Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 60
Mér brá heldur betur í
brún um daginn þegar
ég frétti að búið væri
að hanna farsíma
sem hægt er að tala í
í miðju flugi án þess
að notkunin hafi áhrif
á stjórntæki flug-
véla. Hugmyndin er
svo langt á veg komin
að ríki innan Evrópusam-
bandsins vinna að því að koma tækn-
inni fyrir í farsímakerfum sínum.
Persónulega finnst mér þessi nýj-
ung algjör skömm og synd þar sem
ég slappa hvergi betur af en í flug-
vél og þá einmitt ekki síst vegna
þess að farsímanotkun er bönnuð
um borð. Hingað til hefur þetta í
raun verið eini hluti frísins þar sem
maður fær algjört frí frá streitu-
völdum á borð við farsíma.
Yfirleitt er það nefnilega þannig
að maður er ekki fyrr lentur en far-
síminn er tekinn upp og hringt í nán-
ustu ættingja til að láta vita að
maður hafi komist heill á húfi á leið-
arenda. Svo er kannski hringt í ein-
hverja vini, kunningja eða jafnvel
vinnufélaga til að ganga frá ein-
hverjum lausum endum. Fyrr en
varir er farinn svo mikill tími í mal í
GSM-símann að maður hefði allt
eins getað verið heima hjá sér.
Nei, ég get hreint ekki hugsað þá
hugsun til enda að taka eigi upp far-
símanotkun í flugvélum. Að geta
ekki lengur vænst þess að lesa,
horfa á sjónvarpið, láta hugann
reika, snæða ljúffengar omelettur
eða leggja sig án þess að verða fyrir
óþolandi hávaðamengun af völdum
hundraða hringitóna. Hver nennir
annars að eyða þriggja tíma löngu
flugi með froskalagið glymjandi í
eyrunum?
Kannski munu flugfélögin sjá
sér leik á borði einhvern tímann í
framtíðinni þegar þessi hugmynd
er fyrir löngu orðin að veruleika
og hávaðinn svo mikill að hann
ætlar alla að æra, og þá auglýsa
sérstök farsímalaus flug. Til
dæmis flug með farsímalausum
sætum eða farsímalaus flug með
sérstökum farsíma-herbergjum.
Nú, eða bara farsímalaust flug og
gistingu, þar sem maður kaupir
sér ekki bara frí heldur almenni-
legan frið. Ég myndi kaupa miða.
Þeir eru komnir aftur með óbærilega
stemmningu.
DJ Siggi Hlö ogDJ Valli Sport samaná Boogie Nightsá Gauk á Stöng.
Við lofum öllum bestudanslögum síðustu 30 ára.Fæturnir munu ekki stoppa fyrren fram undir morgun.
Fyrstu 500 sem mætafá geisladiskinn í boði Gordons Space.
Allir með
yfirskegg
fá frítt inn.
Dýrasti upphitunar-plötusnúður
sögunnar,
Kiddi Bigfoot,
hitar upp.
Mættu á BoogieNights með Sigga Hlö og Valla Sportá Gauk á Stöng í kvöld.
Í KVÖLD
Á GAUK Á STÖNG