþykkir ekki sameiningu REI og GGE. Ef
annar aðilinn hefur rangar forsendur í samningagerð hafa samningar ekki gildi, segir stjórnarformaðurinn.