Fréttablaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 80
Umræða um endurútgáfu bók-arinnar Tíu litlir negrastrák-
ar með teikningum eftir Mugg er
svolítið athyglisverð. Mér finnst
sjálfum fullkomlega ástæðulaust
að endurútgefa þessa bók, hún má
kjurr liggja, einkum og sér í lagi í
ljósi þess að hún á sér rætur í
dálítið viðurstyggilegri hug-
myndafræði, alveg burtséð frá því
hvað teikningarnar kunna að vera
kjút og rímið snjallt.
sem mér hefur fundist
athyglisverðast í þessari umræðu
eru viðbrögð tiltekinna ofurfrjáls-
lyndra hugsuða – og tel ég mig
reyndar verulega frjálslyndan
sjálfan – við þessari gagnrýni á
endurútgáfuna. Menn stökkva upp
á nef sér í vörn fyrir prent- og
tjáningarfrelsi og spyrja: „Má
ekkert gera? Vill fólk bókabrenn-
ur?“
er mikilvægt að verja prent-
og tjáningarfrelsi með kjafti og
klóm. En það er líka mikilvægt að
gera sér grein fyrir því að oft snú-
ast svona deilumál ekki endilega
um réttindi. Í tilviki negrastrák-
anna eru held ég fáir sem halda
því fram að það megi ekki, út frá
lögum og reglum, endurútgefa
bókina. Hins vegar eru margir
sem telja að það hefði vel mátt
sleppa því. Það er margt sem má.
En það er ekki þar með sagt að
maður eigi endilega að gera allt
sem má.
bara bókabrennur sem
dæmi. Út af fyrir sig get ég ekki
ímyndað mér að það sé nokkuð í
lögum sem kemur í veg fyrir það
að fólk geti brennt bækur. Er það
ekki bara athafnafrelsi? Einhverj-
um kynni að finnast það beinlínis
skynsamlegt að brenna bækur.
Þær safnast fyrir innan heimilis.
Sumar seljast ekki yfir höfuð.
Sumir gætu líka talið – talandi um
tjáningarfrelsi - að slíkar brennur
væru mjög vel til þess fallnar að
tjá andúð á því sem í tilteknum
bókum stendur. Kannski telja
sumir það beinlínis kósí að ylja
sér við slík mótmæli að vetrar-
lagi.
flestir eru hins vegar mjög
ákveðið á móti bókabrennum,
skiljanlega. Hinir ofurfrjálslyndu
líka. En spurningin er: Af hverju
er það? Jú, þær tengjast ákveðinni
viðurstyggð í sögunni. En hér blas-
ir við klemma: Þeir sem hvað
harðast mæla með því að það sé
fullkomlega í lagi að gefa út bækur
eins og Tíu litla negrastráka hljóta
að telja það jafnframt hið sjálf-
sagðasta mál að fólk brenni slíkar
bækur ef það svo kýs. Þetta eru í
stuttu máli ógöngur hinna ofur-
frjálslyndu.
Bókabrennur
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun